Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2019
3.7.2019 | 15:16
Er Þorgerði treystandi?
og þá fyrir hverju?
Við treystu henni fyrir varaformennsku í Sjálfstæðisflokknum.
Hún sveik okkur og hunzaði lýðræðið.
Nú segist hún vera handhafi traustsins?
Svo segir í Stundinni:
"Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir Sjálfstæðisflokkinn ekki geta borið ábyrgð á framkvæmd EES-samningsins lengur vegna innanflokksátaka. Ritstjórar Morgunblaðsins ýti undir sundrungu í flokknum þegar komi að þriðja orkupakkanum og flokkurinn sé nú klofinn.
Þetta kemur fram í grein Þorgerðar í Fréttablaðinu í dag. Í greininni segir hún ljóst að þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni samþykkja innleiðingu orkupakkans í ágúst, en ný tilefni verði fundin til þess að viðhalda átökunum um EES-samninginn í kjölfarið.
Segir Þorgerður að ritstjórar Morgunblaðsins, þeir Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen, hafi sérstaklega beitt sér gegn Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur ráðherra og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur.
Athyglisvert er að ritstjórarnir hafa kappkostað að lítillækka ritara og varaformann Sjálfstæðisflokksins sem hafa verið öflugir talsmenn innleiðingar og alþjóðasamstarfs, skrifar hún. Þær eru sagðar svo óskýrar í hugsun, ungar og óreyndar að engum hefði á árum áður dottið í hug að fela slíku fólki trúnaðarstörf af þessu tagi.
Þorgerður segir að Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, sé í vandræðum og geti ekki friðað afturhaldsöfl flokksins. Þá spotta og hæða ritstjórarnir formann Sjálfstæðisflokksins með því að benda í sífellu á að hann hafi verið á móti málinu í byrjun en sé því nú fylgjandi af óskiljanlegum ástæðum.
Hvaða mál verður tekið í gíslingu næst?
Loks segir Þorgerður ólíklegt að þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni aftur standast þrýsting baklandsins í hvaða máli sem það verður sem komi á eftir orkupakkamálinu.
Á síðustu öld var Sjálfstæðisflokkurinn óumdeilanlega kjölfestan þegar kom að utanríkispólitík landsins, skrifar hún. Þetta eru því einhver mestu málefnalegu hamskipti sem orðið hafa í einum stjórnmálaflokki.
Kjarni málsins er sá að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ekki og munu ekki á næstu árum hafa nægjanlegan stuðning í baklandinu til þess að geta borið ábyrgð í ríkisstjórn á framkvæmd EES-samningsins. Það sjá allir. Hvaða mál verður tekið í gíslingu næst?
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur treysta Sjálfstæðismenn seint aftur fyrir einu né neinu.
3.7.2019 | 13:49
Evrutrúin
ríður húsum hjá tiltölulega fáum hópi strangtrúarmanna sem geysa sig reglulega um nauðsyn inngöngu i ESB og upptöku Evru.Eru þeir ef tl vill að hugsa meira um eigin skuldastöðu og fyrri gjaldþrot en framtíðarhagsmuni þjóðarinnar?
Gunnar Rögnvaldsson greinir evrumálin svo:
"Bandaríkin (Nýi heimurinn): 2,5 prósent innlánsvextir fyrir fjármálastofnanir (e. federal funds rate). Síðasta ákvörðun tekin 19. júní 2019. Ástand: eðlilegt.
b) Evrusvæðið (Gamli heimurinn, aðallinn og Deutsche Bank, sem er ári eldri en Þýskaland, og hyggst segja upp 20 þúsund manns á næstu 12 mánuðum): -0,4 prósent skattur tekinn af innistæðum fjármálastofnana (e. deposit facility).
Síðasta ákvörðun tekin á 36 tommu snjóþrúgum úti á næfurþunnu peningagólfi evrusvæðis, þann 6. júní 2019. Dósinni sparkað áfram niður götuna til að minnsta kosti á síðari hluta næsta árs, því að lítið sem ekkert gengur með að koma hvorki peningapólitískum markmiðum, efnahagsmálum né peningamálum myntsvæðisins í lífvænlegt horf.
Ástand: mjög óeðlilegt, en þó í samræmi við hinn pólitíska Frankenstein peningamála sem evran er. Hún hefur ekkert með efnahagsmál að gera, því evran er 100 prósent pólitísk mynt."
Það er eðilegt að skuldaþrjótar sjá vaxtaleysi í
hillingum. Evrutrúin er fyrir slíka.
3.7.2019 | 09:07
Mikil er trú þín kona
"Gripið verður til viðamikilla aðgerða til að auka kolefnisbindingu og efla lífríkið hér á landi. Í því skyni á m.a. að tvöfalda umfang landgræðslu og skógræktar og auka endurheimt votlendis.
Ríkið mun vinna að fjölbreyttum verkefnum um allt land í samvinnu við bændur, félagasamtök o.fl. Lögð verður áhersla á vernd lífríkis og endurheimt vistkerfa ásamt mælanlegum loftslagsávinningi.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra í gær. Með því að leggja stóraukna áherslu á kolefnisbindingu getum við um leið dregið verulega úr losun hér á landi og þarna getur Ísland markað sér ákveðna sérstöðu. Við erum ekki aðeins með það að markmiði að uppfylla Parísarsamkomulagið og ákvæði þess heldur líka að Ísland verði kolefnishlutlaust eigi síðar en 2040, sagði Katrín.
Hún benti á að Ísland væri í fararbroddi ásamt öðrum ríkjum sem settu sér það markmið að verða kolefnishlutlaus árið 2040. 2,1 milljarði króna verður varið í þessar aðgerðir næstu fjögur árin.
Þetta er annar af tveimur meginþáttum áætlunar ríkisstjórnarinnar í aðgerðum í loftslagsmálum. Það sem við höfum verið að skoða hér á Íslandi bendir til þess að við getum dregið verulega úr magni kolefnis í loftinu með bindingu. Það er ástæðan fyrir því að við leggjum áherslu á rannsóknirnar meðfram þessu, að við getum sýnt fram á raunverulegan árangur, sagði Katrín.
Ný verkefni í undirbúningi
Lögð verður áhersla á að draga úr losun sem kemur frá landi. Það felst meðal annars í því að moka ofan í skurði og endurheimta þar með votlendi. Það getur líka falist í því að ráðast í landgræðslu- og skógræktaraðgerðir á landi sem losar kolefni. Þannig sláum við tvær flugur í einu höggi; bæði aukum bindinguna og lokað verður fyrir losunina, sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra.
Fé verður sett í rannsóknir og vöktunarverkefni og verkefni sem eru þegar til eins og t.d. Hekluskóga og Bændur græða landið. Við erum líka að búa til ný verkefni í líkingu við Hekluskógaverkefnið. Við ætlum að hjálpa náttúrunni að hjálpa sér sjálf, koma henni af stað, sagði Guðmundur. "
Koldíoxyd hefur ekki verið lægra í lofthjúpi jarðar í 600 milljón ár heldur en núna. Þetta fólk göslast áfram í milljarðabrennslu okkar skattfjár á grundvelli ósannaðra trúarkennisetninga um hamfarahlýnun jarðar af mannavöldum.
3.7.2019 | 08:48
Einbeittur brotavilji
Borgarstjórnarmeirihlutans gegn bílaumferð birtist í framvæmdum við Sæbraut. Það eru miklar framkvæmdir í því skyni að tefja fyrir umferð sem mest má.
"Nú er unnið að því hörðum höndum að endurnýja umferðarljós og göngu- og hjólaleiðir á gatnamótum Snorrabrautar og Sæbrautar í miðbæ Reykjavíkur. Verður þar einnig lýsing bætt á gönguleiðum frá því sem áður var.
Á þessum umferðarþungu gatnamótum hefur í áratugi verið hægt að beygja til austurs á hægribeygjurein og til vesturs á tveimur beygjuakreinum.
Með þessari framkvæmd verður beygjureinin aflögð og beygjuakreinum í vesturátt fækkað um eina. Áfram verður þó hægt að beygja bæði í austur- og vesturátt að framkvæmdum loknum. Þegar ljósmyndari átti leið um svæðið í gær var búið að moka jarðvegi yfir gömlu beygjureinina í austur. khj@mbl.is
Sigurður Jóhannsson ráðherra hefur nýlega lýst því hvernig skipulagsráðstafanir Dags B. og kumpána í þágu vildarvina hafa gert Sundabraut margfalt dýrari en mögulegt var.
Dýr verður Dagur B. allur og hans einbeitti brotavilji gegn greiðari umferð fyrir Höfuðborgarsvæðið áður en yfir lýkur.
2.7.2019 | 17:40
Á almenningur ekki neitt?
í hagnaðinum af Bláa Lóninu?
Kemur ekki vatnið frá almenningi? Skapaði Grímur Sæmundsen Hitaveitu Suðurnesja?
"Hagnaður Bláa lónsins hf. árið 2018 eftir skatta nam rúmlega 3,7 milljörðum króna og var veltan 17,4 milljarðar króna. Þá var eiginfjárhlutfall félagsins 56%. Hluthafar fá greiddan út arð sem nemur 4,2 milljörðum króna, að því er fram kemur í ársskýrslu félagsins.
Hagnaður Bláa lónsins fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 5,6 milljörðum króna. Eignir Bláa lónsins eru skráðar rúmar 22 milljarðar króna og var handbært fé frá rekstri 5,2 milljarðar."
Bláa Lónið er þjóðarstolt. En var það ekki almenningur sem lagði grundvöllinn? Á hann ekkert skilið?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.7.2019 | 07:57
Í ESB og engar refjar
er inntakið í hreinskilinni greinar Óla Antons Bieltved í Mbl.í dag. Lofsvert hvernig hann skrifar Z-una eins og ég vil.
"Í gegnum EESsamninginn komumst við með allar okkar framleiðsluvörur og afurðir frjálslega og að mestu leyti tollalaust inn á stærsta markað heims; ESB/EES, 30 ríki, með vel yfir 500 milljónir íbúa.
Á sama hátt opnaðist okkur að mestu vegabréfalaust frelsi til heimsókna, dvalar og búsetu í öllum þessum löndum, með fullum réttindum til starfa, atvinnu og eigin reksturs. Okkar heimur fimmtánhundruðfaldaðist.
Þökk sé EES-samningnum getum við líka sótt erlenda starfskrafta frá ESB-löndunum til okkar, til að manna og styrkja okkar eigin atvinnuvegi, einkum ferðaþjónustu og byggingariðnað. Lengi virtist það þó hafa verið lenzka hér að hallmæla Evrópu og evru, þó að einmitt aðild okkar að EES og Schengen-samkomulaginu hefði tryggt okkur efnahagslegar framfarir og margvíslegt frelsi langt umfram það, sem áður hafði þekkzt eða ella hefði getað orðið. Sem betur fer hefur orðið mikil breyting á afstöðu flestra til EES/ ESB og Evrópu síðustu misserin.
Upplýst umræða hefur leitt til þess að fleiri og fleiri skilja nú hversu mikilvægur og dýrmætur EESsamningurinn er.
Ef miðað er við afstöðu þingmanna til þriðja orkupakkans, sem í umræðu og afstöðu er orðinn nokkurs konar persónugervingur EESsamningsins, þá virðist yfirgnæfandi meirihluti þeirra vera hlynntur þriðja orkupakkanum enda sjálfsagður hluti af EES-samningnum, eins og frjálsar flugsamgöngur, frjálsir skipaflutningur, frjáls fjarskipti og önnur frjáls og gagnkvæm viðskipti en ætla má, að flestir þessara þingmanna meti EESsamninginn í heild sinni að verðleikum.
Hvað varðar almenning og afstöðu hans þá sýnir nýleg skoðanakönnun Maskínu að 57% landsmanna eru hlynnt eða í meðallagi hlynnt fullri aðild Íslands að ESB. Meta má umfang EES-samningsins með Schengen í núverandi formi sem 80-90% af fullri ESBaðild. Það, sem upp á vantar fulla ESB-aðild, er einkum tvennt: Samkomulag um fiskveiðar við Ísland og stjórn þeirra. Endanlegt samkomulag um landbúnaðarmál. Maltverjar voru um margt í svipaðri stöðu og við gagnvart ESB. Lítil eyþjóð, háð fiskveiðum og ferðaþjónustu. Þegar landið gekk 2003 í ESB, fékk það full yfirráð yfir sínum fiskimiðum og fulla stjórnun fiskveiðilögsögu sinnar á grundvelli sögunnar en þeir höfðu sjálfir og einir farið með þessi yfirráð í gegnum tíðina.
Það sama gildir um fiskveiðilögsögu okkar og fiskimið og virðist það fyrirsjáanlegt og öruggt að við myndum fá sömu góðu úrlausnina fyrir þessi mál og Malta. Við inngöngu Svía og Finna í ESB 1995 fengu þeir líka sérákvæði inn í samninginn fyrir landbúnað sinn, honum til verndar og styrktar, vegna þess, sem nefnt var norræn lega. Ljóst virðist vera að við myndum fá sömu sérkjör fyrir íslenzkan landbúnað við fulla inngöngu.
En hví er full ESB-aðild, í stað 80- 90% aðildar með EES og Schengen nú, svo mikilvæg!?
EES-samningurinn var alltaf hugsaður sem fyrsta skref inn í ESB; til bráðabirgða.
Samningurinn veitir því ekki aðgang að nefndum, ráðum og framkvæmdastjórn ESB; m.ö.o. við undirgengumst það sem átti að vera í bili að taka upp lög, tilskipanir og reglugerðir ESB sem reyndar eru nær allar af hinu góða án þess að hafa nokkuð um þær að segja; án nokkurrar umsagnar eða áhrifa, nánast án nokkurrar fyrirfram hugmyndar um, hvað koma skyldi.
Þetta var og er auðvitað ófært til langframa. EES-samningurinn veitir heldur ekki aðgang að öflugasta og stöðugasta myntkerfi heims, evrunni, sem bæði tryggir lægstu vexti sem völ er á fyrir almenning og atvinnuvegina og stórfellt aukalegt öryggi í formi launa, tekna og eigna, jafnt sem kostnaðar, gjalda og skulda í einni og sömu traustu myntinni. Íhalds- og afdalamenn landsins fullyrða að stóru þjóðirnar ráði öllu í ESB; þó við værum inni myndum við engu ráða. Þetta er enn ein rangfærslan og ósannindaklisjan.
Minnstu þjóðirnar hafa hlutfallslega langmest að segja í ESB. Við fengjum sex þingmenn á Evrópuþingið. Það þýðir 57.000 Íslendinga á bak við hvern þingmann. Þjóðverjar, með sínar 82,4 milljónir íbúa, hafa 96 þingmenn; hjá þeim standa 858 þúsund landsmanna á bak við hvern þingmann.
Danir, sem eru 5,8 milljónir, hafa 14 þingmenn; 414 þúsund Danir standa á bak við hvern þingmann þeirra á Evrópuþinginu. Svona er það í öllu; þess er gætt, að líka þeir minnstu hafi fullan aðgang að áhrifum og völdum. Hver aðildarþjóð, stór eða smá, fær þannig einn ráðherra eða kommissar. Þjóðverjar, Frakkar og Ítalir fá líka bara einn hver. Oft veljast fulltrúar smærri aðildarþjóða til forustu; Jean-Claude Juncker, frá Lúxemborg, næstfámennasta ríki ESB, hefur t.a.m. verið annar valdamesti maður sambandsins síðustu 5 ár.Margrethe Vestager, frá Danmörku, kynni að taka við af honum.
Skandinavar hafa alltaf haft mikið að segja í ESB, enda menn valdir eftir persónuleika og hæfileikum, en ekki eftir stærð þjóða. Hver aðildarþjóð hefur auk þess í raun neitunarvald, þar sem þjóðþing allra nú 28 aðildarríkjanna verða að samþykkja alla meiriháttar samninga, sem ESB gerir, og alla meiriháttar löggjöf eða breytingar á fyrri löggjöf. Loks skal bent á, að ESB er nú með fríverzlunarsamninga við þrjú mikilvæg lönd öfluga markaði með samtals 216 milljónir íbúa; Japan, Suður Kóreu og Kanada en þessir fríverzlunarsamnngar eru ekki með í EES-samkomulaginu.
Full ESB-aðild tryggir þannig í dag frjálsan og tollalausan aðgang að markaði með nær 730 milljónum manna með verulega kaupgetu. Hvernig getum við enn verið að væflast með þetta!?"
Maðurinn er baráttumaður fyrir sínum málstað svo mikið er víst.
Ég er ekki sammála fullyrðingum hans um að við höfum bara fengið það sem við höfum með þessum samningum við EES. Af hverju er það svo víst ?
Er ekki eðli viðskipta beggja hagur?
ESB og EES eru engin forsenda fyrir verslun í allar áttir við stærri heim en ESB eftir Brexit.
1.7.2019 | 07:33
Borgarlína-hvernig?
á hún í hvaða mynd sem er að leysa flutningsþörf Borgarbúa?
Erlendur Magnússon skrifar góða grein í Morgunblaðið í dag. Hann segir m.a.:
"Borgarumferð snýst um miklu meira en flutning fólks til og frá vinnu eða skóla.
Borgarumferð snýst líka um ferðir fólks við innkaup til heimilis, ferðir foreldra með börn til og frá leikskóla, heimsóknir til vina og ættingja, heimsóknir til heilbrigðisþjónustuaðila, ferðir í kvikmyndahús, leikhús og á aðrar skemmtanir o.fl.
Þá snýst hún líka að stórum hluta um flutninga á vörum af ýmsum gerðum og í ýmsum farmstærðum. Almenningsvagnar geta því aðeins sinnt broti af þessari þörf fyrir flutninga og hið sama á við um göngu- og hjólaferðir. Þess vegna skiptir svo miklu máli að almennt umferðarflæði sé greitt innan borgar..."
Hvernig getur nokkur maður samþætt hugmyndir um Borgarlínu í hversu dýrri mynd sem er til að leysa þessi verkefni?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 3420652
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko