Bloggfærslur mánaðarins, desember 2014
31.12.2014 | 16:43
Ólafur Thors
flutti þennan ræðubút árið 1936. Meira segja ég er ekki fæddur þegar þetta varð. Ég þakka honum Gulla fyrir að setja hann á facebook.
http://www.borgarskjalasafn.is/Portaldata/21/Resources/Oli_Thors/Hljodfaelar/02_Track_2.mp3
Holl upprifjun fyrir okkur í dag að heyra við hvað Ólafur Thors var að hugsa 1936.
31.12.2014 | 16:07
Fleiri hælisleitendur hingað?
má spyrja ef draga á alyktanir af þróun í kring um okkur?
Í Morgunblaðinu á mánudaginn er þessi frásögn:
"Nýrri hreyfingu gegn íslömskum áhrifum hefur vaxið fiskur um hrygg í Þýskalandi upp á síðkastið. Undanfarnar tíu vikur hafa farið fram mótmæli á hverjum mánudegi á vegum hreyfingarinnar og hefur þátttakendum fjölgað jafnt og þétt. 22. desember mótmæltu 17 þúsund í Dresden í austurhluta Þýskalands og var það mesta þátttakan frá upphafi.
Hreyfingin nefnist »Evrópskir föðurlandsvinir gegn íslamsvæðingu Vesturlanda« eða PEGIDA. Hún var stofnuð í október í Dresden, höfuðborg Saxlands. Hlutfall íbúa þar af erlendum uppruna er 2,2%. Þátttakan í mótmælum samtakanna hefur verið mun meiri í austurhluta landsins en vesturhlutanum, þar sem aðeins nokkur hundruð manns hafa tekið þátt í mótmælum.
Í stefnuskrá samtakanna, sem birt var fyrr í mánuðinum, segir að um sé að ræða grasrótarhreyfingu, sem hafði það markmið að vernda kristileg gildi. Hvatt er til umburðarlyndis gagnvart múslimum, sem hafi »aðlagast«, um leið og lýst er yfir andstöðu við »kvenhatur og ofbeldi í hugmyndafræði« íslamista. Þar er spjótum beint gegn »lygnum fjölmiðlum«, »pólitískum valdastéttum« og »fjölmenningarhyggju«.
Andstæðingar samtakanna segja að þau noti lítt dulbúinn málflutning nýnasista og gagnrýna þau fyrir að kynda undir andúð á útlendingum einmitt þegar hælisleitendur horfi vonaraugum til Þýskalands og landið sé komið í annað sæti á eftir Bandaríkjunum af þeim löndum, sem fólk helst vilja flytja til.
Aukin þátttaka í mótmælum Pegida hefur vakið sterk viðbrögð stjórnvalda. Joachim Gauck, forseti Þýskalands, sem var prestur í AusturÞýskalandi fyrir fall Berlínarmúrsins og studdi baráttuna fyrir lýðræði, notaði tækifærið í árlegu jólaávarpi sínu til að skora á fólk að sýna umhyggju og vera opið gagnvart hælisleitendum. »Að við bregðumst af samúð við neyðinni í kringum okkur, að flest okkar skuli ekki fylgja þeim, sem vilja loka Þýskalandi, það er sú reynsla frá þessu ári, sem er mér hvatning,« sagði Gauck.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, varaði Þjóðverja við því fyrr í mánuðinum að falla fyrir lýðskrumi útlendingahaturs.
Wolfgang Schäuble fjármálaráðherra sakaði hina pólitísku stétt á miðvikudag um að hafa brugðist og látið fólk fá á tilfinninguna að hagsmunir þess væru vanræktir. Um leið þyrftu stjórnmálamenn að verja gildi lýðveldisins, sem reis úr rústum seinni heimsstyrjaldar, þar á meðal með því að sýna hælisleitendum rausnarskap.
»Hvers konar fólk værum við ef við, með okkar velmegun, vísuðum flóttamönnum burt,« sagði hann í viðtali við dagblaðið <ská>Rheinische Post.
Pegida hefur einnig fengið hörð viðbrögð úr atvinnulífinu. Ulrich Grillo, forseti Samtaka iðnaðarins í Þýskalandi, sagði að samtökin græfu undan hagsmunum og gildum landsins.
»Við höfum lengi verið þjóð innflytjenda og verðum að vera það áfram,« sagði Grillo við þýsku fréttaþjónustuna DPA. »Sem velmegandi land og einnig af kristilegum náungakærleika ætti land okkar að taka á móti fleiri flóttamönnum.«"
Í Morgunblaðinu í gær stendur svo:
"Stjórnarflokkarnir tveir og mið- og hægriflokkarnir fjórir, sem voru við völd í Svíþjóð á síðasta kjörtímabili, hafa náð samkomulagi um samstarf á þingi landsins til að auðveldara verði fyrir minnihlutasjórn að halda völdunum. Samkomulagið felur ennfremur í sér að ekki verður efnt til aukaþingkosninga 22. mars eins og Stefan Löfven forsætisráðherra hafði boðað eftir að Svíþjóðardemókratarnir felldu fjárlagafrumvarp minnihlutastjórnar Jafnaðarmannaflokksins og Umhverfisflokksins fyrr í mánuðinum.
Meginmarkmiðið með samkomulaginu er að einangra frekar Svíþjóðardemókratana og draga úr áhrifum flokksins eftir að hann komst í oddastöðu á þinginu í kosningum í september. Hann varð þá þriðji stærsti flokkur landsins, með tæpra 13% fylgi, eftir að hafa lagt áherslu á andstöðu við stefnu sænskra stjórnvalda í innflytjendamálum. Skoðanakannanir benda til þess að fylgi flokksins myndi aukast um nokkur prósentustig til viðbótar ef kosið væri nú.
Camilla Sandström, lektor í stjórnmálafræði við Umeå-háskóla, segir að með samkomulaginu hafi flokkarnir sex komið í veg fyrir aukakosningar sem hefðu að miklu leyti snúist um innflytjendamálin. »Við hefðum talað mikið um innflytjendamálin út frá forsendum Svíþjóðardemókratanna ef boðað hefði verið til aukaþingkosninga,« segir Sandström. Hún telur þó að flokkarnir komist ekki hjá því að ræða innflytjendamálin þótt hætt hafi verið við aukakosningar.
Leiðtogar flokkanna kynntu samkomulagið á laugardaginn var og það á að gilda til ársins 2022. Á þeim tíma skuldbinda flokkarnir sig til að greiða ekki atkvæði gegn fjárlagafrumvörpum minnihlutastjórnarinnar, þannig að hún þurfi ekki að reiða sig á stuðning Svíþjóðardemókratanna. Þeir lofa því einnig að starfa saman í varnar-, lífeyris- og orkumálum.
»Það er svolítið undarlegt að innflytjendamálin skuli ekki vera hluti af samkomulaginu. Það er mjög brýnt að við ræðum þau mál,« hefur fréttaveitan <ská>AFP eftir Sandström.
Hælisumsóknum hefur fjölgað mjög í Svíþjóð á síðustu árum og fjölgunin er einkum rakin til þess að stjórn mið- og hægriflokkanna ákvað á síðasta kjörtímabili að veita öllum hælisleitendum frá Sýrlandi dvalarleyfi í Svíþjóð. Flestir umsækjendurnir eru flóttamenn frá Sýrlandi en hælisleitendum frá Erítreu hefur einnig fjölgað. Árið 2012 voru hælisumsóknirnar um 44.000, árið eftir 55.000 og í ár er gert ráð fyrir að þær verði 83.000. Talið er að umsóknunum fjölgi í rúm 100.000 á næsta ári.
Flestir Svíar eru stoltir af aðstoð þeirra við flóttafólk frá stríðshrjáðum löndum og Fredrik Reinfeldt, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi Hægriflokksins, hefur sagt að landið hafi alla burði til að taka við svo mörgum flóttamönnum. Margir hafa hins vegar kvartað yfir því að Svíar hafi ekki rætt nægilega hvernig taka eigi á afleiðingum þessarar miklu fjölgunar innflytjenda.
Elin Wihlborg, prófessor í stjórnmálafræði við Linköping-háskóla, spáir mikilli umræðu um innflytjendamálin fyrir næstu kosningar árið 2018, meðal annars vegna vandamála sveitarfélaga sem hafa kvartað yfir því að fjölgun innflytjenda hafi stuðlað að miklum húsnæðisskorti."
Það hefur yfirleitt ekki tekið isma og stefnur langan tíma til að komast yfir hafið frá Svíþjóð. Líklega 5 ára háskólanám Íslendings til BA prófs og svo 5 ár til að ná öllum völdum á Íslandi. Þannig kom Mengið og eyðilagði stærðfræðiþekkingu kynslóða Íslendinga. Svo blöndun í bekkina osfrv. Nú er spurning hver stefnan verður í fjölgun hælisleitenda þegar krataflokkarnir hinu megin hafsins hafa sett línurnar. En við ÍSlendingar erum þorskinum fremri sem bara gleypir krókinn en ekki bæði sökkuna og línuna.
Svo ef Svíþjóð ætlar að taka á móti 100.000 hælisleitendum frá Sýrlandi og Eritreu á nsta ári, þá megum við búast við að fá 3.5 % af þeirri tölu í okkar hlut eða 10 á dag. Er það þetta sem í boði verður?.
Ég hef ekki heyrt neinar skýringar á því hvað það er sem ákvarðar fjölda hælisleitenda. Hvort það sé einhver stöðluð þörf eða bara einstaklingsbundin framtakssemi. Við tökum engan þátt í að ákvarða töluna. Þegar borgarastyrjöld fer fram eins og í Sýrlandi og Bandaríkjunum, er það þá einstaklingsins að ákverða hvort hann tekur þátt í henni eða gerr eitthvað annað? Hver einstakur hælisleitandi tekur venjulega fram að hann sé ofsóttur í heimalandinu. Þýðir það að hann sé svo mikill andófsmaður, á borð við Che Guevara eða Ghandi að yfirvöldin vilji fyrir hver mun hafa hendur í hári hans? Hreinn afburða einstaklingur? Eða vilji bara fá meira að éta og helst frítt?
Það er fallegt að lesa hvað þeir eru góðir þarna í Þýskalandi og þykir vænt um hælisleitendur. Var ekki í fréttum að nokkur hundruð séu á reki í Miðjarðarhafinu og bíði eftir því að varðskipið Týr bjargi þeim? Framboðið er líklega nægt?
Hvernig ætlum við að taka á þessu? Má ég ekki hafa aðra skoðun en þær sem koma fram í fréttunum? Má ég ekki hafa skoðun sem segir núll hælisleitendur? Má ég ekki hafa þá skoðun að taka uppp vegabréfaskyldu inn í landið og öllum öðrum sé snúið við? Er ég þá umsvifalaust nasisti, rasisti og allsherjar fíbjakk?
Af hverju má ég ekki vera á móti fjölmenningu á Íslandi?
Má Pegida starfa á Íslandi eða Sveinbjörg í borgarstjórn? Ég hélt að ég mætti hafa skoðanir á fjölda hælisleitenda?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.12.2014 | 13:49
Kerfið
ver sig og virðist ósigrandi.
Svo segir í Morgunblaðinu:
"Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar og einn fulltrúa í hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar, segir Samtök atvinnulífsins hafa greint þróunina í ríkisfjármálum frá efnahagshruninu rétt. Vikið er að þeirri þróun í grein hér fyrir ofan.
»Það hefur ekkert gengið í niðurskurðinum. Kerfið ver sig. Það er einfaldlega þannig. Það hefur reynst torvelt að fara í niðurskurð á ýmsum sviðum vegna þess að kerfið ver sig. Við höfum reynt að skera niður en reynslan hefur verið sú að undirstofnanir ríkisins verja sig með kjafti og klóm.«
Þannig að það er þín upplifun að það hafi ekki verið hagrætt sem neinu nemur í ríkisrekstrinum?
»Nei, raunverulega ekki. Ég hef starfað í hagræðingarhópnum. Þar hefur ekki verið farið í margar tillögur til beins niðurskurðar, hagræðingar og sameiningar stofnana vegna þess að kerfið ver sjálft sig og notar fjölmiðla óspart til að mynda samúð með viðkomandi stofnun.«
- Hafið þið ekki pólitískt afl til að fara í slíkar aðgerðir?
»Jú, jú. Þetta snýst ekki um pólitík. Ég get tekið undir með Samtökum atvinnulífsins. Við hefðum getað farið í hraðari skattalækkanir ef ekki hefði verið fyrir þessa andstöðu.«
- Stuðningsmenn núverandi ríkisstjórnar bundu margir vonir við störf hagræðingarhópsins. Áttu við að kerfið hafi hindrað að þið næðuð fram þeirri hagræðingu í ríkisrekstri sem þið vonuðust sjálf eftir?
»Já, kerfið ver sig. Hver og einn sér um sig. Það eru því miklar hindranir á veginum og það er erfitt að snúa þróuninni í kerfinu við. Því sem er einu sinni búið að koma á er erfitt að taka til baka. Það er enginn tilbúinn að gefa eftir. Þrátt fyrir hið augljósa markmið um sparnað og ráðdeild í ríkisrekstri er það alltaf svo að þegar komið er að ákveðnum stofnunum, eða ákveðinni ákvarðanatöku, er sagt; »Nei, þetta eru mikilvægustu stofnanirnar. Við megum ekki skera hér niður«. Þetta er það sem ég upplifi.«
Þannig að það hefur lítið verið hagrætt í ríkiskerfinu frá hruni?
»Nei, nánast ekki neitt, miðað við tækifærin okkar og væntingar almennings til slíkra verka.«
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar, segir að »ganga þurfi miklu lengra í því að hagræða og spara í ríkisrekstrinum«. »Ég óska eftir stuðningi frá aðilum vinnumarkaðarins í því efni. Hann er fyrst og fremst í orði en ekki á borði,« segir Guðlaugur Þór.
»Ég get tekið undir þessa greiningu Samtaka atvinnulífsins. Það þarf að forgangsraða meira í ríkisrekstrinum og hagræða. Það er alger nauðsyn. Við erum að horfa á þrjá stóra útgjaldaflokka sem við þurfum að ná niður; vaxtagreiðslur ríkissjóðs, lífeyrisskuldbindingar og síðan þurfum við að forgangsraða vegna þess að aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast. Það mun kalla á aukna eftirspurn eftir t.d. heilbrigðisþjónustu. Ég kalla eftir bandamönnum við þessa forgangsröðun.«
Spurður um dæmi um leiðir til hagræðingar bendir Guðlaugur Þór á að Íbúðalánasjóður þurfi 5,3 milljarða framlag frá ríkinu í ár vegna tapreksturs. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi bent á að hægt sé að hætta þeim útgjöldum með því að loka sjóðnum. Hann hafi ekki orðið var við að aðilar vinnumarkaðarins séu fylgjandi því að loka sjóðnum.
Annað dæmi sé að mikið sé rætt um nauðsyn þess að taka á vandanum í lífeyrismálum, jafna réttindi almennra og opinberra starfsmanna og lengja lífeyrisaldurinn, og annað slíkt, án þess að nokkuð gerist. »Þegar á hólminn er komið virðast menn ekki tilbúnir í það og það er mál sem ekki gerist án atbeina vinnumarkaðarins.«"
Þá hafa menn það. Pólitíska valdið er máttlaust gagnvart ófreskjunni Medúsu sem ný höfuð vaxa á sé eitt af hoggið. Eins og krabbamein sem skorið er burt til þess eins að meinvarpið framleiðir ný æxli.
Sællar minningar eu áformin um að flytja Fiskistofu. Þetta apparat sem stofnað var í tíð Þorsteins Pálssonar og var ekki til áður, er orðið 80 manna apparat með sjálfstæðan vilja og tilveru. Það neitar að láta flytja sig norður og dreissugir starfsmennirnir neita að fara.Embættismenn ríkisins sem hafa skammtað sér verðtryggð lífeyrisréttindi eins og ráðherrar neita að hlýða og þar við situr.
Hefur honum Gulla ekki dottið í hug að loka bara sjoppunni í Kópavogi og færa ástandið til A.D. Þorsteinn?
Er þetta lýðræðið á Íslandi í dag? Eru hér þingkosningar um grundvallarmál?
Segja vitnisburðir þessara rösku þingmanna okkur ekki allt sem þarf? Er Báknið á sjálfstýringu og vöxtur þess og viðhald sem ólæknandi krabbamein?
Kerfið bara ver sig og lætur ekki að stjórn Alþingis.
28.12.2014 | 20:28
100 á dag
af saklausu fólki er ca skammturinn af saklausu blóði sem muslímar drepa á dag af einum eða öðrum ástæðum einhversstaðar í veröldinni. Á Facebook birti einhver yfirlit með nákvæmum dagsetningum og fjölda slátraðra á dag og hvar það fer fram í hverju tilviki.
Er hægt að halda uppi þeim ræðum að þetta séu jafnrétthá trúarbrögð öðrum á Íslandi? Að þau skuli njóta opinberrar verndar, tillitssemi og fjárstyrks? Heyrist eitthvað af mótmælum múslima á Íslandi við framferði trúbræðranna um víða veröld?
Mér nægja alveg þessar fréttir til að vilja ekki sjá svona lið hingað og ekkert sem því tengist.Bara út með það.
28.12.2014 | 11:56
Kjaradeilur eru óleysanlegar
hvað sem reynt er.Sama hvort um er að ræða lækna eða aðra. Þó að læknar segist vera 15 % undir hækkunum annarra opinberra starfsmanna, þá er ljóst að aðrir opinberir starfsmenn muni ekki ætla sér að fá minna en læknar. Sömuleiðis aðrar heilbrigðisstéttir og aðrir opinberir starfsmenn svo sem kennarar og flugumferðarstjórar.
Á að búa við stöðug keðjuverkföll áfram? Hvað á að gera? Hefur einhver lausn?
Hvernig væri að ákveða 30 % kauphækkun yfir línuna og hætta þessu þrasi? Til dæmis 15 % stytting vinuuvikunnar og 15 % kauphækkun að hætti Ólafs Jóh? Leysir það ekki vandamál lækna sem annarra? Eina skilyrðið verður undirritun friðarskyldu næstu tvö ár.
Við vitum öll hvað um er að ræða þegar kjaradeilur eru leystar á þennan hátt. En höfum við eitthvað um að velja? 0% verðbólga og raunkjarabætur vegna verðhjöðnunar er líka ólíðandi. Við viljum ekkert svona.Læknaforystan heimtar aukinn kaupmátt fyrir sig og stöðugt gengi líka. Þýðir eitthvað að rökræða við þessi stéttarfélög?
Ef stjórnvöld ekki stjórna þá gera það aðrir. Kjarakerfi landsmanna eru óstöðugt vegna kerfisvillu. Þessvegna eru kjaradeilur eins og við læknana og aðra óleysanlegar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2014 | 11:26
Orður og titlar úrelt þing
eins og dæmin sanna;
notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikanna.
því illa brennir undan sér
ómaklegur heiður.
Járnið skaltu hamra heitt,
að hika er sama og tapa.
Finni hann laufblað fölnað eitt
þá fordæmir hann skóginn.
27.12.2014 | 13:31
Rignir meira á réttláta?
en rangláta?
Maður veltir því fyrir sér hvort rigni meira Breiðholtsmegin eða Kópavogsmegin í Vatnsenda. Það er svo mikil ófærðin annarsvegar á þessu svæði að sorpbílarnir komast ekki leiðar sinnar öðrumegin við aðskilnaðaralínuna. Manni heyrist að kvartanir verið háværari þeim megin þó maður hafi ekki heyrt neitt nægilega glögglega hinumegin. Heyrðist kannski ekkert öðrumegin um ófærð vegna snjókomu þó að þetta sé gæti verið sama veðursvæðið? Er það ekki sama sagan um stærð leikfanganna sem skilur sveinstaulana frá mönnunum?
Svo geta pólitískar skoðanir líklega verið öðruvísi öðrumegin en hinumnmegin og flokkaskipting því öðruvísi. Kann ekki hundurinn að liggja grafinn þarna sem skýrir mismunandi snjókomu á svæðunum sem aftur veldur því að aðrir eru kvartsárari en hinir þó að Tómas segi að hjörtum mannanna svipi saman í Súdan og í Grímsnesinu? Svo er kvartað sáran undan Pírataskorti öðrumegin sem getur auðvitað haft sín áhrif hinumegin? Og svo afstaða stjörnumerkjanna kannski? Getur ekki minna en það haft áhrif á almemnan sorpvilja beggja megin línu?
Þetta er kannski styrkhæft rannsóknaverkefni fyrir mannréttindaráð hvar sem þau finnast hvort rignir pólitískt meira á....?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.12.2014 | 13:33
Biskupan brást við
afsiðunaráróðrinum gegn skólum og kirkju. Hún virðist átta sig á því blessunin að 62. grein stjórnarskrárinnar er í fullu gildi og sömuleiðis ákvæðið í grunnskólalögunum sem mælir fyrir um gagnkvæmar skyldur þessara stofnana.
Það er komið meira en nóg af að leffla stöðugt fyrir þessu minnihlutafólki eins og mér þegar yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar, stjórnarskráin og landslög eru annarsvegar. Okkur er heldur ekki eins leitt og við kannski látum.
Það er ánægjulegt að Biskupan bregst við og tekur af skarið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
25.12.2014 | 17:21
Missum við Makrílinn?
okkar í vetur? Vill einhver kaupa makríl nema Rússarnir?
Geta þeir ekki borgað í olíu? Ætli nokkur vilji Gaz eða Volgu? Margir vilja áreiðanlega kaupa Kalashnikov. Eða listflugvélar? Rússar geta margt fyrir okkur gert ef einhverjir forretningsmenn vildu athuga málið. Skulum við vanmeta þeirra iðnað og getu?
Megum við því að missa kannski Makrílvertíðina?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.12.2014 | 15:57
Lífeyrissjóðirnir
juku eignir sínar úr 2600 milljörðum í 2785 milljarða á síðustu 12 mánuðum wða um 10 % að nafnvirði.Raunávöxtun er þó aðeins 4.3 %.
Ríkið er í miklum vanda. Það hefur ekki fé til að greiða niður lán eða standa undir endurbótum í heilbrigðismálum. Af hverju er ríkið eða við að geyma fjármuni okkar í lífeyrissjóðunum á 4.3 % raunávöxtun? Getur ekki alveg eins orðið tap hjá þessum forstjórum alþýðunnar?
Af 2785 milljörðum á ríkið eftir að taka til sín fullar skattgreiðslur af útgreiðslu lífeyris. Hversu mikið er þarna ósótt? Eigum við að giska á 1000 milljarða?. Af hverju erum við eða ríkið að bíða og lepja dauðann úr skel? Vantar okkur ekki þetta fé núna?
Ef ríkið sækir 10 milljarða af sínu fé á næstu 10 mánuðum þá gæti margt breyst. Miklum fjárfestingarvanda yrði velt af forstjórunum.
En er þetta óhætt? Er þetta pólitískt mögulegt? Myndu hagsmunahóparnir og verkalýðsrekendurinir ekki telja þetta eign sína? Myndu þeir leyfa að ríkið geti farið með þetta fé í þágu heildarinnar? Greitt niður skuldir, keypt lækningatæki eða reist hjúkrunarheimili? Myndu þeir ekki heimta þetta til sín? Fara í verkföll eins löng og þurfa þykir, semja svo um að fá öllum kröfum fullnægt og fá verkfallstímann greiddan að fullu á nýja taxtanum?
Er eitthvert pólitískt afl í landinu sem getur fengist við ofurmátt lífeyrissjóðanna?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko