Aldrei á minni lífsfæddri ævi hefur mér fundist Ísland eiga jafnbágt og núna. Sundrung ríkir og óvissa og kvíði nagar þjóðarsálina.
Verðbólgan fer hamförum. Kaldhömruð verðtrygging þjakar okkur eins og martröð. Við höfum enga framtíðarsýn nema hvað við ætlum að borga Bretum og Hollendingum morð fjár fyrir Icesave-hryllinginn fram til ársins 2024 og jafnvel lengur. Og við ætlum möglunarlaust að kyngja hryðjuverkalögunum sem stjórn Gordons Brown fannst við hæfi að setja á okkur heittelskuð Natósystkini sín.
Í staðinn fyrir að dansa hugsunarlaust kringum gullkálfinn hafa ráðvilltir stjórnmálamenn breytt um takt og skuldbundið okkur til að dansa eftir pípu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um ófyrirsjáanlega framtíð. Sá vangadans getur orðið okkur dýrkeyptari áður en lýkur heldur en vímudansinn kringum gullkálfinn.
Enn þá halda menn dauðahaldi í dýrustu tískubólu nútímans: Blinda trú á hagfræðinga, lagatækna og sérfræðinga....
....Alþjóðagjaldeyrissjóðinn .... staða lambsins gegn sauðfjárbónda. Eftir réttir.
Við ringulreið og ráðleysi bætist svo að það eina sem landsforeldrarnir Jóhanna og Steingrímur lofa er að niðurskurðarhnífnum verði beitt ótt og títt á næstunni og við skorin út úr vandræðunum af mikilli fimi með því að skera niður það sem við eigum verðmætast og gerir samfélag okkar eftirsóknarvert svo sem heilbrigðis- og menntakerfi.
Okkur er í stuttu máli boðið upp á undirlægjuhátt við Breta og Hollendinga, þjónkun við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, niðurskurð á innviðum þjóðfélagsins, áframhaldandi verðtryggingu og blinda trú á að hagfræðingar muni bjarga okkur með trúarhita sínum og súrrealískum spádómum.
Og höfundur vitlausustu peningamálastefnu allra tíma hefur verið gerður að seðlabankastjóra.......
....Óljós draumur um norrænt velferðarsamfélag einhvern tímann og einhvern veginn er ekki samfélagssáttmáli og í besta falli óljós framtíðarsýn.
Við segjumst vera sjálfstæð þjóð. Af hverju liggjum við þá á hnjánum fyrir Bretum og Hollendingum? Af hverju liggjum við þá á fjórum fótum fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem nú þegar hefur sýnt okkur þvílíkan dónaskap að starfsmenn hans ættu að hafa verið gerðir landrækir allir með tölu?
Af hverju hugsum við bara um að bjarga bönkum og fjármálastofnunum úr rústunum eftir hrunið? Hvar er skjaldborgin um heimilin? Hvar er skilningurinn á því að undirstöðueining þjóðfélagsins er manneskja en ekki fyrirtæki?........ekki krónupeningur.....
Hvernig væri að reyna að standa í lappirnar? Treysta á okkur sjálf en ekki að jólasveinar komi okkur til bjargar með fangið fullt af gjöfum á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða Evrópusambandsins?
Hvernig væri að standa saman og sýna sjálfum okkur og umheiminum að við erum sjálfstæð þjóð í frjálsu landi? Standa saman um að byggja upp nýtt og betra íslenskt þjóðfélag en það sem frjálshyggjufíflin lögðu í rúst?
Hvernig væri að snúa vörn í sókn; sjálfsvorkunn í sjálfstraust, sundrungu í samstöðu, kvíða í tilhlökkun?
Hvernig væri að hirða landið okkar aftur úr höndum erlendra stofnana og innlendra skilanefnda og fela það aftur í hendur heilbrigðri skynsemi?
Hvernig væri að við hættum að hegða okkur eins og hagfræðilega heilaþvegin hænsnahjörð og færum aftur að hegða okkur eins og vitiborin þjóð?
Helst áður en Sjálfstæðisflokkurinn fer yfir 50% í skoðanakönnunum til að setja þjóðina á hausinn. Aftur. "
Ég vildi bara að einhver úr mínum flokki myndi skrifa svona.
Þráinn ! Af hverju gengur þú ekki í þingflokk Sjálfstæðismanna. Þú ert hvort sem er bæði flokksslaus og þingflokksslaus. Það vantar menn meða sjálfstæða hugsun í þjóðfélagið. Menn verða yfirleitt betri menn af því að vera með öðrum en ekki einir útí horni eins og þú.
Stattu nú sjálfur í lappirnar Þráinn, og reyndu að fá menn til liðs við þig um heilbrigða skynsemi !
Athugasemdir
Ég hef lengi vitað að Þráinn er skynsamur og jarðbundinn.
Ágúst H Bjarnason, 25.9.2009 kl. 13:00
Góður Halldór !!
Sigurður Sigurðsson, 25.9.2009 kl. 13:33
Ekki viss um að þú blessir afstöðu hans í evrópumálum, en látum það liggja milli hluta. Hann Þráinn er enginn vitleysingur og hann veit meira en hann lætur í ljós þarna. Hér talar hann eins og þjóðarsálin öll. Hraust þjóð með bilað toppstykki. Stórn sem í eru vanhæfar gungur og spillingarpostular, sem lugu sig til fylgilags með þjóðinni vímaða af von um breytingar og nauðguðu henni svo máttvana á fleti eiginhagsmuna og siðspillingar.
Jón Steinar Ragnarsson, 25.9.2009 kl. 13:53
Voru ekki einhverjir að skjóta því að okkur að maðurinn væri veikur...????
Ekki get ég fundið að það sé mikið að toppstykkinu hjá honum, vildi bara óska þess að hann gæti talað eins og hann skrifar !!!!
Anna Grétarsdóttir, 25.9.2009 kl. 14:05
þarna er kannski kominn maðurinn sem við getum flykkt okkur um, hann skrifar ræðurnar og síðan finnum við ræðuskörung mikinn sem þrumar þeim yfir land og þjóð...að ég tali nú ekki um "land-ráðamenn" þjóðarinnar !!!!
Anna Grétarsdóttir, 25.9.2009 kl. 14:09
"Voru ekki einhverjir að skjóta því að okkur að maðurinn væri veikur...????"
Almenningur getur ekki dæmt svona og svona ummæli um fólk opinberlega eiga engan rétt á sér.
Hann var flottur og rökfastur í dag í Silfri Egils líka.
Elle_, 27.9.2009 kl. 19:44
Vil taka það fram, Anna, að ég veit þú varst ekki að halda þessu fram sjálf.
Elle_, 27.9.2009 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.