Leita í fréttum mbl.is

Málgagnið mikla !

Ekki á ríkisstjórnin beittari brand en blaðið sem kennir sig við Fréttir.

Á síðum þess þenja sig dag eftir dag hinir digrustu pennar um ágæti þess að ganga í ESB. Ef það er ekki Þorvaldur Gylfason, þá er það Þorsteinn Pálsson. Ef það er ekki Eiríkur Bergmann þá eru það einhverjir leiðarahöfundarnir,eins og til dæmis Jón Sigurðsson, hundadagakóngur Framsóknarflokksins, sem stunda þrætubókarlist um dýrð Íslands, dásemd þjóðarinnar og drjúga kosti þess að vera smáþjóð, allt  til þess að komast að þeirri kolþverstæðu, að þjóðinni sé þessvegna best borgið í ESB. Þegar þetta er barið dag eftir dag geta börnin farið að trúa.

Látum það vera þó að þessi steypa sé hrærð þarna nótt og dag, Samfylkingunni og þýjum hennar í VG til dýrðar. En mér finnst það hinsvegar ekki sniðugt, að skattgreiðendur Íslands, nauðugir viljugir, séu neyddir til að borga fyrir þetta. Standa undir kostnaði við það, að þessu blaði sé troðið innum bréfalúgur landsins, hvort sem maður vill eða ekki. Á sama tíma sem það heyrist að eigendurnir ætli ekki að borga af lánum sem á útgáfunni hvíla.  Að taprekstur á þessum Baugsnepli sé í boði ríkisbankanna, er hinsvegar ekki sú þjóðarnauðsyn að mati margra sem réttlæti það.

Fjölmiðlaveldi Baugs, í boði Forseta vors og Davíðsfælni Jóns Ásgeirs,  á að borga skuldir sínar rétt eins og Björgólfar. Það er ekkert í þjóðarhag sem krefst þess að útgáfunni sé haldið áfram með aurum íslenzku ekkjunnar eða einstæðu móðurinnar. Mér finnast engin rök standa til þess að eyða skógum jarðar með þessum hætti.

Þetta mikla málgagn ESB-ríkistjórnar Rauðgrana og Samfylkingarinnar má missa sig mín vegna. Ég vil ekki borga með áframhaldandi tilvist þess. Farið hefur fé betra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Akkúrat það sem ég vildi sagt hafa. 

Elle_, 18.8.2009 kl. 19:27

2 Smámynd: Björn Birgisson

Átti ekki Mogginn að fara sömu leið?

Björn Birgisson, 19.8.2009 kl. 00:26

3 Smámynd: Haraldur Hansson

Tek undir hvert einasta orð í þessari færslu.

Haraldur Hansson, 19.8.2009 kl. 12:51

4 identicon

Svona til fróðleiks Halldór, þá finnst okkur láglaunafólkinu ágætt að fá ókeypis Fréttablaðið inn um lúguna. Kem hvergi auga á að ég sé að greiða meir af því en skuldum Árvakurs. Morgunblaðið hef ég ekki keypt í bráðum 20 ár sem samsvarar verði á ágætis notuðum bíl. Auk þess hugnast mér skrif Þorsteins frænda meir en skrif Agnesar. Eru ekki Staksteinar að brasa með kaup á Ávaxtabíl Hauks Magnússonar nú um mundir?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 19.8.2009 kl. 12:59

5 Smámynd: Elle_

Ég skal nú líka taka undir það að Morgunblaðið er of dýrt.   Alltof dýrt.  Hinsvegar nýtist Fréttablaðið ekki fyrir mikið fyrir utan skrýtlurnar að mínum dómi.   Það er ónákvæmt og alltof oft vitlaust skrifað.   Man líka eftir einu Fréttablaði sem kom með rangri dagsetningu á forsíðu.  

Elle_, 19.8.2009 kl. 15:17

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Stjórnmálaflokkar fá opinbera styrki. En blöð ópólitískra gróðapunga eiga ekki að fá styrki af opinberu fé. Ég sé ekki tengsl milli þjóðarhags og útgáfu Mogga og þaðanafsíður Fréttó, sem mér finnst leiðinlegra blað á allan hátt,-hundleiðinegt! Það er orðið langt síðan að ég sagði upp Mogga vegna fýlu,  ég hélt að ég myndi ekki lifa það af eftir 60 ára samlífi. En það vandist.

Moggin heldur í heimsku sinni að hann geti setið á girðingunni milli góðs og ills, vinstri og hægri, og fengið menn til að kaupa sig út á það. Hér áður vissi maður fyrir hvað Mogginn stóð. Núna er þetta orðin sama andskotans kratasuðan og Fréttablaðið og raunar öll fjölmiðlun nema ÍNN, það er óþarfi að borga fyrir það.

Halldór Jónsson, 19.8.2009 kl. 16:56

7 Smámynd: Elle_

" Það er orðið langt síðan að ég sagði upp Mogga vegna fýlu,  ég hélt að ég myndi ekki lifa það."

Ha, ha, þó orðalagið sé fyndið, getur viss fýla nú verið nauðsynleg.  Að "boycotta" fyrirtæki kannski.  Og vildi að allir "boycottuðu"  okur og ránfyrirtæki.  Og hvaða fyrirtæki sem nú níðast á mannfólki. 

En bendi fólki á pistil í the Wall Street Journal, ábendingin kom frá Sigurði Þór í pistli hans í dag.  Persónulega finnst mér Drezner alhæfa um hugarfar þjóðar vegna einnar bókar:  http://online.wsj.com/article/SB10001424052970204683204574357172191415680.html?mod=googlenews_wsj

Elle_, 19.8.2009 kl. 21:01

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Greinin í WSJ er bara ágæt lýsing á fíflunum hér uppúr og niðrúr. Og ekki fær Ásgeir Jónsson háa einkunn fyrir langhundinn sinn "Why Iceland", enda meðvirkur í öllu sukkinu sjálfur og reynir svo að hreinsa sjálfans sig af því um leið og græðir peninga á bókinni.Drezner dæmir hana held ég réttilega sem einskonar fortíðarstýringu og kattarþvott.

Halldór Jónsson, 19.8.2009 kl. 22:12

9 Smámynd: Elle_

Hann gat dæmt þann sem skrifaði og peninga-gengin í friði.  Ekki þó þjóðina í heild.  Enda fékk hann að heyra það í commentunum.    

Elle_, 19.8.2009 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband