Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2013

Ómerkilegt

áróðursbragð blasir við þegar kratakonan Sigríður Dögg Auðunsdóttir tekur óvenjulegt viðtal við formann Framsóknarflokksins og reynir að búa til skoðanir hans í ýmsum málum sem henta Samfylkingunni betur en það sem maðurinn segir.

Á vefsíðu Sigmundar Davíðs standa m.a. þessar athugasemdir:

"... 

Þegar viðtalið svo birtist í blaðinu kom hins vegar í ljós að ekkert hafði verið leiðrétt. Enn voru hafðir eftir mér hlutir sem ég kannaðist ekkert við. Það sem var hins vegar merkilegra var að viðtalið hafði lengst til mikilla muna og snerist að miklu leyti um hugrenningar blaðamannsins og skoðanir hans á þeim hlutum sem ég hafði nefnt (eða átti að hafa nefnt). Sums staðar er jafnvel óljóst hvar verið er að vitna í mig og hvar blaðamaðurinn vitnar í sjálfan sig. Loks var bætt við alls konar rangfærslum um mig og annað fólk. Viðtalið var eins og bent var á í frétt á Vísi „í óvenjulegri kantinum“.
 

Icesavemálið var eitt af því sem blaðamaðurinn velti fyrir sér án þess að spyrja mig út í það. Þar var bæði málinu sjálfu og afstöðu minni snúið á haus. Blaðamaðurinn virtist telja að vegna þess að þrotabú Landsbankans myndi standa straum af greiðslunum hefði ekkert tjón orðið af Icesave-samningunum þótt þeir hefðu verið samþykktir. Einnig var því haldið fram að ég hefði ekki áttað mig á þessu með þrotabúið. Þarna þótti mér nokkuð langt seilst í ljósi þess að allt frá því að ég fór fyrst í viðtal um Icesavemálið, áður en ég hóf þátttöku í stjórnmálum, hef ég haldið því fram að þrotabúið ætti að standa undir greiðslunum. Kostnaður ríkisins lá hins vegar fyrst og fremst í vöxtunum (þrotabúið hefði ekki bætt þá) eins og flestir landsmenn hafa gert sér grein fyrir eftir hátt í 20.000 fréttir um málið.  ..."

Er maður ekki hissa yfir þeim aðferðum sem þessi blaðakona beitir í þágu sjónarmiða hennar  eigin flokks Samfylkingarinnar, þegar hún beinlínis hagræðir skoðunum formanns stærsta stjórnmálaflokks þjóðarinnar sem er á annarri skoðun? 

Er ekki  ástæða fyrir alla sem í stjórnmálum eru að vara sig á þessari manneskju sem er uppvís að slíkum vinnubrögðum. Hefur hún kannski tekið mörg svo mörg  viðtöl við frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins að svo fer sem fer? 

Maður er eiginlega mest hissa að nú er DV blásaklaust. 

 


Leiðtogi

ourleader

í mynd Sigmundar Davíðs er hugsanlega að skrá nafn sitt svo um munar á spjöld íslenskrar stjórnmálasögu.Flokkur hann mælist nálægt hreinum meirihluta í nýjustu skoðanakönnun.

Það er greinilega þung undiralda í íslenskum stjórnmálum. Við þessir kaffibollaspekingar, sem höfum verið að velta þessu og hinu fyrir okkur höfum ekki verið að skynja þessa öldu öðruvísi en grun eða tilfinningu, sem við höfum vísað á bug og geyst okkur jafnvel á móti. En hlutirnir sem eiga að standa í biflíunni og við eigum að trúa eru kannski endilega svoleiðis eins og hann "Sportin´ Life" sagði í Porgy og Bess. 

Ég hef ekki dregið dul á marga rimmur sem ég hef háð við góða vini mína í vetur sem leið. Það var sama hvað ég tefldi fram ágæti manna og þeirra góðu kosti, mér var oftar en ekki vísað frá með þeim orðum að traust væri einnota fyrirbrigði. Sá sem brygðist því einu sinni ætti oft  langan veg fyrir höndum.

