Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2017

Aðeins góður gæji

með byssu getur stöðvað vondan gæja með byssu. Sýndi sig í Las Vegas og víðar. Morðingar með ásetning finna sér alltaf leiðir til drepa saklaust fólk.

Hysterískar vinstri kellingar komu veg fyrir það í gæsku sinni að íslensk lögregla mætti þiggja hundrað góðar hríðskotabyssur að gjöf. Þeirra aðstaða er þar með verri fyrir bragðið ef til stykkisins kemur.Og þessar kellingar hafa hugsunarlaust stefnt þessum góðu gæjum okkar í stórhættu með sínu atferli.

Fíflarí þessa fólks er með endemum og sorglegt að horfa á hvernig þetta gat gerst. Getur sett okkar fólk í stórhættu vegna vanbúnaðar. Vonandi eru Thompsonarnir frá Agnars-tímanum ennþá smurðir og tilbúnir.

Þetta góða fólk byrjar alltaf að bulla um að taka byssur af heiðarlegu fólki þegar svona hræðilegir atburðir gerast.

Sjáið gengin í Kaupmannahöfn? Eru þau kannski með byssuleyfi þegar þau skjóta vikulega á hvert annað? Eða hælisleitendurnir í Malmö? Maður var myrtur með sporjárni hundrað metra frá þeim stað þar sem ég svaf á mitt græna.Á kannski að innkalla öll sporjárn? Fleiri en einn maður hafa verið drepnir með skærum og jafnvel endurtekið af sama drápara hér á Íslandi. Hnífar eru úti um allt. Illskan ríður ekki við einteyming hvar sem er í veröldinni.Hún beinist alltaf að þeim saklausu en ekki illmennunum sem eru svo yfirleitt meðhöndlaðir með silkihönskum og félagslegum skilningi.

Almenningur er yfirleitt varnarlaus. Því miður.  Vopn er yfirleitt auðvelt fyrir brjálæðinga að útvega. Hversu vondur er vondi gæjinn og  hvað er góði gæjinn langt undan þegar ógæfan dynur yfir?  

 

 

 


Opnum landamærin!

segir góða fólkið. 

Frændi minn Guðmundur Andri Thorsson skrifa í Fréttablaðið í dag um nauðsyn þess að opna landamæti Íslands fyrir neyð heimsins. Hann segir svo í niðurlagi greinar sinnar:

"... Fólk sem sér vegalaus börn sem hingað berast – og telur hugsanlega ógn sem kann að stafa frá einhverjum hugsanlegum óprúttnum aðilum eiga að ráða málsmeðferð okkar þegar kemur að vanda þessara barna – það lokar augunum fyrir því að við erum ekki að uppfylla þarfir þessara barna, eins og okkur ber.

Það lokar augunum fyrir því að þó að börn séu send eitthvað annað þá hætta þau ekki að vera til. Neyð þeirra hverfur ekki. En hún gæti minnkað nytu þessi börn skjóls hér á landi.

Börn á flótta eru í senn sérlega aðkallandi vandi og óþægilegur að horfast í augu við. Þau eru milljónum saman um allan heim á vergangi, ýmist með fjölskyldum sínum eða hafa orðið viðskila við þær. Þau hrekjast úr einum stað í annan og fá ekki það skjól sem þau þurfa og eiga heimtingu á, samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og samkvæmt því sem umönnunarhvötin býður okkur að veita. Mörg börn eru fædd í flóttamannabúðum og þar með ríkisfangslaus, réttindalaus, eins og það sé sérstaklega refsivert að fæðast í svo ömurlegum aðstæðum.

Stundum er talað um að við getum ekki bjargað heiminum, við hér. Á móti mætti spyrja: Hver annar ætti að gera það en við?"

Þá vitum við hver stefna Samfylkingarinnar er í málefnum Íslands. Þann flokk fyllir með Guðmundi Andra meðal annars Helga Vala Helgadóttir atvinnuhjálpari hælisleitenda hjá Rauða Krossinum sem er komin í framboð fyrir þann flokk.

Nógu mikla samúð. Nógu margar hælisleitendafjölskyldur með börn til Íslands er það sem þetta fólk vill fá til landsins þar sem íslenskir hjartasjúklingar liggja úti í tjöldum í görðum nágranna með sín börn. Er ekki Alþingi nýbuið að auglýsa eftir slíku um víða veröld? Hversu mikið verður nógu mikið?

Opnum landamærin er stefna Samfylkingarinnar.


Má að linni?

segir Oddný Harðardóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Hún skrifar svo í Fréttablaðið í dag:

"Við vitum öll hvað varð tveimur síðustu ríkisstjórnum að falli. Panamaskjölin og Wintrishneykslið sýndu almenningi inn í heim forréttindastéttar þar sem svik og undirferli, skattaundanskot og vafasöm fjármálaumsýsla þykja eðlileg og daglegt brauð. „Það getur verið erfitt að eiga peninga“, sagði maðurinn sem var að reyna að réttlæta ósómann.

Hin síðari féll á leyndarhyggju og margítrekuðum tilraunum til yfirhylmingar óþægilegra staðreynda, jafnvel þótt þær upplýsingar væru nauðsynlegar í bataferli barna og fjölskyldna sem orðið höfðu fyrir óbærilegri lífsreynslu. Traust til beggja ríkisstjórnanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks annars vegar og Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar hins vegar, var í algeru lágmarki þegar þær þurftu að taka pokann sinn.

En var það eingöngu vegna þessara tveggja hneykslismála? Ég held ekki. Traustið var horfið þá þegar vegna langrar slóðar svikinna kosningaloforða. Við í Samfylkingunni viljum að eftir kosningar verði fyrst ráðist í að leysa þann bráðavanda sem blasir við og gera langtímaáætlanir um betra velferðarsamfélag. Taka á húsnæðisvandanum, efla gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu í opinberum rekstri, bæta kjör þeirra sem verst eru settir, styrkja menntakerfið til að taka við nýjum áskorunum ásamt því að laga vegi, efla lögregluna, gera réttlátar breytingar á skattkerfinu, auka stuðning við ungt fólk og barnafjölskyldur og setja sanngjarna auðlindastefnu. Ljúka heildarendurskoðun á stjórnarskrá, virða þjóðaratkvæðagreiðslur, vinna gegn spillingu og efla traust og gagnsæi.

Þetta er allt hægt og við höfum efni á því. Í stuttu máli ætti næsta ríkisstjórn að sameinast um góða efnahagsstjórn og öflugra velferðarkerfi. Miklu sterkara opinbert heilbrigðiskerfi, framsækna skóla fyrir alla ásamt mannsæmandi kjörum aldraðra og öryrkja og vinnumarkaði sem tryggir réttindi og jafnrétti.

Það þarf ríkisstjórn sem vinnur raunverulega að almannahag. Þó að hér hafi verið samsteypustjórnir þá hefur í þeim ávallt verið tryggt að sérhagsmunaöflin sem reka stjórnmálaaflið sem kallast Sjálfstæðisflokkur fari sínu fram og ráðskist með innviði samfélagsins að vild.

Það er mál að linni."

Treystir einhver þessari konu til að innleiða eitthvað nýtt í stjórnmálum stað upptuggu lyga að hatursorðræðu um ranga og afsannaða hluti um Sigmund Davíð og Bjarna Benediktsson?

Hver er boðskapur þessarar vesælu stjórnmálakonu og flokks hennar? Einhver stefna? Eða bara gamalt hatur og emdurteknar  afsannaðar lygar um persónur andstæðinganna?

Það er eiginlega mál að linni eins og hún segir.


Stefnan er skýr

 hvað varðar tekjutengingar ellilífeyris sem fram kom í bréfi formanns Sjálfstæðisflokksins 22.apríl 2013. Þar boðaði formaðurinn að flokkurinn ætlaði að afnema tekjutengingar við lífeyrisgreiðslur.

TEKJUTENGINGAR Getur það orðið skýrara?                                       

Ekki bara vegna hundraðþúsundkalls í atvinnutekjum heldur alveg?

"Við ætlum að afnema tekjutengingar ellilífeyris. Þar er sannarlega um réttlætismál að ræða."

Ef frítekjumarkið hefði fylgt vísitölu þá hefði það verið 190 þúsund kall í dag sem svaraði til 109 þúsunda áður.Auðvitað á að stíga skrefið til fulls og afnema þessar tengingar eins og Bjarni benediktsson boðaði í þessu bréfi sínu frá 2013.

Menn borga bara fullan skatt af tekjum eins og aðrir hvort sem þeir eru gamlir eða ekki.

Auðvitað er það rétt að almannatryggingakerfið er öryggisnet sem á að grípa þá sem ekkert hafa. Við erum ekki að gera neitt sérstakt fyrir þá sem geta aflað sér aukatekna og borga skatta af þeim. Þurfum við eitthvað sérstaklega að gera aukalega fyrir þá sem ekkert hafa nema bæturnar en hafa ekki vinnu nema að hafa kannski sérstakar aukabætur fyrir þá?

Stefnan Sjálfstæðisflokksins er bara kýrskýr hvað þetta atriði vegna tekjutenginga varðar.

 

 


Ranghugmyndir

um stjórnmál birtast mér í einu tilskrifi sem ég fékk. Sá ágæti maður segir svo:

"Það er ekki hægt að kjósa þegar atkvæðið er einungis notað í hagsmunaskyni fyrir flokkanna. Ég vil fá að kjósa minn fulltrúa sem er óháður flokksmaskínum og miðlar mínum skoðunum og annarra sem kusu hann beint. Ekki vera að kenna mér og þeim sem hafna þessu flokksræði um hlutina. Þið bjöllusauðirnir sem fylgja flokksformönnunum eftir í blindni eigið alla sökina á hvernig er komið fyrir lýðræðinu í landinu."

Þetta er alger umsnúningur á hlutunum að mínu viti. 

Einn maður hefur lítil áhrif en margir saman geta meira. Á því byggjast stjórnmálaflokkar.

Sjáflstæðisflokkurinn sem er að mínum dómi eini flokkurinn með heildstæða heimspeki sem grunn. Sjálfstæðisstefnuna sem var skrifuð niður 1929 og hefur aldrei verið breytt síðan.Hún stendur enn óbreytt.

Hann hefur aðeins verið svona stór af því að flokksmenn leggjast á eitt og finna sér samhljóm í stefnunni. Vissulega hefur flokkinn stundum borið af leið vegna þess að forystumönnum mistókst eitthvað og oftar en ekki vegna þess að flokkurinn hefur aldrei verið nema í samstarfi við aðra ólíka flokka sem hafa verri stefnu og sumir miklu verri stefnu eins og til dæmis sást í síðustu ríkisstjórn og yfirlýsingum forystumanna örflokkanna sem þar voru. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei ráðið öllu einn heldur orðið að semja og miðla málum. Ekki hefði hann slitið síðustu ríkisstjórn sjálfur?

Það sem bréfritari segir um flokksformenn er ekki rétt. Við flokksmenn kjósum þá til forystu og reynum að fylgja þeim fram til sigurs. Hann er að segja að forystumenn séu þarna eins og fyrir fyrir einhverja guðlega forsjón eða hafi flokkinn að erfðagóssi? Ekkert er fjarri sannleikanum. Bréfritari líti til dæmis á Framsóknarflokkinn núna.Sýnist honum að flokksmenn fylgi einhverjum í blindni á þeim bænum?

Ef menn hugsa svolítið um sig og samfélagið eins og dr.Kári Stefánsson segir að það sé skylda hvers manns að láta það sig varða og það er rétt hjá honum. Á  ekki hver maður að reyna að koma hlutunum til betri vegar? Á ekki hver maður að reyna að sveigja stefnuna til þess sem honum líkar og leiðrétta aðra frá villu síns vegar? Telja þeim hughvarf með rökum?

Ef flokksmenn eru bara bjöllusauðir þá eru þeir sem engu nenna bara fýlupokar sem heimta að aðrir geri allt fyrir þá. Sá hugsunarháttur á ekki upp á pallborðið hjá Sjálfstæðismönnum sem vilja hjálpa fólki til sjálfshjálpar og vilja eign fyrir alla.

Eiga þeir fýlupokar ekki frekar að skammast sín í stað þess að tala niður til þeirra sem eru þó að reyna að gera eitthvað?

Laga sínar ranghugmyndir um stjórnmál að raunveruleikanum? 


« Fyrri síða

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 3420881

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband