1.8.2009 | 22:56
The National Bank of Iceland !
Stjórnmálamenn okkar almennt eru meiri fífl en gengur og gerist. Til að mynda þegar þeir seldu Landsbanka Íslands, The National Bank of Iceland til vina sinna með nafninu sem bendir beinlínis til þjóðarskuldbindingar.. Af hverju seldu þeir bara ekki nafnið Iceland einhverjum öðrum vinum sínum ?Iceland Inc.; Subdivision of Baugur Group ?
Þetta hefur komið okkur grimmilega í koll. Frændi minn Ágúst H. Bjarnason; agbjarn.blog.is,(sjá tengil á bloggvini) segir sögu á sinni bloggsíðu sem vert er að staldra við. Þar stendur meðal annars um kynni Ágústar af hollenzkum vinum sínum:
"Í ljós kom að þau höfðu alla tíð staðið í þeirri meiningu að íslenska ríkið stæði að baki Icesave, þetta hefði jú verið sjálfur Landsbankinn = The National Bank of Iceland. Gamalgróinn banki stofnaður árið 1885. "Safe and secure", eins og stendur í auglýsingunni hér að ofan.
Ég sagði þeim í fáeinum orðum frá því hvernig í pottinn væri búið. Sagði þeim frá einkavæðingu bankanna árið 2003, eigendum bankanna og hvernig þeir hefðu gengið í sjóði bankanna og lánað sér og vildarvinum skefjalaust gegn ónýtum veðum. Sagði þeim frá því hvernig þessir sömu menn hefðu stofnað fjölmörg fyrirtæki hér á landi og erlendis, meðal annars í skattaskjólum. Sagði frá krosstengdri eignaaðild. Sagði þeim frá því að um 30 þekktir Íslendingar ættu nánast alla sök á fjármálahruninu á Íslandi.
Þetta ágæta vel menntaða fólk kom af fjöllum. Þessa hlið málsins hafði það aldrei heyrt um.Það stóð greinilega enn í þeirri trú að íslenska ríkið , og þar með íslenska þjóðin, ætti sök á Icesave hörmungunum. Nú vissu þau betur, en hvað um alla hina? Vita milljónir Hollendinga og Breta nokkuð um bakgrunn málsins? :"
Okkar heimsku stjórnvöld hafa auðvitað ekkert gert í að skýra þessi mál fyrir umheiminum. Að Björgólfur og Sigurjón Digri séu ekki íslenzka ríkið,- hafi ekki haft umboð frá mér né þér til að flagga með þjóðfánanum og þessu stóra nafni, flekklausu í meira en hindrað ár.
Gyða frænka, ef þú lest þetta, geturðu ekki skrifað í Volkskranten eða hvað það heitir og bent þeim á þetta?
The National Bank of Iceland , est.1885 er ekki þjóðbanki Íslendinga heldur banki glæpamanna með íslenzku ríkisfangi.
Eva Joly vann fyrir kaupinu sínu í dag með að skýra málið fyrir umheiminum.Hún kom mér á óvart því ég hélt að hún væri bara lukkuriddari að flysja okkur. Ég virði þetta við hana og breyti um skoðun og álit á henni. Ég bið hana afsökunar á því að hafa talað niður til hennar.
Íslands óhamingju verður allt að vopni um þessa daga. Búsáhaldabyltingin færði okkur þessa stjórn sem við núna sitjum uppi með. " Múgurinn er alltaf óupplýstur, heimskur og grimmur" sagði Pálmi Hannesson rektor í mér minnisverðri skammarræðu á sal við okkur menntskælinga þegar við höfðum gert í buxurnar með ólátum í miðborginni fyrir hálfri öld.
Úrræðaleysið og gæfuleysið fellur að síðum. Nafnið "The National Bank of Iceland" bendlar okkur öll við Icesave, sem eru okkur óviðkomandi fjárglæfrar.
Við eigum ekki sem þjóð að seljast í ánauð vegna glæpaverka mannanna frá Rússlandi og leiguþýja þeirra og afglapa okkar eigin ráðamanna, sem seldu arfleifð þjóðarinnar fyrir baunadisk.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 3420146
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Já, the National Bank of Iceland, hvilík fáránleg firra að gefa þeim það nafn til að misnota kannski að vild. Þeir þarna uppi hugsuðu nákvæmlega ekki neitt með höfðinu sem oftar.
Elle_, 1.8.2009 kl. 23:27
Og nei, Halldór, ég held fólk í öðrum löndum viti þetta almennt ekki. Við þurfum að vera að skrifa líka utanlands við öll tækifæri.
Elle_, 1.8.2009 kl. 23:31
...og svo er kannski rétt að hafa í huga hverjir sátu í stjórn Landsbankans meðan hann var í raun "National Bank of Iceland" og héldu sæti sínu eftir að hann var gefinn "Bjór þríeykinu".... Erfitt er að trúa að stjórn bankans hafi ekki vitað hvernig staðið var að fjármögnun á sýndarviðskiptunum við kaupin á Landsbanka og Búnaðarbanka eða Kaupþingi.... Vonandi hafa þeir allir verið á góðum launum vegna þeirrar gríðarlegu ábyrgðar sem þeir bera í þessum viðskiptum öllum. Þeir verða jú að hafa að einvherju að hverfa þegar þeir sleppa út, því við verðum að trúa því að þeim verði nú refsað fyrir þau glappaskot sem þeir gerðu. Annað er nú varla sanngjarn, eða hvað.....? Pálmi rektor hefði nú alla vega skammað þá fyrir slælega frammstöðu... eða er það ekki líklegt, Halldór?
Ómar Bjarki Smárason, 2.8.2009 kl. 00:15
Halldór, takk fyrir þessa grein. Hún bendir á lykilatriði í okkar erfiðu stöðu: Upplýsa þarf almenning í útlöndum (Bretlandi og Hollandi sérstaklega) um hvernig málum er komið fyrir hér.
Að bankaútrásin sé fjárglæfrastarfsemi örfárra aðila.
Að "!The National Bank of Iceland , est.1885 er ekki þjóðbanki Íslendinga heldur banki glæpamanna með íslenzku ríkisfangi"
Meirihluti almennings erlendis veit örugglega ekki betur en öll Íslenska þjóðin og ríkið hafi staðið saman að hlutum eins og Icesave. Þetta þarf að leiðrétta rækilega.
Ef tekst að ná einhverri samúð með Íslensku þjóðinni meðal almennigs erlendis ( og réttum upplýsingum komið á framfæri) verður stórum áfanga náð í að berjast gegn því efnahagslega umsátri sem nú ríkir um Ísland.
Hvernig er best að koma á framfæri réttum upplýsingum og kynna málstað Íslands?
Bjarni Þór Hafsteinsson, 2.8.2009 kl. 00:17
Björgólfur Thor fæddist jú í landinu, en býr í BRETLANDI, landi ICESLAVE aðal-kúgara okkar.
Elle_, 2.8.2009 kl. 00:57
Sammála þér. Það að með ólíkindum að fyrrverandi stjórnvöld seldu ríkisbankana fyrir slikk, og þeir voru ekki einu sinni staðgreiddir. Ég mun blogga um þetta strax eftir helgi.
Ingibjörg Magnúsdóttir, 2.8.2009 kl. 01:13
eva joly vann svo sannarlega fyrir kaupinu sínu í þetta sinn,svoldið sem ekki er hægt að segja um stjórnvöld landsins
zappa (IP-tala skráð) 2.8.2009 kl. 02:11
Con men or charlatans or sharks? Philanderer? Gefa í líkanarfélög, klassa föt, pokerface. Sá [the one in sun] kom og sigraði. Gjaldþrot er sumum í lófa lægið ef það margborgar sig. Samt sem áður er sumir inn undir hjá fína fólkinu í GB. Sjötta valdið er auðvitað auðvaldið með því má kaupa öll hin völdin.
Júlíus Björnsson, 2.8.2009 kl. 10:24
Fjölmargir samfylkingarmenn líta ekki á sig endilega sem Íslendinga heldur Evrópumenn og því eru sumir þeirra undrandi og jafnvel sárir Evu fyrir að taka eindregið málstað Íslendinga og gagnrýna um leið Evrópusambandið.
Sigurður Þórðarson, 2.8.2009 kl. 10:53
Ég á ættir mínar að rekja til meginlandsins og SamFo er ekki samboðin Ný-Frjálshyggju-EU innleidd hér 1995. Undirlægjuhátturinn skín úr hverju andliti og aumingja dómurinn og hjarðeðlið algert. Undirmálsfólk á mælikvarða á mælikvarða EU höfðingjanna. Neysluvísis matkörfur almennings í Meðlimaríkjum eru allar í réttu hlutfalli við þann hluta heildarhluta þjóðarteknanna með fellur launaþrælum í skaut. Gæði eru ekki borin saman. EU hugmyndafræði sem tekin var upp hér með EFTA aðildinni 1995. Sama gildir um velferðakerfin. Elíturnar hafa komið sér upp einkavæddri Sjúkra paradís á Möltu. Aðalákvæði Stjórnskipunarlaga EU ganga út á samstarf um að hækka þjóðartekjur án þess að hækka tekjur almennings. Arbeit is Freiheit.
Það opnast alltaf lánalínur þegar gangsetninga eflds Evrópusamstarfs samstarfs [EES] eða meintur undirbúnings feril nágrannríkja hefst. Þetta getur læs maður lesið á milli línanna í milliríkjalögum EU með stjórnskipunarlagavægi. Menn vissu að evru lánin myndu streyma hér inn í kjölfarið og voru fljótir að koma heim. Svo var sagt þetta væri Ný-frjálshyggja nema því sleppt þetta er EU-útgáfan. Ný-frjálshyggja er bönnuð í USA svo þeirra fjárfestar leita annað. Nú eru þeir farnir frá EU til Kína og Indlands. EU er með gífurleg hernaðarleg áform sem hefði raskað valdjafni blokkanna ef henni hefði verið leyft að komast upp það. Það er í felum í samningunum Stofnun sem mun kallast Evrópska Varnar og öryggisstofan og Höfuðstöðvar eru en leyndarmál. Skattgreiðendur í USA hafa aldrei tekið það í má að vista meðalgreinda atvinnuleysingja í langskólanámi og gervi fræðimennsku að hætti EU. Hinsvegar gera margir út það selja útlendingum réttindi með hagnaði. Hermennska skilar meiru þegar upp er staðið. Það var aðal kreppu vopn elítunnar á miðöldum til að minnka í atvinnuleysið í stórborgunum þótt almennings sagan segi annað. Líkir sækja líka heim sem er skýringin á fylgi SAmFo. Seinheppnara lið er vandfundið. Embættisskyldur opinberra er velskilgreindar og skorðar með lagafastsetningu í ríkjum Meginlandsins. Menn gegna þeim eða taka poka sinn. SamFo er EU skömm á mælikvarða siðmenntaðra meginlands embættismanna sem virða lög og reglur og gegna skyldum sínum. Risarnir í EU lánuðu fátæklinginum í suðri og austri fyir ný-húsnæði 30 ára lán EU byggir ekki mikið meira næstu öldina. Komu á rússneskri verkaskiptinu milli Samkeppisefnhagssvæða með eftirlit Miðstýringarinnar Seðlabankakerfi EU.
Júlíus Björnsson, 2.8.2009 kl. 12:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.