Svo hvað hefur breyst?

Fjósalyktin sem áður fylgdi Framsóknarflokknum er horfin. Það er ekki hægt að velta þeim uppúr landbúnaðarmálunum og styrkjunum lengur. Það eru komið nýtt fólk og glæsilegt sem segist leita skynsamlegra leiða út út erfiðleikunum á félagshyggjugrunni.

Er eitthvað að óttast þó að gengi þessa flokks vaxi og vaxi? Er þetta fólk eitthvað hræðilegt? Er þetta fólk ekki nálægt okkur Sjálfstæðismönnum í mörgum skoðunum? Höfum við ekki starfað með þeim í áratugi hérna í Kópavogi? Eigum við að vera föst í gömlum klisjum og fordómum? 

Þeir Framsóknarmenn leggja nú sín stefnumál á borðið. Og við getum ekki fullyrt að þau gangi ekki upp því að þau sýnast bara gera það þegar grannt er skoðað.

Framsóknarflokkurinn hefur hreinan og staðfastan skjöld í Icesave málinu. Það hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki. Heldur ekki í mörgum öðrum miður góðum málum.  Framsóknarflokkurinn sleppur sjálfur vel út úr  hrunmálunum og afskriftum þó einstaka flokksmenn standi uppi sem óæskilegir pappírar á hvaða mælikvarða sem er. Flokkurinn sjálfur hefur einfaldlega unnið sér traust með staðfestu og skýrum skilaboðum.

Þetta eru þessvegna ekki ekki alslæm tíðindi. Kjósendur eru búnir að átta sig á að síðasta Alþingi var einskis megnugt vegna flokkadrátta og sundurlyndis. Smáflokkabrot og hrossakaup leysa einskis manns vanda, hvað þá heillar þjóðar.  Fari fram sem nú stefnir þá hillir undir þá möguleika að samheldið Alþingi geti komið fram aðkallandi málum en kraðakinu, sérstöðu misviturra einstaklinga og sérvisku allskonar verði komið á undanhald.

Og það sem er kannski enn mikilvægast. Að siðferði verði smám saman endurreist í þjóðfélaginu.  Einstökum hópum verði ekki heimiluð siðlaus sjálftaka á kaupaukum og fjármunum eins og Svisslendingar stöðvuðu hjá sér nýverið. Subbuskapur í opinberri stjórnsýslu taki einhvern enda. Fólk er búið að fá nóg af græðginni og spillingunni sem hefur grassérað frá hruni. Það saknar tíma heiðarlegra stjórnmálamanna af gamla skólanum. Fólkið vill almenna siðbót í opinberu lífi. Það vill fólk  en ekki pappírspésa og sífellda potara.

Vonandi munu góður leiðtogi  færa okkar þjóð það sem hún þarfnast mest: Framsókn til fyllra lífs, friðar til athafna og frelsis einstaklinganna.


Grunnspurningar um Norðurljós

EN ÞÚ ? pólitíkin aftur í beinni úr sjónvarpssal.

Litlu framboðin virðast  andsetin af því að jafna um gúlana á einhverjum svo að einhver annar fái fyrir ferðina. Glæpamennirnir og drullusokkarnir missi spæni úr öskum sínum

Ef ég spyrði þig hvað þér finnst vanta mest í samfélagið hverju muntu savara:

Meiri atvinnu

Minni atvinnu 

Meiri Fjárfestingar í nýjum atvinnufyrirtækjum

Minni fjárfestingar 

Skattalækkanir

Skattahækkanir

Meiri innflutning fólks

Meiri búferlaflutningur Íslendinga

Nýja stjórnarskrá

Enga nýja stjórnarskrá

Meiri virkjanir

Minni virkjanir

Stjórnarskrá nýja eða óbreytta  

ESB og evru að kýpverskri fyrirmynd?(Eru þeir ekki 3x fleiri en við?) 

Hvernig er hægt að ná þínum áherslum fram?

Með fleiri framboðum?

Með færri framboðum?

Með útrýmingu meinsemdarinnar sem kallast Sjálfstæðisflokkur?

Þarf ekki 32 atkvæði á Alþingi til að koma máli fram?

Hvort er auðveldara að ná samstöðu í tveimur flokkum eða 12 flokkum?

Af hverju eru stórir flokkar vondir? 

Af hverju eru Norðurljós fallegri en rafmagnsljós?

Getur maður ekki kveikt á rafmagnsljósum þegar maður vill? 

Af hverju þá ekki á Norðurljósum? 


 


Hvað má bjóða þér

elsku vinur. Það er ekkert sem við viljum ekki gera fyrir þig. Okkur þykir svo æðislega vænt um þig.

Skrítið að við skyldum ekki muna eftir því í gær.

regnbogar

  En þú mátt treysta á okkur. Manstu ekki hverju Hreyfingin, Frjálslyndir, Bandalag Jafnaðarmanna, Borgaraflokkurinn,Þjóðavarnarflokkurinn, Þráinn Bertelsson, Lilja Mósesdóttir gerbreyttu stöðunni á sínum tíma og færðu okkur björg í bú. Nefndu hvaða verð þú vilt fá fyrir atkvæð'ið þitt og við tvöföldum það.


Fáránlegri röð fjórtán manns

er stillt upp í ríkissjónvarpinu til að ræða vandamál íslensku þjóðarinnar. Af orðræðu þessari eiga íslenskir kjósendur að mynda sér skoðun tlil að greiða atkvæði.

Þarna eru í hæsta lagi fjórir eða fimm þáttakendur líklegir til þess að koma að einhverri ákvarðanatöku eftir kosningar. Það hefði verið nóg að hafa einn fulltrúa frá hverjum fjórflokksins og svo einn frá Guðmundi Steingríms. Hitt fólkið á þarna ekkert erindi og er eiginlega bara þarna að skjóta gömlum klisjum úr Útvarpi Sögu og blogginu sín á milli. Hryllingssögur um blankheit og bankabakarí einstaklinga eiga ekkert erindi í svona útvarp.

Af hverju fáum við ekki að heyra Bjarna Ben spyrja Sigmund Davíð um hvernig hann ætli að útvega aura í skuldaniðurfellinguna?  Hvernig þeir ætli að auka atvinnuna, lækka skattana og stöðva landflóttann?

Það er þetta sem fólk þarf að heyra. Hvað er raunverulega áætlun alvöruflokkanna um þessi grundvallarmál eftir kosningar.

Pétur á Sögu, Þorvaldur Gylfason, velmeinandi húsmæður eða enhverjir Piratar munu ekki koma að ríkisstjórnarborði eftir kosningar.Ergo þurfum við ekki að eyða tíma í að hlusta á þetta fólk í þessari fáranlegu fjórtánmanna röð. 


Kosningaloforð VG

eru glæsileg að vanda.

Nýr formaður lofar 60 milljörðum í spítalana.Nýjum milljörðum væntanlega til viðbótar hinum sem fyrir voru. Eða er trikkið falið þar innan í?

Auðvitað trúum við öll loforðum VG. Hafa þau ekki reynst pottþétt til þessa? Ekki förum við að kjósa Sjálfstæðísflokkinn þegar svona nokkuð er í boði hjá Katrínu miklu af Grænuvöllum?

Við lesum því kosningaloforð flokkanna með mikilli eftirvæntingu. Hvað kemur Árni Páll með?

Sá eini sem kemur ekki með neitt er Guðmundur nokkur Steingrímsson. Hann þarf ekki að koma með neitt því fylgið streymir til hans með því að hann þegir sem fastast. Hann er eins og uglan sem situr þögul í tréinu. Allir halda að húns sé svo gáfuð af því hun hefur vit á að þegja.

Ekki VG. 60 milljarðar í fyrsta útspil kosningaloforða VG. 


The Villages

er merkilegt fyrirbrigði. 

Fyrir einhverjum fjórum áratugum horfði maður að nafni Harold Schwartz á lítinn trailerpark í hæðunum í ofanveerðri Flórídu. Hann sá fyrir sér að byggja upp bæ fyrir 55 ára og eldri

Eftirfarandier úr fréttatilkynningu 2003 þegar hann dó. 

"Mr. Schwartz's community transformed the rolling hills where Lake, Sumter and Marion counties meet into a sprawling, 36,000-resident retirement mecca, where hundreds of activity clubs dominate the lifestyle and golf carts are the main mode of transportation.

His statue stands guard in The Villages' Town Square. A sculpted arm outstretched in a gesture of welcome reminds visitors of Mr. Schwartz's dream -- to create a full-service community like Del Webb's Sun City developments, where older people could leave behind rocking chairs and crochet projects in favor of cycling clubs, computer classes and line dancing.

"His plan worked really well," said Max Pullen, a Lady Lake town commissioner who represents a district in The Villages. "He was the inspiration behind this community. A lot of people enjoy the lifestyle he envisioned."

Mr. Schwartz, whose development business has been run increasingly by his family since the 1980s, lived to see dozens of shops, a hospital, four schools, a television station, radio station and newspaper dot the landscape in The Villages, which heralds itself as "Florida's Friendliest Home Town."

"He had a dream, and it was a great dream," said Joe Kobar, who moved to The Villages two years ago from Pennsylvania.

"He was like everybody's neighbor," Reed said. "I don't know anybody who didn't respect him or didn't think he was great."

("Samfélag Mr Schwartz
umbreytti hæðunum  þar sem Lake Sumter og Marion sýslur mætast og þar flatmaga, 36.000 eftirlaunaþegar í  Mekka, þar sem hundrað klúbba starfsemi ríkir í lífsstíl og golfkerran er helsta samgöngutækið.


Stytta hans stendur vörð í Square Town þorpi með útréttan  handlegg með látbragði sem segir velkomin. Hún  minnir gesti á draumi Mr Schwartz sem var að skapa fulla-samfélagsþjónustu eins Del Webb er í Sun City þróun, þar sem eldra fólk gæti kvatt ruggustólana og krikett klúbba og tekið þátt í lífandi klúbbum hjólreiða, tölvufræða og línu dansa.

"Áætlun hans gekk mjög vel," sagði Max Pullen, a  framkvæmdastjóri 
Lady Lake Towns sem er eitt þorpið"Hann var innblásturinn að baki þessu samfélagi. Fjöldi fólks nýtur  lífsstíls sem hann sá fyrir sér."

Mr Schwartz, en fyrirtæki sem hann  hefur rekið í auknum mæli með fjölskyldu sinni síðan 1980,lifði það  sjá bæ með fjöldann allan af verslunum, sjúkrahús, fjórum skólum, sjónvarpsstöð, útvarpsstöð og dagblað punkta landslagið í þorpum, sem kynnir sig sem  "Vingjarnlegasti heimabær  Flórída ."

"Hann dreymdi draum, og það var mikill draumur," sagði Joe Kobar, sem flutti til þorpanna fyrir tveimur árum frá Pennsylvania.

"Hann var allra nágranni ," segir Reed . "Ég veit ekki um neinn  sem ekki virðir hann eða heldur ekki að hann hafi verið frábær.")

Það er ekki hægt að lýsa þessu fyrirbrigði The Villages í orðum eftir að hafa keyrt um hluta af þessum 100 000 manna bæ, með miðbæ,torg, hljómleikahús,verslanir golfvelli. Þar sem hægt er að kaupa sér einbýlishús fyrir 15 milljónir og upp úr með svipuðum fasteignagjöldum og hér heima. Nema að þessi veröld er svo gersamlega öðruvísi að venjulegur Íslendingur getur varla skilið nema að sjá þetta.

Hvergi í veröldinni getur svona nokkuð gerst nema í Bandaríkjunum. Ég þekki nokkuð til hjá sveitalubbunum í Evrópu í ESB og ég er sannfærður um að þetta gerist ekki þar. Bandaríkin eru gersamlega öðruvísi á svo margan hátt en Evrópa: Þessvegna finnst mér gersamlega fjarstætt að múlbinda Ísland í því bandalagi þó að hjörtum manna svipi saman. 

 Þarna býr fullt af Íslendingum hluta úr ári. Ég hitti hinsvegar einn sem er búinn að vera þarna í 10 ár. Hann vill selja húsið sitt á rúmar 20 milljónir því hann segist ekki getað borgað auðlegðarskattinn hans Steingríms öðruvísi.

Það er nöpurleg staðreynd á Íslandi að ellibelgur sem ekkert á nema húsið sitt og hefur bara ellilaun verður að selja það til að geta borgað skattinn. Þessi maður sagðist ekki vorkenna sér að selja til þessa, hann væri Íslendingur sem legði ekki á flótta frá þjóð sinni í vanda. En allmargir vel stæðir landar  hafa flutt frá landinu til að forða sér og eignum sínum undan Skattmann. En það er líka ekki ntóm sæla að eiga hús í Florida og vita það að barnabörnin geta ekki komið í heimsóknir að marki vegna kostnaðar og skóla en  hér er víst illa líft á sumrin vegna hita.

En í Villages eiga Schwartz-fjölskyldan miðbæinn með tónleikahúsum. Þar söng Þorsteinn Helgi Árbjörnsson um daginn fallegt verk sem sjá má undir eftirfarandi snertlu: 

http://www.youtube.com/watch?v=ghfXuhZTW8c 

Mér finnst þetta góð músík og vona að þið njótið.

The Villages eru ævintýri sem bara á sér stað í Bandaríkjunum. 


Förum við í fýlu?

Sjálfstæðismenn eftir kosningar ef kjósendur hafna okkur í kosningunum? Það eru margir að velta þessu fyrir sér.

Munum við segja:Þið kusuð okkur ekki, við verðum ekki í stjórn heldur spillum því sem við getum?

Hvaða framtíð í stjórnmálum ætla þeir  flokksmenn að eiga sem láta slíkt heyrast? Gætu þeir ekki alveg eins hætt strax og kosið Framsókn?

Stjórnmál eru list hins mögulega. Sjálfstæðisflokkurinn er ábyrgur flokkur sem mun vinna þjóðinni það gagn sem hann má óháð útkomu kosninga. Það verður aðeins erfiðara verk en ekki ókleyft.

Flokkurinn fer ekki niður öðruvísi en með flaggið við hún! Sjálfstæðisstefnan er óbreytt. Hún er ofar mönnum og muldri.

Einstakir menn koma og einstakir menn fara. Sjálfstæðisflokkurinn fer ekki neitt meðan Ísland er byggt Íslendingum.

Gjör rétt, þol ei órétt! Það breytist ekki í einum kosningum af þeim tugum sem flokkurinn hefur háð.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlast til þess að hver flokksmaður geri skyldu sína.

Flokkurinn fer ekki í fýlu! 


Treystirðu ekki Sjálfstæðisflokknum?

til að standa vörð um sjálfstæði Íslands?

Er það virkkilega svo að þú efist svo um staðfestu flokksins og landsfundarsamþykktir að þú teljir Framsóknarflokknum betur treystandi til þeirra verka?

Telurðu að gömul skrif Bjarna og Illuga um ESB aðild verði tekin framyfir landsfundarstefnu flokksins?

Treystirðu ekki orðum Sjálfstæðisflokksins um :

-að minnka atvinnuleysið 

-að lækka bensínverðið

-að afnema auðlegðarskattinn

-að  lækka tryggingagjaldið

-að hafa eitt skattþrep í staðgreiðslu

-að lækka virðisaukaskatt 

Treystirðu Framsóknarflokknum betur til þeirra verka? 


Ætlarðu að taka sjensinn?

á því að kjósa Framsókn en ekki Sjálfstæðisflokkinn í trausti þess að þessir tveir flokkar starfi saman eftir kosningar?

Ætlarðu að taka sjensinn að Eygló Harðardóttir, Guðni Ágústsson og tíumínútnaformaðurinn Höskuldur styðji það eftir stórsigur í kosningunum að fara í stjórn með Íhaldinu?

Hvað skiptir mestu máli fyrir þig að breytist við kosningarnar?

1.      1. Að skattarnir lækki?

2.      2. Að bensínið lækki?

3.      3. Að atvinna aukist?

Tekurðu sjens á því að Framsókn velji það endilega að vinna með Sjálfstæðisflokknum?

Tekurðu sjens á því að Sjálfstæðismenn kæri sig um að fara í stjórn með Framsókn sem fimmta varahjól undir sigurvagni og lárviðarkórónu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar af Kögun?

Ég myndi ekki vera svo viss um það.

Ég er búinn að heyra það oftar en ég vil muna, að menn segjast ekki geta kosið Sjálfstæðisflokkinn meðan þetta fólk sé þarna í forystunni, Bjarni, Illugi, Gulli og Jónmundur. Þeir verði að fara strax. 

Munuð þið þá kjósa flokkinn?

Ja, hérna ekki endilega.  Nei, það þarf svo að laga stefnuna til , halda áfram viðræðunum ið ESB, hlusta á Þorsein Pálsson og Margréti Krismannsdóttur,  osfrv. osfrv. Það eru ótal spekingar allstaðar sem hafa meira vit á því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn eigi að líta út heldur en þeir Sjálfstæðismenn sjálfir sem voru að baslast með að sitja landsfundinn og taka þátt í prófkjörum flokksins.

Ég þarf ekki að hlusta á þessa fortíðarstýringu meira. Þetta er ekki á dagskrá fyrir þessar kosningar innan þriggja vikna. Vangaveltur hérum eru fáránlegar útfrá almennri skynsemi einni. 

Ætlia menn það virkilega að Sjálfstæðisflokkurinn hafi gott af smá hirtingu í kosningunum, þeir kjósi hann kannski næst og blablabla ?

Snýst málið  um þetta?  Snýst málið  um þessar upptöldu persónur? Eða snýst það um næstu framtíð þjóðarinnar eftir kosningar? 

Snýst þetta ekki heldur um framtíð þjóðarinnar? Snýst þetta ekki um upptalninguna í liðunum þremur hér að ofan? Er einhver trygging fyrir því að þeir fái framgang verði Sjálfstæðisflokkurinn ekki í stjórn?  Viljið þið virkilega taka sjensinn á óbreyttri stefnu í fjögur ár í viðbót?

Framsókn og Sigmundur Davíð settu þá stjórn á stofn sem nú er að kveðja. Það var bara það að stjórnarflokkarnir tveir fengu svo mikið fylgi óvænt, að þeir skildu Framsókn eftir úti í kuldanum.

Á sú gamla og hugsanlega fýla bara að verða vogarafl í stjórnarmyndun með sömu flokkum?

Á að verðlauna Sigmund Davíð fyrir þá gerð? Það er haft eftir einum forkólfi Framsóknarflokksins þegar hann var beðinn að skýra skuldaniðurfærsluna, að hún myndi hafa í för með sér svona 2-3 % hærri skatta í næstu 40 ár.

Er það þetta sem þjóðina vantar?

Ætlum við að taka sjensinn á því að sökkva enn dýpra með því að útiloka Sjálfstæðisflokkinn? 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband