31.10.2009 | 14:53
Framlenging píslanna !
Tryggvi Þór Herbertsson var gestur á fjölmennum fundi Sjálfstæðismanna í Kópavogi nú í dag. Tryggvi fór yfir stöðu mála í þjóðfélaginu og horfur á komandi ári.
Margt kom fram í máli Tryggva um áhrif stórfelldra fyrirhugaðra skattahækkana ríkisstjórnarinnar á þjóðarbúskapinn á komandi ári. Tryggvi taldi einboðið að þær fyrirætlanir myndu hafa mikil áhrif í þá átt að lengja leið þjóðarinnar út úr þeim öldudal sem hún er í.
Tryggvi nefndi sem dæmi, að ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra að tefja fyrir álveri á Bakka, sem Alcoa ætlaði að byggja eftir sömu teikningum og með sömu vinnubúðum og notaðar voru við fyrra álverið hefðu leitt til þess að fyrirtækið byggði álver í Saudi Arabíu sem er knúið af jarðgasi í stað vistvænnar orku Íslands. Álverið þar losaði 500.000 tonn af CO2 árlega. Til viðbótar losaði orkuverið önnur 500.000 tonn þannig að nettó framlag Þórunnar Sveinbjarnardóttur til umhverfismál heimsins væru aukaleg hálfmilljón tonna af gróðurhúsalofti. (Fundarmenn reiknuðu hver fyrir sig í hljóði hvað tjón Íslands væri orðið af þessum eina ráðherra til viðbótar.)
Tryggvi rakti skattlagningaráform ríkisstjórnarinnar. Í fjárlögunum væri gert ráð fyrir 1 krónu skatti á hvert kílówatt í landinu. Þessi áform hefðu þegar orðið til þess, að Alcoa hefði slegið áformaða bræðslukerjaverksmiðju útaf borðinu . En sú stálsmíði hefði getað fært Íslendingum um sjötíu störf beint auk öðru eins í afleiddum störfum. Tryggvi benti á hversu varhugavert sé að þrengja að atvinnulífinu með aukinni skattheimtu á tímum atvinnuleysis eins og nú. Sjálfstæðismenn væru búnir að leggja fram beinar tillögur um aðrar leiðir sem yrðu farsælla að fara en að herða skattheimtu á fyrirtæki og heimilin í landinu. Skattheimtu sem myndi virka þveröfugt við ætluð áhrif.
Tryggvi fór yfir skuldastöðu Íslands , sem kom fundargestum þægilega á óvart. Út hefur verið gefið að Íslendingar skuldi 310 % af vergri landsframleiðslu, VF, erlendis.Af þessu hefði ríkisstjórnin þungar áhyggjur og fleiri aðilar.En væri þetta svona ?
Fyrirtækið Actavis skuldar Deutsche Bank 70 af þessum 310 %.Þetta fyrirtæki er komið í eigu bankans og kemur ríkisskuldum Íslands ekkert við.
40 af þessum 310% eru erlendar skuldir íslenzkra eignarhaldsfélaga, sem eru skuldheimtumönnum tapaðar þar sem félögin geta ekki borgað. Kemur Íslandi ekkert við.
Álverin skulda 30-40 af þessum 310 %. Ekki eru þetta erlendar skuldir Íslendinga.
30 eru skuldir íslenzkra einkafyrirtækja, ekki ríkisins.
Gjaldeyrislán ríkisins væru með peningalegar eignir á móti, menn ættu innistæðu á tékkareikningi fyrir stórum hluta lánanna.
Þegar allt væri talið næmu nettóskuldir íslenzka ríkisins ekki nema um einni VF, sem væri með því besta sem þekktist.
Tryggvi rifjaði upp orð Geirs Haarde þegar hann sagði að leið Íslands útúr kreppunni væri að framleiða,framleiða og framleiða. Það væri sú leið sem fara ætti. 10 % bensínhækkanir, 30 % hækkun tekjuskatta, breikkun skattstofns hækkun virðisaukaskatts þýddi bara hækkun, fyrst á lægri flokkana eins og matvælin, osfrv.
Tryggvi sagði tillögur um flatan niðurskurð vera billega leið stjórnmálamanna til þess að koma sér hjá því að taka á vandamálum. Menn yrðu að segja hvað þeir vildu og gera það.
Tryggvi var einlægur í því að skýra frá störfum sínum sem efnahagsrágjafi ríkisstjórnar Geirs Haarde. Hann sagðist ánægður með hvernig tiltókst með að halda greiðslumiðlunarkerfinu og starfsemi yfirtekinna bankanna gangandi. Hann dró ekki dul á hversvegna hann hætti störfum skyndilega. Hann sagðist hafa óttast dómínó-áhrif af yfirtöku Glitnis á bankakerfið og vildi fara öðruvísi að því máli. Á hann var ekki hlustað og hann sagði af sér. Eftirleikinn þekkja allir.
Tryggvi lauk lofsorði á dugnað Steingríms J. Sigfússonar við að axla þær byrðar sem á hann eru lagðar. Hann sagði Steingrím ekki vera mesta vandamálið í stjórnmálum um þessar mundir....
Hér lætur lætur bloggari niður falla frásögnina af þessum ágæta fundi sjálfstæðismanna.Hann vonar að hann verði ekki ásakaður um trúnaðarbrot og verði rekinn úr flokknum fyrir að miðla upplýsingum í óleyfi. En honum finnst að þetta þurfi að ræða og að skýr hugsun Tryggva þurfi að koma fram.
Hann fullyrðir því að út af fundinum fór hann með bjartari trú á möguleika Íslands til að bjargast út úr erfiðleikunum.l Hversu löng þrautaganga þjóðarinnar verður ræðst að mestu leyti af því hvernig við sjálf berum okkur til.
Því miður trúi ég því sjálfur, að leið skattahækkana og alltof mikils samdráttar í ríkisútgjöldum muni lengja þessa leið. Íslenzka krónan veitir okkur tækifæri til þess að leysa tímabundin vandamál með seðlaprentun og verðbólgu. Það gætum við ekki með annarri mynt. Það er engin lausn í því að segja upp opinberum starfsmönnum á þessum tímum til að setja þá á atvinnuleysisbætur ef þeir geta ekki flutt úr landi. Það er ekki hægt að loka spítölum við núverandi aðstæður í heilbrigðismálum. Það er hinsvegar hægt að loka sendiráðum og hætta margri annarri vitleysu. En ekkert afgerandi sem dugar við þessar skelfilegu aðstæður sem við erum núna í.
Lausnin sé í því fólgin núna er að reka ríkissjóð með halla eins og Ronald Reagan gerði, enda af íslenzkum ættum, meðan við erum að koma atvinnulífinu á lappirnar til þess að framleiða, framleiða og framleiða. Við eigum núna að stórauka fiskveiðiheimildir, við eigum að að hraða orkuframkvæmdum og einhverri stóriðju til dæmis í Straumsvík og Helguvík meðan við hugsum okkur um hvað við gerum á Bakka.
Það versta sem við gerum er að fara leið kratanna og kommúnistanna með að drepa allt athafnalíf og heimili niður með aukinni skattheimtu og samdrætti.
Skattastefna ríkisstjórnarinnar framlengir píslir vorar !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Tryggvi þór talar mannamál.
Birgir Viðar Halldórsson, 31.10.2009 kl. 15:23
Þú blæst lífsneista í þjóðina, Halldór, alla vega í þá sem lesa þennan pistil þinn.....
Ómar Bjarki Smárason, 31.10.2009 kl. 16:35
Já svartnættið minnkar við lesturinn...
Kristinn Pétursson, 31.10.2009 kl. 17:26
Takk fyrir góðan pistil frændi.
Leiðin út úr kreppunni er að vinna, framleiða og selja. Meira en áður. Það þýðir auðvitað lengri vinnudag en undanfarið, en það er jákvætt svo lengi sem menn nenna að vinna. Þannig greiða menn líka meira til samfélagsins af hærri tekjum.
Hækkun tekjuskatts hefur aftur á móti þau áhrif að menn spyrja sig hvort það sé þess viði að leggja meiri vinnu á sig ef meirihluti yfirvinnunnar fer í að greiða skatt. Ekkert meira kemur í ríkiskassann fyrir bragðið...
Ágúst H Bjarnason, 31.10.2009 kl. 18:36
Ekki gleyma tomotunum. Storauka grodurhusaraekt, fyrir USA markad
Björn Emilsson, 31.10.2009 kl. 20:59
Þakkir....skyldulesning....
Sigurjón Benediktsson, 1.11.2009 kl. 04:46
Við getum bara vonað að Steingrímur og Jóhanna lesi þetta líka....
hætti þá um leið að hræða þjóðina með ósönnum tölum um skuldir þjóðarbúsins...það þarf að kenna þeim grundvallaratriði í reikningi ef þetta nær ekki eyrum þeirra. Rök þeirra um komandi skattahækkanir og niðurskurð miðast við 310% skuld af vergri þjóðarframleiðslu en ekki eina verga þjóðarframleiðslu.
Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 12:34
Hvað segirðu Björn, á ekki Kaninn tómatsósu í það endalausa ?
Takk fyrir góð orð öll hin. Ég held að okkur vanti fleiri menn eins og Tryggva. Hann sagði raunar ekkert um Icesave en yfirlýsing Lilju Mósesardóttur kom mér þægilega á óvart. Nú er ég spenntur heyra hvort hringlar í handjárnunum á Ögmundi og Guðfríði Lilju.
Halldór Jónsson, 1.11.2009 kl. 19:16
Nýfundnaland ætti að taka vel á móti sossum.
Því gildir svo um í Seðlabankakerfi EU að einstökum þjóðarseðlabönkum er bannað að verðrýra mið gengi síns gjaldmiðils samkvæmt hinum merkilegu alræðis stjórnskipunarlögum EU.
Ástæðan er gefin upp slík bólga myndi leiða til mikillar spennu [í kauphöllum viðkomandi: fjárfesta fyrir lítið], nokkuð sem er ekki líðandi í innri samkeppni meðlima ríkja og væntanlegra að öllum líkindum líka.
Aftur á móti eru hernaðarlegar millistigs peningamálastefnur unnar í samráði við hæfan meirihluta með samþykki og/eða frumkvæði.
Ég ráðlegg Íslendingum að vinna markvisst að losa sig undan alræði Brussel framtíðarinnar. Leggja áherslu á að endurvinna og framleiða sem mest sjálfir fyrir samfélagi sem hefur sökum fámennis og tækniframfara síðustu áratuga efni á að leggja almenna áhærslu á gæði en ekki magn. Minnka hluta stjórnsýslu og fjármálatengdra geira í heildar innri þjóðarframleiðslu nota vaxta og skatt sparnað sem skapast í innri þágu uppbyggingar sem flestra einstaklinga til varanlegrar ábyrgðar í eigin rekstri.
Góð prótín fiskur og kjöt er leið að góðri almennri heilsu og langri ævi leyndarmál ráðandi forréttinda stéttar heimsins í þúsundir ára. Hveiti og sojabaunir, hrísgrjón, maís, sveppir og hafrar einir sér auka vissulaga þjóðarframleiðslu hlut heilbrigðisgeirans sem og Schengen hluti fangelsis og dómsmála iðnaðar.
Hugaður maður leikur sér ekki að stökkva yfir hyldýpissprungu en ef nauðsyn krefur þá miðar hann langt fram yfir hina brúnina.
Ábyrgir byggja ekki fullyrðingar sem enda á: svo hlýtur að vera á orðum eins og ef, ég held, ég er ekki framsýn [forsjál], í minni trú og öðru slíku þegar alvöru efnahagsmál eru til umræðu það er grunnforsendur.
Svo þarf að setja alla ríkisstafsmenn á föst laun óháð vinnutíma. Reka þá umsvifalaust ef þeir uppfylla ekki velskilgreindar starfsskyldur. Græða á atvinnuleysinu meðan jarðvegur er undirbúinn fyrir hámarksvirðisauka fyrirtæki.
Júlíus Björnsson, 2.11.2009 kl. 03:54
Efla islenska framleidslu. Besta hraefni sem til er. Enginn myndi lata ser til munns McDonalds junk, ef vissi um upprunann. Gerd var rannskokn a heilbrigdi McDonalds junks, ungur madur settur til prufu, ad eta eingongu tetta junk. Eftir 21 dags at, vard ad flytja tennan unga mann farveikan a sjukrahus. Veitingahus kvarta saran ad fa ekki lengur 5 punda islenska ysu fra United Groceries. Hafi einhver ahuga ad hjalpa til ta skirfadu linu til undirritads.
Afsakid skrfitina, tessi talva sklur ekki islensku.
Björn Emilsson, 2.11.2009 kl. 23:38
Blessadur Halldor
Aldrei of mikid af tomotum. Eg held ad menn geri ser enga grein fyrir staerd markadins i USA og dreifingakefinu. Risarnir eru ad gleypa allt, kemur ser to vel ennta med laegra voruverdi. Graenmetissala fra islenskum grodurhusum kynntum med alvera rafmagni, gaeti orugglega ordi einn staersti atvinnuvegur landsmanna. Tala nu ekki um utflutning a lambakjoti, ad haetti Ny Sjalendinga.. og svo ma lengi telja. Adferdin er ad lata folkid i fridi og lofa moennum ad fast vid verkefnin, an afskipta rikisvalds og skattheimtu
Björn Emilsson, 2.11.2009 kl. 23:50
Frábært sér hæfa sig í gæðamörkuðum með luxus prótín. 20.000 hávirðisauka smáframleiðslur út um allan heim. Landamæri þar sem stimpilinn kostar 50.000 kr.
Sumir kaupa sér faramiða til tunglsins. Vistvæn paradís fyrir þá sem hafa efni á því er ódýrari í rekstri en Schengen.
Júlíus Björnsson, 3.11.2009 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.