Leita í fréttum mbl.is

Leikflétta kommatittanna!

Auðvitað voru  þeir Steingrímur og Ólafur búnir að semja um Icesavelögin fyrirfram.

Ólafur fékk tækifæri á að slá sig til riddara hjá sextíuþúsundkallinum og komast hjá því að vera dreittur inni á Bessastöðum af mótmælalýð með rauð blys. Steingrímur fær að draga lögin til baka og halda lífi í stjórninni,  Sparar milljónir með því að sleppa þjóðaratkvæðinu, sem er auðvitað vita tilgangslaust. 

Svavarssamningurinn er jafngildur og glæsilegur hvað sem fyrirvörunum frá í sumar líður. Darling er líka pollrólegur með hann í höndunum þó Íslendingar deili um eitthvert ríkisábyrgðaform. Allt í þessu fína beggja megin hafsins.

Það bíður seinni ríkisstjórna bæði í Bretlandi og á Íslandi að taka málið upp aftur. Fólkið hefur verið haft að fíflum eins og fyrri daginn þegar þessir kallar eiga í hlut.

Lagleg leikflétta kommatittanna!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þvílíkt endemisbull !

Anna Einarsdóttir, 5.1.2010 kl. 15:30

2 Smámynd: Vestarr Lúðvíksson

þetta er fráleitt. að sjálfsögðu á þjóðin að fá að segja sítt álit í kosningum. Síðan á þessi ríkisstjórn að fara frá og utanþingsstjórn skipuð, sérfróðum mönnum, til að leiða nýja samningsgjörð við Breta og Hollendinga og setja aðilar viðræður um inngöngu í Evrópusambandið í salt um óákveðin tíma, helst að eilífu. Það er ekki tímabært að sækja um slíka aðild á hnjánum gagnvart bretum og Hollingum og hinum "vinunum" í bandalaginu !

Vestarr Lúðvíksson, 5.1.2010 kl. 15:38

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hægan, hægan, Halldór minn, hverju ertu að halda fram hér? Þú hefur ekkert fyrir þér um það, að þetta sé leikflétta Ólafs og Steingríns (þetta var reyndar ásláttarvilla, en ekki svo vitlaus!). Fréttamannafundur Stgr. og Jóhönnu í hádeginu bar því alls ekki vitni, að Steingrímur væri sáttur við ákvörðun forsetans! – Nú verð ég að taka undir með Önnu! – og honum Vestari!

Gleðilegt ár, annars, og þakka þér gamalt og gott!

Jón Valur Jensson, 5.1.2010 kl. 16:44

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

PS. Og ég veit ekki til þess, að Ólafur hafi verið kommúnisti. Farðu nú að byggja hlutina á réttum heimildum. Það er ekki nóg, að Ólafur hafi unnið með nokkrum kommúnistum. Ekki var Hannibal kommúnisti, þótt hann hafi um tíma verið með þeim í flokki.

Jón Valur Jensson, 5.1.2010 kl. 16:47

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Anna, Vestarr og Jón Valur.

Ég stend við mína kenningu. Lögin verða dregin til baka, ekkert þjóðaratkvæði. Stóð aldrei til.

Halldór Jónsson, 5.1.2010 kl. 16:48

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Kammatittur er mun grínagtugri  útgáfa af vinstrimanni heldur en alminnilegir moskvukommar voru.

Halldór Jónsson, 5.1.2010 kl. 16:49

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Já gleðilegt ár þið öll og þakka þér Jón Valur fyrir skemmtileg kynni á árinu.

Halldór Jónsson, 5.1.2010 kl. 16:51

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Svo að þetta er þá 'kenning' hjá þér, Halldór. Ekki eins og kristin kenning (doctrina), sem er það, sem kennt er, byggt á heimildum trúarinnar, heldur theoría einber eða tilgáta (hýpothesa). Hafðu þínar getgátur fyrir þig, en vel má vera, að lögin verði dregin til baka, en hitt þýðir ekkert fyrir þig að reyna að telja mér trú um, að Steingrímur hafi ekki ætlað sér að koma þessum lögum í framkvæmd – ég hef fylgzt of lengi með honum í málinu en svo, að ég trúi því.

Svo talarðu greinilega hér í metafórum um 'kommatitti'. Þetta er nú ekki til marks um áreiðanleika þessa tals þíns og síður en svo virðulegt um æðsta embætti þjóðarinnar.

Af hverju læturðu svona? Varla af því að þú hafir viljað Iceslave-þrælaklafann óforþjenta á þjóðina?!

Jón Valur Jensson, 5.1.2010 kl. 17:04

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Halldór gleðilegt ár, nú ertu kominn á flug. Hvar fékkstu svona rakettu?

Sigurður Þórðarson, 5.1.2010 kl. 17:10

10 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það þarf að kynna málstað almennings á Íslandi á alþjóðavetfangi, almenningur margra þjóða  býr við ofríki nútíma stjórnmálaklíka og þeirra gervi einkaframtakshölda.

Það getur vel verið að allt líti vel út á pappírum upp í fílabeinturnunum, en við finnum flest fyrir því á eigin skinni hvernig efnahagsendurreisn Breta með aðstoð IMF og Íslenskra stjórnvalda virkar samt er ekki nema brot af henni komið fram, samanber síðustu skattahækkanir. 

Það er búið að flytja stóran hluta atvinnuleysis úr landi.

Nú er tækifæri til að taka öll má upp að nýju í heildarsamhengi, reisa hér upp Ísland á réttum forsendum grunni sem meirihlutinn getur sætt sig við.

Ísland getur borgað sanngjarna hluta af sameigulegum afleiðingum EU regluverksins, Einkabankarnir lokuðu ekki á sig lánalínum einhliða.  Hvernig áttu þeir að halda áfram uppbyggingu í EU ef  EU lánadrottnar héldu að sér höndum vegna þess að allt í einu var það íbúatala Íslands sem skipti öllu máli. Hávaxta reikningar utan Íslands áttu brúa bilið til byrja með.

Þjóðartekjur Ísland lækkuðu síðustu 15 árin í pundum og evrum , og meint góðæri birst ekki fjöldanum í auknum tekjum eða skuldlausum eignum.

Júlíus Björnsson, 5.1.2010 kl. 20:06

11 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Nú hefurðu farið röngu megin framúr Halldór! Verðum við ekki bara að viðurkenna að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, hafi komið okkur þægilega á óvart! Hann er samkvæmur sjálfum sér og þetta er rökrétt framhald af synjun hans 2004. Á eftir A kemur nefnilega B! Við hljótum að fagna þessari sögulegu stund. 

Jón Baldur Lorange, 5.1.2010 kl. 22:59

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Góði vinur Lorange  

Sýndi Davíð okkur ekki hvernig maður fer með svona forseta ? Ég held að ég sjái þetta rétt. Hann dregur lögin bara til baka.

Ef hann gerir það ekki þá finnst mér óþarfa eyðsla á peningum að hafa atkvæðagreiðslu í apríl Miklu betra að sameina þetta sveitarstjjórnarkosningnum sem vel geta farið fram í byrjun maí.

Halldór Jónsson, 5.1.2010 kl. 23:04

13 Smámynd: hilmar  jónsson

Ekki spyr maður að gáfunum hjá þér Halldór...

hilmar jónsson, 6.1.2010 kl. 00:14

14 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Ég tel tíðindi dagsins vera í ræðu fjármálaráðherra sem er í meðfylgjandi fréttasyrpu Channel 4 um synjun ÓRG. Steingrímur virðist hafa leynt þjóðinni raunverulegri skoðun sinni.  Það eru 3 fréttamyndir tilheyrandi þessari síðu það efsta er áhugavert, sérstaklega innlegg Jóns Daníelssonar og svo það neðsta viðtal við Steingrím

http://www.channel4.com/news/articles/business_money/iceland+bank+collapse+repayment+in+doubt/3488862

Kjartan Sigurgeirsson, 6.1.2010 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3418247

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband