Leita í fréttum mbl.is

Þeir eru með okkur

í bóndabeygju múslímarnir.

Við þorum ekki að æmta né skræmta gagnvart yfirgangi þessa fólks. Þeir terróríséra okkur öll.Sjáið ástandið í Malmö? Sjáið atburðina í Köln?

Er þetta ekki að verða sama stemning og áður en Evrópumenn tóku sig saman í andlitinu og fóru í kressferðirnar gegn þessu liði fyrir margt löngu? Einn þýzkur kóngur Barbarossa drukknaði í lækjarsprænu á leiðinni austur, svo mikil þótti nauðsyn á vera eins og Gísli á Sandi sagði við Gizur ódrepinn.

Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður rekur stöðuna í grein í Morgunblaðinu í dag:

"»Fyrir ári réðust íslamistar á ritstjórn skopblaðsins Charlie Hedbo og myrtu alla sem þar voru. Morðin réttlættu þeir með því að það væri helgur réttur þeirra að drepa alla sem gerðu grín að Múhameð spámanni og trúarbrögðum sem við hann eru kennd. Árásin var atlaga að tjáningarfrelsinu. Skilaboðin eru að allir sem leyfa sér að nýta frelsi sitt til tjáningar um íslam sem íslamistum er ekki að skapi verða teknir af lífi vegna skoðana sinna.

 

Heimurinn fordæmdi þessa árás á tjáningar- og ritfrelsið. Fjölmargir settu lítinn penna í barm sér eða tóku upp vígorðin »je suis Charlie« til að sýna að þeir ætluðu ekki að láta kúga sig. Nokkru síðar voru pennarnir og vígorðin horfin og það var enginn Charlie, jafnvel ekki Charlie sjálfur. Fjölmiðlar birtu ekki myndir af þeim skopteikningum sem voru ástæða morðanna. Almenn hræðsla varð við að nýta tjáningarfrelsið þegar fjallað er um íslam.

 

Viðbrögð uppgjafaraflanna í Evrópu við árás vígamannanna voru m.a. að safna upplýsingum um áskrifendur að Charlie í því skyni að reyna að koma í veg fyrir að einhver þeirra gripi til aðgerða. Madrössunum og moskunum þar sem hatursáróðrinum gegn tjáningarfrelsinu og vestrænum lífsháttum er dælt út reglubundið var hins vegar ekki lokað. Það þurfti meira að koma til svo einhverjum viðbrögðum yrði beitt gagnvart þeim.

 

Þessi atlaga íslamista að tjáningarfrelsinu með morðunum á ritstjórn Charlie Hedboe var ekki sú fyrsta í Evrópu. Undir lok síðustu aldar var gefinn út dauðadómur á skáldið Salman Rushdie fyrir að skrifa bókina »Söngva Satans«. Salman þurfti síðan á strangri öryggisgæslu að halda og er enn á lífi, en sömu sögu er ekki að segja um japanskan þýðanda bókarinnar, sem var stunginn til bana. Ítalski þýðandinn slapp frá samskonar árás eins og norski útgefandi bókarinnar sem varð fyrir skotárás. Bókabúðir sem seldu bókina voru sprengdar eða eldur lagður að þeim. Tíu lönd bönnuðu bókina þ.ám. föðurland höfundarins, Indland.

 

Hollenski kvikmyndaleikstjórinn Theo van Gogh gerði kvikmyndina »Submisson« árið 2004 um undirgefni og niðurlægingu kvenna í íslam í samvinnu við Ayaan Hirsi Ali. Theo van Gogh var skotinn til bana 2. nóvember sama ár af íslamista sem fæddist í Hollandi. Ayaan Hirsi Ali var síðan gætt vegna tíðra morðhótana. Myndin »Submission« fæst hvergi sýnd í kvikmyndahúsum.

 

Í október voru tíu ár liðin frá því að danska blaðið Jyllands Posten birti kjánalegar skopteikningar af Múhameð spámanni. Það var of mikið fyrir íslamistana og ítrekað hefur verið reynt að drepa teiknarann, aðila sem tengjast Jyllands Posten og aðför gerð að norska ritstjóranum sem birti skopteikningarnar í blaði sínu. Í dag er fjallað um þessar teikningar í skólum í Danmörku en þær eru ekki sýndar og aðspurð segja skólayfirvöld að það sé gjörsamlega ónauðsynlegt. Meðvirknin og uppgjöfin er algjör á borði þótt því sé neitað í orði.

 

Hryðjuverk hafa ítrekað verið framin og kostað miklar mannfórnir. Í nýliðinni árás íslamista í París voru tæplega 200 einstaklingar drepnir. Nánast daglega berast fréttir af árásum íslamista víðsvegar um heiminn. Fjöldi fólks er drepinn. Þær árásir eru hræðilegur glæpur en hafa minni afleiðingar þegar til lengri tíma er litið en þær árásir sem hafa lamað tjáningar- og málfrelsið í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar þegar íslam á í hlut.

 

Evrópska elítan og herskarar hennar af sérfræðingum, sem og nytsamir sakleysingjar, samþykkja að tjáningarfrelsið sé skert með ógnaraðgerðum íslamistanna og trúa því enn að þeir geti talað eða keypt sig á kostnað skattgreiðenda frá vandanum, með fleiri sjóðum og styrkjum, fleiri uppeldisfræðingum og meiri fjölmenningu. Slík sýn er tálsýn, álíka gáfuleg og að henda kjötbitum í tígrisdýr í þeirri von að á endanum verði tígrisdýrið grænmetisæta."

Ég held að Jón fari nálægt sannleikanum hvað þessi mál áhrærir. Stjórnvöld gera ekkert til að bægja þesari vá frá okkur. Þó að Evrópuþjóðirnar í ESB séu löngu búnar að sjá að austurlandamærin halda ekki, þá er hér auðvitað galopið.

Við þorum ekki að styggja þetta lið múslíma. hælisleitenda eða GGF. Þjóðverjarnir eru að vakna upp við vondan draum í Köln. Stjórnvöld hafa  gert allt sem hægt er til að halda fréttum af þessu tilviki frá þýskum almenningi. En netið sér auðvitað til þess að það er ekki endalaust hægt að ljúga, jafnvel ekki að þýskum almenningi sem er yfirleitt sá þægasti í heimi. Ekki frekar en hægt sé að loka á PirateBay.

Við erum hrædd við að nefna hlutina réttum nöfnum. Umboðsaðilarnir eins krataliðið og GGF á Fréttablaðinu halda okkur hinum í gíslingu. Við megum ekki hafa skoðanir. Við megum ekki tala. Í kratablaðinu kemst prófessor dr.Þorvaldur Gylfason upp með ítrekaðar lygar um að þjóðin hafi samþykkt þetta eða hitt með 87 % í þjóðaratkvæði og enginn nennir að mótmæla skrifunum svo fólk fer að halda að þetta sé satt.

Hvaða öryggisráðstafanir skyldu Íslendingar ætla að gera áður en tvisvarsinnum nítjánþúsundum af æskublóma landsins verður smalað saman í Fífuna til að hlusta á Justin Bieber? Hverjir koma til landsins í undirbúningsnefnd? Hvað sagði vondi kallinn um öll höfuðin á einum hálsi?

Þeir eru með okkur í steinbítstaki.


Í stjórnarskrá

Íslands gæti verið ákvæði sem bannar ríkisstjórnum að taka afstöðu gegn öðrum þjóðum á friðartímum í öðrum málefnum en lúta að mannréttindum. Þjóðin verði að samþykkja alla samninga og yfirlýsingar sem snerta fullveldismál hennar.

Af hverju eigum við að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Rússum sem komu okkur til hjálpar þegar Bretar settu á okkur löndunarbannið um 1950? Rússaviðskiptin redduðu okkur og kölluðu á uppbyggingu hraðfrystiiðnaðarins þegar verst horfði fyrir útgerðinni. Keyptu allan fiskinn og seldu okkur olíu, traktora og bíla þegar allt lokaðist í Bretlandi. Nú launum við þeim með framsóknarasnaspörkum,  sjálfum okkur til mun meira tjóns en þeim. 

Hvað ætlum við að gera við N-Kóreumenn þegar þeir sprengja vetnissprengju fyrir okkur? Hvað ætlum við að gera við Kínverja fyrir meðferðina á Tíbet? Hætta að kaupa af AliBaba?

Erum við ekki allsherjar afglapar í alþjóðamálum? Höldum að við séum heilflöskur frekar en kardimommudropaglös? Ráðum engu nema því að gera okkur sjálfum skaða einsog nú háttar til í Schengen eða loftslagsmálum til dæmis?

Þurfum við ekki stjórnarskrárákvæði til að spíssa ríkisstjórnir og Alþingismenn af?


Fylgjumst með tímanum

góðir hálsar.arabiska1 Í staðinn fyrir dönsku er líklega ekki seinna vænna en að skipta á því máli og því sem koma skal á Vesturlöndum. Bráðum kemur Andrés á arabisku hvort sem er því ekki er að búast við að hann verði langlífur á íslenskunni.

Þessum innflytjendum á Norðurlöndum og í Vestur Evrópu fjölgar allstaðar svona 4 x hraðar en hinum náttúrulausu þjóðum geldfugla  sem fyrir eru. Við hin sjáum fyrir uppeldinu og kostnaðinum meðan við getum. 

Það er betra að vera viðbúinn sögðu skátarnir.

Það er gaman að sjá að Íslendingar eiga framsækin fyrirtæki sem fylgjast með tímanum.


Reykjavíkurborg gegn hinum

virðist vera staðföst stefna meirihluta Borgarstjórnar.

Þessi meirihluti sem borinn er uppi af Degi Bé borgarstjóra, EssBirni og Hjálmari Sveinssyni formanni Skipulagsráðsins fer hiklaust gegn 80 % landsmanna sem vilja Reykjavíkurflugvöll og miðstöð innanlandsflugvöll kyrran í Vatnsmýri og vilja veg flugvallarins sem mestan í nútíma þjóðlífi.

Þessi pólitík birtist nú aftur í fjandskap við borgarbúa með því að hækka sorphirðugjöldin um 48 % og um leið helminga þjónustuna. Allt á sama tíma sem þessi þokkaþrenning safnar nærri milljón í skuldum á hverjum klukkutíma 24/7/365.

Einn maður gerir þeim þetta kleyft, Halldór Auðar Svansson borgarfulltrúi Pírata. Hann kom þeim til bjargar eftir síðustu kosningar sem þeir töpuðu og voru kosnir frá. En kjósendur fengu þá samt af tveimur ástæðum. Þeir sem voru í boði sem andsvar voru ekki nægilega sannfærandi eða líklegir til afreka að mati Halldórs Auðar. Og hann réði öllu sem oddamaður. Hann þáði í stað stjórnmálaábyrgðar tékkhefti frá þeim til frjálsrar ráðstöfunar í þágu þess sem hugur hans girnist. Í staðinn eiga þeir hans atkvæði með húð og hári. Þarna er forsmekkurinn að því sem koma skal efir næstu Alþingiskosningar fái Píratar til þess fylgi.

Sá málafjöldi sem Halldór Auðar Pírati hefur ausið fé í er stórkostlegur og til vitnis um mikið hugarflug hans. Úthlutunarlistinn var lesinn að hluta til á Útvarpi Sögu í gær eða fyrradag og gekk fram af einhverjum fyrir það hugmyndaflug sem þar birtist. Fátt mannlegt er Píratanum óviðkomandi.

Hann hefur líka ráðgjafa góðan sem er faðir hans Svanur Kristjánsson vinstriprófessor. Sá vakti athygli á sér fyrir ráðgjafir í tíð fyrri ríkisstjórnar Steingríms og Jóhönnu. Eitthvað var þjóðin ósátt við þær ráðgjafir til lengdar og voru þau skötuhjúin kosin frá með afgerandi hætti og hefur heldur hljóðnað um Vinstriháskólann síðan þá.

Þannig er átakastefna núverandi borgarstjórnar meirihluta svipuð og önnur stjórn fer fram gegn þegnum sínum undir stjórn augnlæknis nokkurs lengra í austri.

Það má velta fyrir sér sem verkfræðingur og kollegi Saddams Hussein hvort læknum almennt fylgi svona stjórnunarstíll Það má minnast fleiri lækna minnast úr stjórnmálum svo sem frá Júgóslavíu og Kósóvó. Læknastjórnmál virðast helst birtast í samfelldum átökum við allt og alla án málamiðlana.Og blandast oftar en ekki líka við klækjastjórnmál. Muna menn ekki aðferðirnar í kjaradeilu lækna á spítölunum nýverið? Þar var almannatengill ráðinn til að skipuleggja terror og hótanir þar til að stjórnvöld lyppuðust niður og töpuðu þar með stjórn efnahagsmála fyrir klækjalæknunum með almannatengilinn alræmda sér við hlið.

Stjórnmálalæknar virðast ganga fram í þeirri vissu helstri að búið sé að svæfa sjúklinginn og hann hafi því ekkert um aðgerðirnar að segja. Þannig leyfist þeim hvað sem er og þeir einir skrifi reseptin sem skulu ofan í sjúkinginn. Já maður skyldi vara sig á þessum læknirum sagði gamall vinur minn jafnan þegar sú stétt bar á góma. En við verkfræðingar sitjum líka uppi með Saddam svo hver hefur sinn djöful að draga.

Afleiðingin er sú að fyrir þá sem utan standa eru reykvísk stjórnmál stanslaus orrusta þar sem meirihlutinn undir forystu læknisins Dags Bé. slæst við allt og alla og lemur sinn vilja ofan í fólkið án málamiðlana frá gamlingjunum við Þorragötu um Hofsvallagötu, um flugvöllinn, um bílaumferðina, yfir skólana austur til Ísraels um loftslagið í París. Einstefna og slagsmál við allt og alla nema reiðhjólin.

Í Morgunblaðinu í dag lýsir sjúkraflugstjórinn Þorkell Jóhannsson því hvernig neyðarbrautin skipti sköpum fyrir líf sjúklings sem hann var að flytja. Allt tal um nauðsyn flugvallar við slík skilyrði er hjóm í huga þrenningarinnar undir leiðsögn læknisins Dags Bé. Hagsmunir Valsbraskaranna skipta hann meira máli en einhver neyðarflugbraut eða vilji 80 % kjósenda á Íslandi.Ég er viss um að hann Saddam hefði verið meira tæknisinnaður enda fékk hann verðlaun frá Sþ. fyrir bætt tæknimál sem nú er búið að eyðileggja.

Það er Reykjavíkurborg gegn hinum sem virðist oft vera inntak stjórnmálanna þar á bæ.

 


Sturla bílstjóri er Forsetaefnið

skv. Útvarpi Sögu. Þjóðin hringir víst þar inn og tekur þátt í einskonar beinu lýðræði í boði Péturs Gunnlaugssonar lögfræðings.

Pétur, sem er afbragðs útvarpsmaður, sanngjarn og rökvís, var búinn að fara yfir þá kosti skilmerkilega sem væntanlegur Forseti þyrfti að hafa. Hann þyrfti að vera heima í íslenskri pólitik. Hann þyrfti að vera kunnugur alþjóðastjórnmálum og forvarsmönnum erlendra ríkja. Hann þyrfti að geta komið fram útá við og talað máli þjóðarinnar. Verið alþýðlegur. Haft bein í nefinu til að spíssa af þingmenn sem ætla að böðlast á alþýðu eins og alþýðuvinirnir og ískaldir reyndu að gera í Icesave 1,2 og 3.

Pétur taldi upp frambjóðendurna og einhverjir hlustendur hringdu inn og töldu að þessir eiginleikar væri ekki komnir fram meðal frambjóðenda.

Einmitt eftir þetta kusu hlustendur Útvarps Sögu Sturlu bílstjóra efstan með 20 % sem er hugsanlega meira en væntanlegur Forseti getur gert sér vonir um að hreppa í alvöru kosningunni.

Þá vita menn það hvert Forsetaefni þjóðarinnar á Útvarpi Sögu er. Sturla bílstjóri.


Akbar Allah

Múslímar skulu hafa forgang þegar reisa skal tilbeiðsluhof í Reykjavík.

Hjálpræðisherinn á ekki að fá ókeypis lóð við hlðina á moskunni á Suðurlandsbraut. Herinn er líklega ekki nógu bænheitur síðan Jón Kadett leið. Hefur líklega aldrei gert neinum gott í Reykjavík eftir að kratisminn hélt þar innreið sína? Á því verður breyting þegar gullregnið fellur frá dáindsfólkinu í SádíArabíu, sem stútaði þeim óguðlegu svo um munaði í síðustu viku.

Í SaudíArabíu rigndi Blóði og Eldi sem skal metið að verðleikum í Borgarstjórn Reykjavíkur.

Mildileg ásjóna formanns Skipulagsráðs Reykjavíkurborgar frelsar Frelsisherinn frá sjálfum sér enda fullkomið óráð að fara að byggja kastala á fjárhagslegu kviksyndi við hlið þess trúfélags sem framtíðina á fyrir sér.

Akbar Allah.


Dýrð sé Schengen

um aldir alda og Evrópusambandsins skapara hamingju vorrar sem staðfastrar umsóknarþjóðar í þess augliti.

Frændur okkar á Norðurlöndum heimta nú passa af öllum. Íslendingar gera það líklega ekki vegna þess að slíkt gæti truflað guðrækilega för hælisleitenda hingað til lands.? Atvinnan í Útlendingastofnun gæti komist í hættu með að verða flutt norður í land á eftir Fiskistofu?

Dýrð sé Schengen í upphæðum Íslendinga um aldir alda.


Neyðarbrautin bjargar mannslífi

sannanlega þegar engin önnur leið var fær en að lenda þar með mann í mikilli lífshættu.

En hvað er eitt mannslíf í samanburði við dýrð þríeykisins Dags Bé., EssBjarnar og Hjálmars Sveinssonar við Reykjavíkurflugvöll?

Hvað veldur þegar Píratinn nafni minn í Borgarstjórn setur byggingar einkabraskfélags ofar en líf fátæks fólks á neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar? 


Hvað heitir það réttlæti ?

þegar Steinþór Pálsson hækkar í launum við að stýra banka sem er rekinn í sama húsi, með sömu málverkum á veggjunum, sömu kaffivélum og borðbúnaði og banki sem ég átti áður með sama nafni á sama stað. Ég lagði þá stóran hlut af ellilífeyrinum mínum í að kaupa hlutabréf í Landsbanka Íslands sem heitir núna gamli Landsbankinn en þessi nýji nýji Landsbankinn eða NIB. Maður átti að styrkja atvinnulífið sagði ríkið með því að kaupa hlutabréf.

Svo stendur í Kjarnanum:

" Mánaðarlaun Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, hafa hækkað um 36 prósent frá því um mitt ár 2014. Með nýjum sérúrskurði kjararáðs í byrjun desember voru laun hans hækkuð um 20 prósent. Morgunblaðið greindi frá því í morgun að laun Steinþórs hefðu hækkað um 41 prósent með nýjustu ákvörðun kjararáðs fyrr í þessum mánuði. Það reyndist ekki rétt samkvæmt upplýsingum á vef kjararáðs. Laun Steinþórs eftir hækkunina eru 1.950 þúsund krónur á mánuði. 

 

 Landsbankinn er að nánast öllu leyti í eigu íslenska ríkisins og þess vegna ákvarðar kjararáð laun Steinþórs en ekki hinna bankastjóranna. Þetta er í þriðja sinn sem laun bankastjórans hafa verið hækkuð frá bankahruni."

Íslenska ríkið á þennan banka í dag. Ég á ekkert í þessu íslenska ríki. Ég kem því ekkert við nema ef það getur náð af mér einhverju.Til viðbótar bankanum sem ég átti og skildi eftir sig skuldir en varð ekki gjaldþrota heldur fékk peninga til að halda áfram rekstri.

Voru þetta bara ekki gervipeningar sem voru bara búnir  til í Seðlabankanum. Skuldirnar eru eftir ógreiddar. Átti ég þær ekki líka? Var ekki hlutaféið mitt tekið til að greiða þær?

Þarna var sett inn fólk sem ég þekki ekki, fyrst einhver Elín sem endaði fyrir dómi eða eitthvað svoleiðis og svo þessi Stein þór?

Nú segir Fjármálaráðherra að hann ætli að gefa einhverju fólki úti á landi, flóttamönnum og nýbúum líka,  hlut í þessum banka sem ég átti sannarlega og hefur aldrei orðið formlega gjaldþrota samkvæmt íslenskum lögum. Af hverju á ég ekkert í þessum banka?

Var ekki einhverntíman talað um Hrifluréttlætið sem þótti ekki gott? En nú hækkar Steinþór meðan ellilífeyririnn minn skerðist?

Hvað heitir það réttlæti?

 


Vegagerðin á hrós skilið

fyrir veginn yfir Hellisheiði og þjónustuna á honum.

Frágangurinn er til fyrirmyndar. Girðingarnar á milli útiloka hina oftast hræðilegu framan-á-árekstra. Eitt slíkt slys henti á dögunum þar sem engin var girðingin á milli. Að aðskilja aksturstefnur sýnist því vera þýðingarmikið.

Annað frontal slys varð vegna skorts á nagladekkjum og vekur upp spurningu um af hverju útlendingar séu hreinlega ekki skyldaðir til að aka aðeins á negldu að vetrarlagi hérlendis?

Sýnir ekki reynslan að þeir sem ekki eru vanir vetrarakstri við okkar aðstæður séu betur komnir á nöglum? Og ef ég mætti ráða þá ættu allir að vera á negldu því það góða skaðar ekki. Íslensk vetrarveðrátta er nefnilega algerlega spes og krefst meira en venjulegir bílstjórar ráða alltaf við. Klessurnar kosta meira en viðgerðirnar á götunum.

Vegakerfið okkar Íslendinga hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum. Vegagerðin á hrós skilið fyrir hvernig hún hefur staðið vel að málum víða.

Okkur er líka að fara fram í hegðun í umferðinni. Ölvun er orðin lítill þáttur í umferðarslysum og þeferíið er orðið næsta óþarft. Enda eru þeir sem keyra fullir óábyrgir og ólöghlýðnir einstaklingar, bæði fullir og ófullir og óforbetranlegir. Þeim er bara skítsama um allt og alla og eru bara pakk. 

Enda af hverju á lögreglan að skipta sér af þeim sem ekki brýtur af sér þegar nóg er af hinu?  Á hún ekki að hætta sem mest að angra borgarana með tilefnislausri frumkvæðislöggæslu? Hafa bara vökul augu með þeim sem eru óábyrgir?

 

En Hellisheiðin er núna til fyrirmyndar. Húrra fyrir Vegagerðinni.

 


Jæja Ólafur ætlar !

ekki fram. Og ekki frú Dorrit heldur að amerískum hætti?

Þetta eru eiginlega óvænt tíðindi finnst einhverjum. En verðum við ekki að hugga okkur við að maður kemur ávallt í manns stað á öllum stigum þjóðlífsins?

Og ekki vantar okkur afburða fólkið sem heldur að það geti tekið við.

Sturla bílstjóri Jónsson og lúðurþeytari með meiru, Þorgrímur Þráinsson rithöfundur með meiru,Jón Gnarr grínari með meiru, Katrín Jakobsdóttir hin brosmilda með meiru,Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur með meiru, Ástþór Magnússon, þaulvanur Forsetaframbjóðandi með meiru Stefán Jón Hafstein Afríkufari með meiru, Óskar Þór Óskarsson internetsmarkaðsfræðingur með meiru og svo eru margir sem menn eru að koma að máli við eins og Halla Tómasdóttir frumkvöðull meða meiru og hann Andri Snær, rithöfundur með meiru.

Það er verst að það þarf svo fjári marga meðmælendur að maður getur ekki skellt sér með svona til að setja meira fútt í þetta þegar fyrirsjánlegt er að Forsetinn verður líklega ekkki kosinn nema með tiltölulega fáum atkvæðum.  Þarna er þá í boði þokkaleg innivinna fyrir lítið ef nógu margir bjóða sig fram. Það er helst að kynjakvótinn geti vigtað óvænt inn í þetta? 

Þarna er í rauninni fyrsta tækifærið sem sameinaðir hægri menn hafa fengið til að kjósa sér Forsteta þegar visntrið er svona klofið. Við eigum allavega einn kandídat sem myndi eiga sjens og það er Davíð Oddsson Morgunblaðsritsjóri. Davíð nýtur svona þrefalds trausts á við næstu menn samkvæmt skoðankönnun sem hefur verið hér á síðunnni lengi.  

Davíð nýtur líka óskoraðs vantrausts GGF og allra spekinganna í 101. En enginn myndi efast um það að hann yrði einn skemmtilegasti Forseti lýðveldisins jafnvel þótt Össuri dytti í hug að bjóða sig fram.

En líklega myndi hann Davíð ekki nenna þessu þar sem ég held að honum þyki kannski svo gaman að vera á Mogganum og vega til hægri og vinstri í þeirri góðsemi eins og honum er lagið.

Án þess að ég ætli að draga úr nokkrum með að koma að máli við hann Davíð, þá hef ég velt því fyrir mér hvort það sé ekki óhepppilegt að kjósa Forseta lýðveldisins með veikum minnihluta þéttakenda  eins og í stefnir núna. Að til dæmis Sturla Jónsson eða Jón Gnarr  verði Forsetar með kannski 10-20 % atkvæða, fremstir meðal jafningja?

Er engin leið til að Alþingi geti möndlað að kosið skuli í tveimur umferðum næst eins og þeir gera í Frans?

 

 

 


Margrét kveður

fangelsið á LitlaHrauni og segist ekki vera á leiðinni í forsetaframboð.

Það var auðvitað að hún gerði mér þetta því ég hefði kosið hana EF...

Enginn annar frambjóðandi hefur skírskotað til mín eins og hún Margrét Frímanns EN ...

Við bíðum öll með óþreyju þó Margrét hafi kvatt- allavega að sinni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 3420832

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband