.....Og fyrst lág skólagjöld eru efst í huga ungra Evrópusinna, mætti í því samhengi rifja upp að Ísland myndi alltaf borga meira til samneyslu og styrkjakerfis ESB en það fengi frá ESB, væri Ísland þar inni. Þetta er vegna þess að framlög miðast við þjóðartekjur á mann - og á Íslandi eru þær langt yfir meðallagi innan ESB. .....
Hversu miklu þurftum við að fórna fyrir inngönguna í »fyrirheitna landið« sem Eiríkur Bergmann og félagar lofuðu okkur? Fiskurinn í sjónum er ekki lengur okkar - heldur kvóti í eigu sjómanna í Bretlandi, Portúgal, Spáni og víðar, allar landbúnaðarvörur koma aðsendar frá Evrópu því það eru engir bændur á Íslandi lengur, Alþingi er að mestu leyti valdalaust og við erum ennþá að bíða eftir evrunni þar sem við uppfyllum ekki ennþá Maastricht-skilyrðin. Og hvað fengum við í staðinn?
Unga fólkið greiðir lægri skólagjöld en áður en það skiptir engu máli því það fær enga vinnu. Atvinnuleysið er 8,3%, tvöfalt hærra hjá ungu fólki en samt er það undir meðaltali innan Evrópusambandsins. Við eigum þrjú atkvæði af 350 í ráðherraráðinu sem er innan við 1% og 5 atkvæði af 750 á Evrópuþinginu í Brussel sem er um 0,6% atkvæða. Við erum langminnsta ríkið í Evrópufjölskyldunni - en við erum ekki einu sinni litli bróðir heldur bara litli puttinn á litla bróður.Við hugsum kannski oft til þess hvernig það væri að vera komin út úr sambandinu en leiðin þangað út er svo torveld og löng að við nennum því ekki. Að auki hefur ríki sem segir sig úr sambandinu enga milliríkjasamninga og það tekur mörg ár að koma þeim á aftur. Við einfaldlega þorum ekki.
Hver er svo staðan í dag? Það er staðreynd að fjöldi ungs fólks íhugar landflótta - ef það er ekki farið nú þegar. Með öðrum orðum er gríðarlegur spekileki yfirvofandi. Ef þetta burðuga unga fólk flýr land í unnvörpum er okkur mikill vandi á höndum.Til eru stjórnmálamenn - æðstu ráðamenn þessa lands - sem halda því fram að aðild að Evrópusambandinu sé lausnin á vandamálum okkar og muni tryggja að unga fólkið haldist heima. Þeir ýta undir ýmsar mýtur sem eiga sér litla stoð í raunveruleikanum.
Þeir vilja halda því fram að Ísland muni ná góðum samningum við sambandið - að viðræðurnar verði bara eins og hlaðborð sem hægt er að velja girnilegustu réttina og sleppa hinum. Í sögu ESB hefur engin þjóð hlotið heiðursaðild að bandalaginu nema kannski gamla Kola- og stálbandalagið (sem við tilheyrum að sjálfsögðu ekki).Engin smáríki hafa fengið að beygja, hvað þá brjóta reglur ESB og það er óskhyggja að halda að Ísland fengi varanlegar undanþágur frá sameiginlegu fiskveiðistefnunni, landbúnaðarstefnunni, tollastefnunni eða öðru reglugerðafargani. Það verður ekki samið - ESB er heilsteyptur pakki sem þjóðir taka við í heild sinni eða sleppa með öllu.
Ástæðurnar fyrir því að ganga ekki í ESB eru svo margar og veigamiklar að hvorki evrurökin, lág skólagjöld né loforð jafnaðarmanna um ódýrar kjúklingabringur duga til að réttlæta aðild.Erum við virkilega tilbúin að fórna fullveldinu, fæðuöryggi, samningsfrelsi og umráðum yfir auðlindunum fyrir þetta ? Ég á mjög bágt með að trúa því.
Ef það er einlægur ásetningur ráðamanna okkar að ganga inn í Evrópusambandið, myndi ég heldur vilja vera níræð en nítján ára svo ég þyrfti að horfa sem styst upp á Ísland sem sjávarþorp í Evrópu.Framundan er löng og ströng barátta. Lýðræðislega kjörnir fulltrúar okkar kusu að sækja um aðild að Evrópusambandinu, þvert á þjóðarvilja; við töpuðum kannski orrustunni en stríðið en ennþá í fullum gangi. Sjáum nú til þess að þjóðin kjósi rétt loksins þegar samningurinn verður lagður fyrir hana. Það gerum við með upplýstri umræðu því vel upplýst þjóð kýs gegn ESB-aðild. Gerum það fyrir unga fólkið og komandi kynslóðir því það eru þau sem erfa landið."
Maður fyllist von um að þjóðin eigi möguleika á að átta sig á Vefurum Keisarans í Samfylkingunni þegar maður les svona skrif frá ungri konu. Við hinir eldri, sem eigum að geta áttað okkur á sögulegu samhengi Evrópusögunnar sjáum í hendi okkar hvert stefnir með Evrópusambandið. Það fer um það eins og breska heimsveldið, það deyr innanfrá.
Látum ekki kratana blekkja okkur með fagurgala. Við erum ríkasta þjóð í Evrópu ef rétt er á haldið og eyðileggjum það ekki eins og margar Evrópuþjóðirnar hafa gert með óhóflegum innflutningi óskylds fólks.
V.Kratahjalið er bull og blekking. Eins og Birna Björg segir er langt í Evruna hjá okkur fyrr en við erum búin að borga Icesave fyrir Steingrím. Hver vill skipta sínu fé núna á 300 krónum fyrir Evru ef það væri í boði ? Og ef ekki nún, þá hvenær? Og á hvaða gengi ?
Við Íslendingar eigum langtum meiri möguleika einir og sér heldur en verða nýlenda Þýskalands
Ég hef reynt að fá undirtektir við það að almennum stofnfjáreigendum í BYR verði veitt lán til að kaupa aukið stofnfé í BYR á sömu kjörum og VBS og Saga Capital fengu til að redda sér. Þá gætu stofnfjáreigendur hugsanlega safnað liði til að styrkja BYR án aðkomu ríkisins. En auðvitað eru þeir hremmdir eftir síðustu orrustur og ófúsir til nýrra átaka eins og sveitungar Þórðar kakala urðu. Vandamálið í BYR er hinsvegar hvernig stórir óprúttnir aðilar hafa traðkað á sparisjóðahugsjóninni og notað illa fengin völd sín til að ræna BYR og rupla með þeim afleiðingum að hann situr stórskaddaður eftir. Og það sem verra er að þeir krókarnir fá að valsa ennþá með völdin þrátt fyrir tengsli sín við fjársvik af miklu umfangi. Ætli ríkissjóður hugsi sér að þeim verði afhentir 11 milljarðar og þeir fái bara áfram að leika lausum hala, sparisjóðsstjórinn, endurskoðandinn og allt það? Af hverju ekki að setja þarna inn alvöru bankamann sem fólk getur treyst ?
Þó að ríkisbankarnir séu löngu búnir að hirða stofnfjárbréfin í BYR af stórlöxunum í veðköllum þá halda þeir áfram með atkvæðisrétti sína eins og ekkert hafi í skorist og greiða sjálfsagt atkvæði á næsta fundi samkvæmt því. Litlu mennirnir eru að verða uppgefnir á þessu ástandi þó að þeir hafi haldið áfram að veita viðnám í Exeter málinu og jafnvel uppskorið hótanir um lögreglukærur frá lögfræðingi gangsteranna fyrir.
Stofnfjáreigendur eiga sér sparisjóðahugsjónina fyrir draum. Þeir vilja að BYR lifi. En þeir vilja tryggja að krókarnir yfirgefi musterið svo að fyrirtækið verði hafið upp yfir allan vafa og verði heiðarlegt og trúverðugt fyrirtæki aftur. En það er eins og að Steingrímur J. hafi ekki neinn áhuga á öðru en ríkisvæðingu eða lokun. Annað skilur hann auðvitað ekki. Því er ekki mikil von til þess að BYR verði endurreistur til þess hlutverks sem hann átti að vera, banki og vinur fólksins sem átti hann, ekki spilaborð víxlaranna í musterinu. Það þarf að stinga út.
Þá getur BYR átt framtíð.