11.2.2021 | 13:31
Trumpophobian rís hátt
og hrífur Björn Bjarnason með sér. Hann skrifar:
"Málsvörn Trumps í molum
Efasemdarmenn um að Trump hafi sigað skríl á þinghúsið ættu að kynna sér það sem lagt er fyrir öldungadeildarþingmenn áður en þeir greiða atkvæði um ákæruna.
Þegar fréttaþulur BBC World sjónvarpsstöðvarinnar kynnti beina útsendingu frá öldungadeild Bandaríkjaþings þar sem fulltrúadeildarþingmenn demókrata fluttu málið gegn Donald Trump, fyrrv. forseta, miðvikudaginn 10. febrúar sagði hann að vegna efnis í myndskeiðum, sem kynnu að verða sýnd, yrði um 20 sekúndna seinkun á sendingu BBC svo að vara mætti áhorfendur við ógnvænlegum myndum. Þær voru teknar innan dyra í þinghúsinu í Washington þegar skríllinn sem Trump sigaði á þingmenn fóru þar um rænandi og ruplandi.
Efasemdarmenn um að Trump hafi sigað skríl á þinghúsið ættu að kynna sér það sem lagt er fyrir öldungadeildarþingmenn áður en þeir greiða atkvæði um ákæruna. Trump verður ekki sakfelldur nema 17 öldungadeildarþingmenn repúblíkana greiði atkvæði með demókrötum í deildinni. Með því að flytja málið á þann veg sem gert er og með þeim sönnunargögnum sem fyrir liggja verður ömurlegra fyrir repúblikana að styðja Trump en hafna honum þó er líklegt að þeir sakfelli hann ekki.
Bruce Castor, verjandi Trumps, flytur ræðu í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Vörn Donalds Trumps er í molum megi marka stórundarlega framgöngu Bruce Castors, aðalverjanda hans. Skömmu fyrir málflutninginn í öldungadeildinni sagði lögfræðingalið Trumps sig frá því að verja hann. Skýrendur segja að forsetanum fyrrverandi haldist illa á virtum lögfræðingum því að hann krefjist þess að þeir viðurkenni aldrei, ekki einu sinni í sekúndubrot, að Trump hafi tapað kosningunum 3. nóvember. Þetta flæki þó þá meginröksemdafærslu að stjórnarskráin heimili ekki að fulltrúadeildin ákæri óbreyttan borgara, eins og Trump.
Lagaprófessorinn Alan Dershowitz tók þátt í að verja Donald Trump þegar hann sætti ákæru fulltrúadeildar þingsins fyrir ári. Nú sat hann í beinni útsendingu mánudaginn 8. febrúar hjá fréttastöðinni Newsmax þegar Bruce Castor futti upphafsræðu sína. Newsmax leggur Trump lið en stjórnanda útsendingarinnar var svo misboðið vegna ræðu Castors að hann lokaði á hann og spurði Dershowitz: Hvert er hann að fara með þessu? Prófessorinn hristi höfuðið og sagði: Það eru engin rök. Ég hef enga hugmynd um hvað hann er að gera. Síðan gerði hann grín að smjaðri Castors í garð öldungadeildarþingmannanna.
The Wall Street Journal verður ekki sakað um að ganga erinda demókrata og blaðið studdi Trump í forsetakosningunum. Í dag (11. febrúar) segir í leiðara þess:
Hvað sem öðru líður er ekki unnt að verja framgöngu Trumps 6. janúar og í aðdragandanum. Fullyrt er að Mitch McConnell [þingflokksformaður repúblikana] segi við flokksmenn sína að ákvörðunin um að sakfella eða sýkna ráðist af sannfæringu og það er við hæfi. Eftir að kjörmennirnir komust að niðurstöðu sinni 14. desember hefði Trump getað viðurkennt ósigur og hreykt sér af afrekum sínum.
Nú verður þetta ofbeldi að eilífu blettur á arfleifð hans ásamt því að hafa svikið stuðningsmenn sína með því að neita að segja þeim sannleikann. Hver sem niðurstaðan verður í ákærumálinu ættu repúblikanar að minnast svikanna ákveði Trump að bjóða sig fram að nýju árið 2024.
Eru menn að reyna að stýra fortíðinni eða eru þeir að reyna að tryggja að Trump geti ekki boðið sig fram aftur?
Trumpophobian rís hátt um þessar mundir.
11.2.2021 | 11:16
Egóflipparar?
eru vinstri menn ekki þeirrar gerðar upp til hópa?
Þeir láta kjósa sig til þings út á hverskyns yfirskin um einhvern samfélagslegan tilgang með framboði sínu. En raunverulega ástæðan sé hinsvegar von um kauphækkun og bitlinga?
Páll Vilhjálmsson bloggkóngur hefur þessa skilgreiningu uppi:
"Vinstri grænir voru einnota fyrir Rósu Björk og Andrés Inga. Rósa Björk gekk í Samfylkinguna og Andrés Ingi tekur sér heimilisfestu í Pírötum, Róbert Marshall sat á þingi fyrir Samfylkingu og Bjarta framtíð en vill núna á þing sem vinstri grænn.
Þetta eru aðeins nýjustu dæmin um flokkaflakk vinstrimanna.
Tvær ályktanir má draga. Í fyrsta lagi að vinstriflokkarnir eru hverjir öðrum líkir. Í öðru lagi að persónulegur metnaður margra vinstrimanna er öllu félagslegu starfi yfirsterkari.
Ekki það að vinstrimenn séu einir um hégómleg viðhorf til stjórnmála. En þeir standa núna vel til höggs."
Ætlar þetta fólk ef til vill að halda því fram í alvöru við okkur kjósendur að það sé í pólitík með einhverja stórkostlega framtíðarsýn fyrir þjóðina að baki?
Eða eru þetta bara venjulegir Egóflipparar?
11.2.2021 | 01:22
Frábær flokkur
frelsis og framfara.
Viðreisn stillir upp í fimm kjördæmum fólki með eina skoðun og eina sannfæringu. Ekkert sem þarf að ræða við kjósendur.
Sú eina skoðun er rétt að afsala skuli Íslandi fullveldi sínu í hendur tollabandalagi 26 ríkja Evrópusambandsins og upptöku Evru. Skítt með afganginn af heiminum og frjáls viðskipti við hundrað annarra ríkja hans. Rétt eftir að Bretar fengu nóg af Ursulu von der Leyen og frjálsri hugsun í Brusselbæ.
Benedikt og Þorgerður Katrín vita allt sem vita þarf um frelsið í fákeppninni. Þau vita allt sem vita þarf í stjórnmálum. Engar aðra skoðanir koma til greina.
Þess vegna stillir Viðreisn upp fimmfalt til að tryggja að rétt skoðun sé allsstaðar í hávegum höfð.
Kjósendur þurfa ekki að velkjast í vafa um visdóm forystunnar í hinum frábæra flokki Viðreisn hvað sem hann nú er að reisa við?
10.2.2021 | 20:10
Er þetta í lagi?
fyrst að ljúga sig inn á kjósendur VG eins og Andrés Ingi gerir og svo þessi Rósa Björk? Síðan segja við þetta sama fólk á kínverskan hátt: Farið þið til fjandans, okkar viðskiptum er lokið, við snuðuðum ykkur því að þið eruð bara fífl sem áttuð þetta skilið?
Hugsa sér að bjóða einlægum kommúnistum upp á það að Andrés er bara allt í einu Pírati með Helga Hrafni, Þórhildi Sunnu margvíttu, Malbikaranum og Leista-Birni Leví? Svei attan.
Og er Rósa Björk farin í ESB með Loga. Svei attan aftur.
Eitt sinn var kveðið á Alþingi:
"Dauft er fyrir Doktor Jón
að drattast þings um stigi
og geta engum unnið tjón
með undirferli og lygi."
Mér finnst þessi vísa eiga ágætlega við um þessi skötuhjú úr kommaflokknum hennar Kötu, sem varla vill eiga þau að nánum vinum hér eftir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2021 | 11:06
Hvar verða vinnustaðirnir?
ef það eitt þurfi til að stoppa bílaumferð til og frá Miðborg Reykjavíkur að byggja blokkir á flugvellinum.
Vinna þá allir í bönkunum í Kvosinni og Stjórnarráðunum? Eru atvinnusvæðin þar?
Þessar kenningar hafa löngum vakið athygli manna sem sjá allt illt við að byggja annarsstaðar en í nágrenni Kvosarinnar.Meira að segja Borgarlínan virðist ekki leysa þessi hugarfóstur um bíllausan lífstíl.Nema Dagur B. auðvitað sem er búinn að tryggja sér næg bílastæði.
Örn Gunnarson arkitekt hefur lengi skrifað um þessar hugmyndir sínar um Vatnsmýrarbyggð í stað flugvallarins þar.Nú verða til þúsundir núllbíla á svæðinu sem hætta að menga af því að fólk getur gengið í vinnuna að manni skilst.
En hvar verða allir þessir vinnustaðir?
9.2.2021 | 10:55
Bylur í Bieltvedt
í blaði dagsins.
Þar fárast hann yfir hvað Sjálfstæðisflokkurinn sé lélegur að vilja ekki ganga í ESB og kasta krónunni. Vonandi fari allir úr honum og gangi í Miðflokkinn.
Hver var nauðsyn þessara skrifa?
Að láta okkur vita að hann hafi loks flutt til Íslands frá Þýskalandi eftir 10 ára dvöl þar?
Bara til að finna sinn gamla flokk Sjálfstæðisflokkinn með ónýtu krónuna "sviplausan, stefnulítinn, steinrunninn og afdankaðan". En sem betur fer sé Miðflokkurinn tilbúinn að taka við honum og Friðjóni en ekki Brynjari? Ég vissi nú ekki fyrr að Miðflokkurinn vilji ganga í ESB og taka upp Evru?
Hann minnist ekki á það að hér ríkir gjaldeyrisfrelsi og menn geta notað hvað mynt sem þeir kjósa í lántökur eða sparnað.
Af hverju er maðurinn að skrifa svona hugleiðingu? Hverjum er hann að skemmta eða hjálpa og hverju hyggst hann ná fram pólitískt?
Það var stundum sagt að bylji hæst í tómum tunnum. Það bylur sannarlega boldangsmikið í Bieltvedt.
8.2.2021 | 10:55
Er bakkgír á Borgarlínunni?
Í leiðara Morgunblaðsins er vitnað í umferðarsérfræðinginn Árna Mathiesen dýralækni sem fær sérstakt hrós fyrir hreinskilni.
"Stjórnarformaður félagsins Betri samgangna ohf., Árni Mathiesen, sem heldur utan um borgarlínuverkefnið, segir að þeir sem að verkefninu standa verði dæmdir af þremur atriðum: Í fyrsta lagi að tímasetningar standist. Í öðru lagi að kostnaðaráætlun standist og í þriðja lagi að markmið um samgönguhegðun náist. Og þetta síðasta er lykilatriði í verkefninu í heild. Allt er þetta rétt og óvenjuleg hreinskilni að leggja spilin á borðið með þessum hætti því að oftar en ekki vilja menn ákveða eftir á hvaða mælistikur á að leggja á verk þeirra.
Þessar mælistikur eru ekki aðeins nothæfar til að meta borgarlínuna að einhverjum tíma liðnum, verði anað áfram í það verkefni, þær eru einnig gagnlegar til að meta það sem gert hefur verið í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu síðasta áratuginn eða svo.
Borgarlínan á að auka mjög notkun almenningssamgangna, úr 4% af heildarferðum í 12% ferða. Líkurnar á að þetta takist hlýtur að verða að skoða í samhengi við það að fyrir um áratug var ákveðið, í samstarfi þáverandi vinstri meirihluta í borginni og vinstri stjórnarinnar í landsmálum, að slá á frest brýnum framkvæmdum í samgöngumálum á svæðinu en setja í staðinn einn milljarð til viðbótar árlega í að efla almenningssamgöngur, það er að segja strætisvagnana. Þessi árlegi viðbótarmilljarður hefur engum árangri skilað. Hlutfall þeirra sem velja strætó er það sama og var en ætlunin var að milljarður árlega yrði til þess að hækka þetta hlutfall umtalsvert. Í staðinn hafa tafir á framkvæmdum valdið umferðarteppum sem fara síversnandi. Það sem gert hefur verið hingað til hefur því ekki staðist þá mælistiku sem að ofan er nefnd og flokkast undir augljós mistök.
Þessi árlegi milljarður bætist við það fé sem fyrir var sett í rekstur strætó, en farþegatekjurnar stóðu árið 2019 undir um þriðjungi kostnaðar, sem nam sjö milljörðum króna það ár. Af fréttum að dæma má ætla að afkoman hafi verið enn verri í fyrra. Þar kenna stjórnendur Strætó kórónuveirufaraldrinum um og hefur hann eflaust haft talsverð áhrif. Annað sem einnig hafði áhrif og mun að líkindum hafa vaxandi áhrif eru rafknúnu hlaupahjólin sem sprottið hafa upp eins og gorkúlur í borgarlandinu síðastliðið ár. Sá nýi samgöngumáti mun án efa draga verulega úr notkun almenningssamgangna til framtíðar. Áætlanir borgarlínunnar, að því marki sem þær liggja fyrir, taka ekki tillit til þessa enda er þar um að ræða stórkarlalega, þunglamalega og gamaldags hugmynd í stað þess að horft sé á nýja tækni og raunhæfar lausnir.
En vandinn við borgarlínuna er líka sá að útfærð rekstraráætlun hennar liggur ekki fyrir og heildaráætlun um fjárfestingar og rekstur almenningssamgöngukerfisins í samanburði við aðrar lausnir hefur ekki verið gerð. Fyrir liggur til dæmis að áfram þarf að reka strætisvagnakerfi og fram hefur komið að rekstrarkostnaður Strætó kunni að aukast um tvo milljarða króna á ári vegna borgarlínunnar.
Heildarmynd borgarlínuhugmyndarinnar og samanburður við aðra kosti liggur alls ekki fyrir. Þá liggur ekki fyrir hvað gerist ef borgarlínan skilar engum eða litlum árangri í því að fjölga þeim sem nota almenningssamgöngur. Þá er augljóst að umferðartafir verða enn verri en nú er þar sem búið verður að þrengja enn meira að langvinsælasta ferðamátanum, fjölskyldubílnum. Víða verður búið að taka aðra akreinina af þeim 75% sem nota þann ferðamáta til að bæta við borgarlínubraut sem mögulega mun ekki skila neinni aukningu í notkun. Og það er að minnsta kosti ljóst að notkun almenningssamgangna þarf að aukast gríðarlega til að vega upp á móti þeirri þrengingu sem verður á götum fyrir fjölskyldubíla.
Um leið og hægt er að taka undir að borgarlínuverkefnið, ásamt þeim sem fyrir því hafa barist og að því standa, verði metið út frá þeim þremur mælistikum sem stjórnarformaður Betri samgangna nefnir er ljóst að það verður til lítils ef þetta risaverkefni fer illa. Það mun ekki leysa samgönguvandann eftir fimm eða tíu ár að geta bent á að tafir hafi orðið, að kostnaður hafi verið meiri eða að færri hafi notað borgarlínuvagnana en stefnt hafi verið að. Þeir sem árið 2030 sitja fastir í fjölskyldubílum sínum og munu þar að auki þurfa að greiða ný veggjöld ofan á hækkað útsvar eru engu bættari með að geta bent á sökudólga. Það er gott að hafa skynsamlegar mælistikur, en þær geta aldrei réttlætt að ráðist verði í vanhugsaðar og óraunsæjar risaframkvæmdir."
Ef sú forsenda sem Árni Mathiesen veltir fyrir sér í byrjun gengur ekki upp, er þá ekki rétt að hugsa hvað taki við?
Borgarlínan og allur kostnaðurinn er þá kominn fram.Verður Dagur B. Eggertsson afturkræfur? Hvernig á að leysa vanda allra bílastæðalausu íbúðanna sem þá verður búið að byggja. Kaupa bara bílastæði eins og Dagur B.?
Verður stofnkostnaðurinn tekinn til baka með því að setja Borgarlínuna í bakkgírinn?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.2.2021 | 11:37
Goðsögnin um ESB
er umfjöllun Gunnars Rögnvaldssonar um hvílk slys þetta tollabandalag hefur fært yfir aðildarþjóðir sínar undir forystu hinnar handónýtu Úrsúlu von der Merkel.
Gunnar segir í dag:
"
Ekki þýðir annað en að birta hér á útlensku um það málefni sem hver fjölmiðill með virðingu fyrir sjálfum sér ætti að birta hér heima en gerir ekki, nema Morgunblaðið. Og hér er alveg sérstök ástæða til að benda á lokaðan ríkisfjölmiðilinn DDRÚV. En hann hefur á hinum síðustu árum loksins fundið gluggatjöldin sem Halldór Laxness sagði að væri það eina sem Sovétríkjunum vantaði, því ekkert um ástandið í Vesturlöndum-nær sleppur út úr DDRÚV. Sérstaklega ekki um ESB-gjaldþrotasambandið. Aðeins þær fréttir sem passa við stefnuskrá DDRÚV sleppa út
Nú segir Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB að sambandið sé framar Afríku í bólusetningum við kínversku Wuhanveirunni. Er þetta ekki stórkostlegt. Meginlandsfyrirbærið ESB er að breytast í eins konar Norður-Afríku
En þá ber að geta þess að sá/sú stjóri/ína er sérstakur útsendari Angelu Merkels, sem aðstoðarritstjóri breska Telegraph segir að sé ofmetnasti stjórnmálamaður sinnar kynslóðar á meginlandi Evrópu. Hvorki meira né minna. Allt sem hún kemur nálægt leggur hún í rúst
Merkel og forseti Frakklands hafa nú breyst í eins konar bólusetningar-afneitara sökum þess hversu vel nýfengið fullveldi og sjálfstæði Bretlands virkar fyrir það þegar að lífsmikilvægum málum eins að verja þjóðina í og gegn heimsfaraldri kemur. Þar æða Oxford/Spitfire um Stóra-Bretland og hafa nú þegar bólusett 17 prósent þjóðarinnar á meðan, sem sagt, Evrópusambandið miðar sig við Afríku
Ekki gleyma að minnast hér á þriðja flokks orkupakka Evrópusambandsins Gunnar, því nú er svo kalt í veðri í turni ESBhrópsins að Svíar mega helst ekki ryksuga heima hjá sér vegna ESB-hugmyndafræðilegs orkuskorts og pappírsverksmiðjur landsins neyðast til að loka niður, því þá er rafmagnið svo dýrt. Hjarðónæmi meðal forystu Sjálfstæðisflokksins gegn kjósendum hans hefur hins vegar verið náð. Það er þó eitthvað
Og hugsa sér. Nú er ástandið á Ítalíu svo "rosalega gott", eina ferðina enn, að ókjörinn Mario Draghi fyrrum ECB-seðlabankastjóri er að setjast þar við stjórnartaumana, einungis vegna þess að hann þekkir fólk um borð í seðlabanka evrunnar. Kjósendur koma hvergi nærri. Hvert skyldi nú aftur ítalska skútan vera á leiðinni? Tvær aðrar samsteypuríkisstjórnir riða nú til falls á meginlandi Evrópu: í Hollandi og Austurríki
Það besta sem gerst gæti fyrir Ísland er að viðurkenna að við Íslendingar eins og Bretland, getum ekki búið við meginland Evrópu því við erum ekki í Evrópu, og að við leggjum því aftur aðaláherslur okkar í utanríkisviðskiptum á Stóra-Bretland og Norður-Ameríku og nágranna þess í norðri, því ein og sér eru Bandaríkin stærri, öruggari og mun betri og þróaðri viðskiptamarkaður en allt meginland Evrópu. Á því meginlandi er nefnilega flest viðstöðulaust á leið til nýrrar heljar
Segja þarf EES-samningum upp og forða Íslandi út af lögsögu Evrópusambandsins áður en hún dregur okkur lengra niður í meginlandssvað hins þriðja farrýmis hagkerfa. En þar hefur Þýskaland nú náð því nýja en samt gamla þróunarstigi á ný, að það myndi endurframleiða næstum hvað sem er til aftöku á hverju sem er hvar sem er, græddi það túkall á því. Þar býr gömul púðurtunna sig undir nýjar hæðir, einu sinni enn
Bara þetta árið munu hundruð þúsunda manna missa lífið á meginlandi Evrópu vegna pólitískar hugmyndafræði elíta þess um ESB. Sovétríkin voru líka þannig. Þannig hugmyndir kosta nefnilega mannslíf, því þær eru drápsmaskínur"
Gunnar kveður fast að orði eins og venjulega. Sumum kanna að finnast að of fast sé kveðið.
En má ekki Gunnar hafa skoðanir á sínum stjórnmálaflokki Sjálfstæðisflokknum?
Allavega veitir ekki af að andæfa fullveldisframsalsflokkunum báðum, Samfylkingu og Viðreisn sem hræra sína steypu um ESB goðsögnina og Evrudásemdina sem því miður allt of margir kjósendur virðast trúa.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.2.2021 | 11:10
Varðhundur kerfisins
var nafnbót sem Vilmundur heitinn Gylfason valdi Hæstarétti á sínum tíma. Sumum fannst þetta ósvífið í hæsta máta. En var það í rauninni svo?
Jón Steinar Gunnlaugsson ritar merka grein um Hæstarétt og vinnubrögð hans í Morgunblaði í dag. Hann segir:
"Ég hef nú verið sýknaður á þremur dómstigum af málsýfingum Benedikts Bogasonar gegn mér. Tilgangur hans virðist hafa verið að hræða menn frá því að bera fram gagnrýni á verk Hæstaréttar Íslands. Geri þeir það megi þeir eiga von á málsóknum og peningaútgjöldum.
Dómstólar fara með afar þýðingarmikið þjóðfélagsvald. Dómarar eru æviskipaðir og þurfa því ekki að standa neinum reikningsskil gerða sinna eins og handhafar löggjafar- og framkvæmdarvalds þurfa að gera. Þess vegna skiptir miklu máli að borgarar hafi rúmt frelsi til að gagnrýna þá fyrir meðferð þeirra á valdi sínu. Sú gagnrýni þarf að vera málefnaleg og rökstudd ef hún á að skipta máli.
Nú gekk hæstaréttardómur í máli sem einn þeirra höfðaði gegn mér fyrir kafla í bók minni Með lognið í fangið sem út kom í nóvember 2017. Ég var sýknaður eins og reyndar hafði orðið reyndin líka í héraði og Landsrétti. Í öllu talinu um þetta hefur að mestu leyti gleymst að nefna þau efnisatriði í dómi Hæstaréttar í málinu gegn Baldri Guðlaugssyni á árinu 2012 sem ég gagnrýndi.
Þau eru flest þannig að tilefni þeirra var augljóst og átti brýnt erindi við almenning.
1. Ég taldi að Hæstiréttur hefði legið undir of miklu álagi og því ekki getað fjallað um málið á þann hátt sem nauðsynlegt var.
2. Þrýstingur hefði verið á dómstólinn um að sakfella í hrunmálum. Þetta var fyrsta málið úr þeim flokki sem dómstóllinn fékk til meðferðar.
3. Formaður dómsins hafi verið vanhæfur vegna hlutafjáreignar sinnar í Landsbankanum (þetta vissi enginn þegar dómurinn var kveðinn upp en kom í ljós síðar).
4. Ákærði hefði ekki búið yfir innherjaupplýsingum.
5. Landsbankinn hefði ekki sinnt tilkynningaskyldu sinni ef rétt teldist að um innherjaupplýsingar hefði verið að ræða. Ákærða hefði því óbeint verið refsað fyrir brot bankans.
6. Fyrir lá að Fjármálaeftirlitið hefði vitað allt sem ákærði vissi, en ekki talið ástæðu til að meta upplýsingarnar sem innherjaupplýsingar og birta þær sem slíkar, eins og þá hefði verið skylt að gera.
7. Ákærði var dæmdur fyrir annað en ákært var fyrir. Munurinn skipti sköpum um vörn hans.
8. Samantekt um efni dómsins var breytt á heimasíðu Hæstaréttar eftir að rétturinn hafði áttað sig á að sakfellingin í dóminum stóðst ekki. Ég birti báðar útgáfurnar í bók minni.
9. Brotið var gegn reglunni um að ekki mætti ljúka máli tvisvar (ne bis in idem). Ítarlegan rökstuðning var að finna í bók minni um öll þessi atriði.
Með því að segja að dómararnir hafi að minnsta kosti mátt vita um þessi atriði, þegar þeir kváðu upp dóminn, var ég í reynd að hlífa þeim við því að halda því fram að þeir hafi ekki haft næga lögfræðiþekkingu til að dæma málið.
Ásökun um slíkt hefði í reynd verið mun alvarlegri fyrir þá. Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar ákvað að bera undir dómstóla hvort réttmætt hafi verið að kalla dómaraverk hans í málinu gegn Baldri Guðlaugssyni dómsmorð.
Hann hefur nú fengið spurningu sinni svarað á öllum þremur dómstigunum.
Til hamingju Benedikt! "
Ég myndi skammast mín faglega ofan í tær ef ég fengi slíka ádrepu.
En eru Varðhundar kerfisins færir um slíkt?
7.2.2021 | 11:00
Hvað vill Viðreisn?
virkilega þegar maður les furðuskrif Þorgerðar Katrínar í helgarmogga.
Vitað er að hún vill fyrir alla muni afsala fullveldi Íslands og ganga í tollabandalag 26 landa sem kallast ESB.Og kasta krónunni sem gjaldmiðli og taka upp EVRU.
Svo segir hún það vera veðsetningu á velferðarkerfinu að taka lán í Evrum á lágum vöxtum.Gengisáhættan sé svo mikil.Ekki virðist hún heldur vilja taka lán innanlands til bjargar ríkissjóði?
Ég hef lengi spurt sjálfan mig að því hvar Evruspekingarnir ætli að fá Evrur þegar Félag Flugumferðarstjóra eða Ljósmæðra hefur ákveðið að tími kjaraleiðréttingar upp á svona 30 % sé runninn upp?
Ég finn engin svör og öllum virðist vera sama. Þetta sé ekkert vandamál?
En um hvað Viðreisn vill annað í ríkisfjármálum er ég og hugsanlega væntanlegir kjósendur engu nær eftir að lesa ritgerð Þorgerðar í Mogga.
7.2.2021 | 10:43
Er hann óstöðvandi
til illra verka þessi maður Dagur B. Eggertsson.
Nú segir hann að fyrstgi áfangi Sundabrautar sé að koma Sæbrautinni ofan í stokk. Nýbúinn að fá Sigurð Inga tilað fallast á hábrú yfir voginn.Fyrst niður fyrir milljarða og svo upp fyrir fleiri milljarða. Hífa slaka sagði Óli Maggadon.
Akkúrat vitlaus endi sem ekkert gerir til að leysa verkefnið Sundabraut.
MBL:" Borgarstjóri segir fyrstu áfanga borgarlínu fara í útboð á næsta ári Nú sé verið að kynna drög Ráðherra segir verk tímafrekari en vænst var Mislæg gatnamót á Bústaðavegi frestast til 2025"
Dagur er kominn með nýjan handlangara til að framkvæma draumsýnir sínar.
Árni M. Mathiesen dýralæknir, stjórnarformaður félagsins Betri samgangna ohf., sagði við mbl.is að með skýrslunni sé stiginn stór áfangi og að loksins sé komið fram eitthvað sem hönd á festi sem geti verið útgangspunktur í umræðum um hönnun og framkvæmd verkefnisins.
Er ekki merkilegt út af fyrir sig að dýralæknar virðast nú vera kjörnir til að hafa forystu í öllu sem að samgöngugmálum Íslands lýtur?
Árni sagði að lengi hafi verið rætt um borgarlínuverkefnið í opinberri og almennri umræðu án þess að hafa fulla vitneskju um viðfangsefnið. Núna geta menn gert það með hliðsjón af þessum gögnum. Árni segir að þrjár megináskoranir séu í tengslum við borgarlínuverkefnið. Í fyrsta lagi að tímasetningar standist. Í öðru lagi að kostnaðaráætlun standist og í þriðja lagi að markmið um samgönguhegðun náist. Og þetta síðasta er lykilatriði í verkefninu í heild.
Er hægt að að byrja þetta verk á óraunsærri hátt? Breyta samgönguhegðun fólksins sem hefur fyrir löngu valið einkabílinn sem sinn samgöngumáta?
Dýr myndi Hafliði allur var sagt.Það verður mikill óþarfa kostnaður sem af þessum manni hlýst áður en hægt er að koma honum frá hvort sem er við Óðinstorg eða Elliðaár.
.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2021 | 00:18
Sigríður Jónatans
er látin sé ég í blöðunum.
Hún skipar sértakan sess í huga mér því hún er fyrsta stelpan sem ég dansa við á barnaballi frímúrara sem afi Ágúst býður okkur barnabörnunum til einhvern tímann í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll í stríðslok.
Hún kennir mér síðustu smellina í dönsum sem ég læri þarna hjá henni eins og "fyrst á réttunni, Óla Skans og vínerkruzz". Mér þykir rosa gaman að þessu og býð henni ítrekað upp. Strax orðinn kvensamur eða hvað? Svo man ég ekki hvort við dönsuðum meira saman í næstu 75 árin, Hún giftist vini mínum og bekkjarfélaga honum Þórði Þorbjarnarsyni sem deyr frá henni allt of ungur.
Hún er alltaf mjög prúð í framgöngu og er mikil vinkona frænku minnar Siggu Valfells. En milli okkar er ekkert sértakt samband til þess tíma þegar ég sé dánartilkynninguna.Þetta rifjast allt upp fyrir mér þegar ég sé þessa yndislegu prúðbúnu krakka á danssýningu í sjónvarpinu í dag.
En hún snertir streng í gömlu brjósti hún Sigga Jónatans fyrir gamlar stundir sem ekki gleymast þó líði ár og öld.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.7.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 46
- Frá upphafi: 3421136
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko