Leita í fréttum mbl.is

Kreppan í aðsigi ?

Óveðursskýin hrannast upp á himninum. Nú eru atvinnulausir orðnir yfir 18 þúsund talsins og fjölgar stöðugt. Á Alþingi situr ráðlítið fólk og pexar um næsta léttvæg  mál til lausnar vandanum. Flausturslegar stjórnarskrárbreytingar, sem ríkisstjórnin ætlar að knýja í gegn gera akkúrat ekkert til lausnar vandanum.

Steingrímur J. undirbýr varanlegar skattahækkanirnar Indriða Þorlákssonar af miklum móð, sem hann ætlar að opinbera eftir kosningar. Hvað Jóhanna er að gera veit ég ekki nema að undirbúa stjórnlagaþing, sem enginn veit hverjir eiga að skipa eða hvað eigi að gera.  Þangað verða væntanlega valdir þóknanlegir fulltrúar til að undirbúa stofnun Alþýðulýðveldisins Íslands.

Ekkert, akkúrat ekkert , er verið að gera í þágu fólksins í landinu nema að prenta tvomilljarða af peningum  og útbýta til atvinnulausra í gær auk 15 milljarða  í Tónlistarhús.  3 ríkisbankar  stritast við að rukka inn vanskilaskuldir almennings og nú fer að líða að nauðungaruppboðum og gjaldþrotum heimilanna.  Ef á virkilega að hagræða í ríkisrekstri ætti Steingrímur að athuga með að sameina ríkisbankana  í einn og bæta þannig myndarlega á atvinnuleysisskrána í niðurskurðaskyni.    

Gjaldeyrishöft og spilling útgerðarmanna í framhaldi af þeim, er hinn daglegi veruleiki þjóðarinnar. Ríkisfyrirtækjum fjölgar dag frá degi og 2 % vextir til gælufyrirtækjanna eru helstu efnahagsráðstafanir ráðlausrar ríkisstjórnar Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur, sem landsmenn eiga víst að endurkjósa eins og Sfinxinn útá þögnina eina.

Krónubréfin halda áfram að ógna tilveru þjóðarinnar.  Meðan þau bíða þarna er þjóðin og krónan í umsátri. Munum við verða að fara að dæmi Þjóðverja eftir gamla stríðið og setja krónuna á flot ? Borga Jöklabréfin með nýprentuðum 300 krónu dollurum ?  Lýsa yfir þjóðargjaldþroti og þarmeð greiðslufalli á erlendar skuldir eins og Icesave í nýrri Eigilstaðasamþykkt ?   Leggja krónuna svo niður og taka upp nýja mynt ?  Svakaleg tilhugsun ?  

 Hjalmar Schacht framkvæmdi peningaskipti eftir óðaverðbólguna í Þýzkalandi þegar hann tók upp Rentenmark á genginu 1:10 í veldinu 12 og setti það 1: 4 á móti dollar.  Rentumarkið var tryggt með allsherjarveði í öllum ríkiseignum Þýzkalands og landi.   Þetta varð sársaukafullt upphaf að endurreisn Þýzkalands eftir Weimarlýðveldið.  En hvað átti að gera ? Þetta  leiddi endurreisnar stvinnuveganna en auk þess til hervæðingar og þriðjaríkis Hitlers. Þar kom að  Hitler rak Hjálmar úr embætti ríkisbankastjóra og var hann því sýknaður af ábyrgð í Nürnberg 1947.  Þessi maður skrifaði 26 bækur og er án efa einn merkasti peningamaður allra tíma.

Þjóðarþjófarnir okkar leika lausum hala. Sem breytir engu því ekkert er af þeim að hafa. Þeir nefnilega töpuðu á öllu sem þeir komu nálægt því þeir voru viðskiptafífl en ekki séní eins og þeir þóttust vera.   Við borgum bara Evu Joly vel á meðan fyrir að rannsaka þá. En vitum svo líka að íslenzka dómskerfið er algerlega  ófært til að fást við flókin mál alþjóðlegra viðskiptajöfra með myndarlega lögfræðingahjörð eins og dæmin sanna. Það ræður víst bara við innbrot í sjoppur eins og Davíð sagði.

Ef við Íslendingar  komum ekki neinum framkvæmdum á stað í landinu þá heldur ástandið áfram að versna.  Engar framkvæmdir verða án fjármagns. Núverandi spennitreyja peningamála leysir ekki fjárhagsvanda þjóðarinnar, hversu margir Norðmenn sem eru fengnir að Seðlabankanum eða hversu miklir nýir skattar verða lagðir á almenning með blessun AGS.

Í sjónvarpinu í gær lýsti Atli Gíslason yfir því að samhliða bankahruninu á Íslandi hefði orðið lýðræðishrun.  Sjaldan er ég sammála þingmönnum VG.  En þegar óður skríllinn réðist á þinghúsið og stjórnarráðið og grýtti lögregluna, þá fannst mér lýðræðið og siðmenningin hrynja á Íslandi. Afskræmt heiftarandlit  rithöfundarins Hallgríms Helgasonar og framrúðunni hjá Geir Haarde gleymist manni seint.   Ég held að það hafi aðeins munað  hársbreidd að byltingin hefði tekist um þessar mundir.  Alþingi brotnaði saman og við tók sú upplausn sem við búum við í dag.

Eins og nú horfir getur alvarleg kreppa verið  í aðsigi.  Hungursneyð ættu Íslendingar lílega að geta forðast með fiskimiðum og auðlindum sínum.  En ekki get ég séð fyrir allra þær hörmungar sem við okkar geta blasað ef allt heldur áfram á sömu braut og nú stefnir.    Ekki kem ég auga á mann á borð við  Hjálmar Schacht til þess að vísa okkur veginn fram. Og víst sýnist mér er að hann er ekki að finna innan ríkisstjórnarinnar.  Því  er linun þjáninga þjóðarinnar  ekki í sjónmáli enn.  Hvað sem er   fimbulfambað um annað í aðdraganda óþarfra  skyndikosninganna framundan. 

Meðan við dundum okkur í pólitísku þrefi, þá skeður svo sem ekkert alvarlegt.  En við verðum hinsvegar að gera okkur ljóst Íslendingar að við eigum ekki þann viðbúnað sem þarf til að fást við alvarlega  atburði af svipuðum toga.   Því er ekki víst að næst finnist einhver leið útúr þeim vanda sem við verður að glíma, ef kreppan sígur að fyrir alvöru. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Skríll getur auðveldlega staðið saman af heiðvirðum einstaklingum. Saman hlaupa þeir í æði og vinna verk sem þeir myndu ekki vilja kannast við síðar. Það er gaman að kynnast einum "real life grjótkastara" sem ekki skammast sín.

Halldór Jónsson, 2.4.2009 kl. 14:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég minnst orða Pálma Hannessonar rektors míns á Sal eitt sinn þegar Menntlingar höfðu orðið uppvísir af uppþoti í miðbænum. Þá sagði Pálmi með þungri áherzlu að menntamenn mættu aldrei hlaupa saman í  múg. Múgurinn væri siðlaus, heimskur og blindur.

Varðandi lýsingu þína á landsfundi Sjálfstæðisflokksins þá geri ég ráð fyrir að þú hafir ekki verið þar í 1900 manna skrílshópnum.

Þú þekkir þá líklega aðra göfugri flokka geri ég ráð fyrir sem þú skammast þín ekki fyrir. 

Ég skammast mín hinsvegar ekki fyrir að hafa verið með jafnágætu fólki og var á þessum einum besta landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem ég hef setið. Ég var sérstaklega ánægður með að flokkurinn minn reis undir nafni sínu og kaus að ganga ekki undir ný sambandslög ESB.

En flokkurinn var stofnaður um það að Ísland yrði sjálfstætt þegar sambandslögin væru úti. Því ferli  lauk 17.júní 1944 án grjótkasts.

Til viðbótar ætlaði flokkurinn  "að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. "

Þetta er sjálfstæðisstefnan í tveimur liðum.  Flokkurinn hefur aldrei séð ástæðu til að breyta stafkrók í þessari stefnuyfirlýsingu frá 1929 eða skipta um nafn.

En þinn flokkur ?

Halldór Jónsson, 2.4.2009 kl. 16:14

3 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Góð greining hjá þér Halldór.  Við gerum ekkert án fjármagns og við fáum ekkert fjármagn erlendis frá fyrr en við ákveðum hvaða skuldir við ætlum að greiða og hverjar ekki.  Aðeins þá geta fjárfestar gert sér grein fyrir því hvort við höfum greiðslugetu til að taka ný lán til atvinnuuppbyggingar. Útlendingar munu aðeins lána okkur meira fjármagn ef þeir eru vissir um að það skili sér í uppbygingu sem gerir okkur betur í stakk búin að greiða þau lán og gömlu lánin.  Ekkert fæst fyrir ekkert.

Andri Geir Arinbjarnarson, 2.4.2009 kl. 17:16

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Þetta er prýðis pistill hjá þér Halldór!

Þjóðir Evrópu fengu nóg af ruglinu, þjóðverjar jafnt og Ítalir sameinuðust um einn lögeyri, eina mynt, eina peningamálastefnu!

Þetta voru stór lönd og smá og sennilega voru þessar þjóðir, hagfræðingar þeirra og stjórnmálamenn kjánar.

Evran en samt staðreynd og sterk sem aldrei fyrr í því efnahagslega fárviðri sem hefur geysað undanfarna 6 mánuði.

Krónan er ónýt og til einskis nýt! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 2.4.2009 kl. 22:20

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta var stórkostlegt Hilmar ! Heyrirðu raddir ?

Halldór Jónsson, 3.4.2009 kl. 07:39

6 Smámynd: ThoR-E

Ég sé ekki betur en að fylgismaður krists endurborins hafi verið rassskelltur í vitrænni umræðu.

Enda með lélegan málstað að verja.

ThoR-E, 3.4.2009 kl. 13:53

7 identicon

Heill og sæll; Halldór, líka sem aðrir þeir, hverjir geyma hans síðu og brúka !

Halldór og Guðbjörn Tollheimtumaður !  

Er ekki hyggilegast; af ykkar ryckti, að þið viðurkennið amlóðahátt og yfirdrepsskap Sjálfstæðisflokkisns, og sverjið ykkur, þar með, frá þessu andskotans miðjumoði ?

Að kalla Sjálfstæðisflokkinn; hægri flokk, er svona álíka vitrænt, og að segja, að Kölski sjálfur, væri Rómar páfi, ágætu drengir.

Þrátt fyrir þá bölvun; hver yfir okkur féll, að Kommúnistar og kratar næðu yfirhöndinni, hér um hríð, að þá eru athafnir Sjálfstæðismanna, undanfarna áratugi, óverjanlegar, með öllu.

Hér; þurfum við sterka Alþýðustjórn : bænda - verkamanna - sjómanna og iðnaðarmanna, að 3/4, rest mætti vera, einhverjir nothæfir fræðingar.

Með; hinum beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418321

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband