Leita í fréttum mbl.is

Kælum málið.

Er ekki rétt að kæla þetta Icesave mál niður. Segja Bretum eða frekar Hollendingum sem eru líklega æstari, að slappa af.

Þeir eru með þennan glæsilega Svavarssamning í gildi og ríkisábyrgðina frá í sumar. Geta þeir ekki búið við það í eitt ár ? Plís John Bull Brown.

Við hættum við þjóðaratkvæði og frekari æsingar. Drögum lögin til baka. Kælum málið.

Við getum (may)sent beiðni um nýja samninga seinna.

Kælum málið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Tíminn vinnur með okkur. Bretar og Hollendingar hafa orðið sér til skammar með offorsinu og þeir eru farnir að átta sig á því. Þeir áttu að leysa málið strax með góðu. Nú fylgjast aðrar skuldugar þjóðir með framgangi málsins og hlakkar í þeim. Þetta getur orðið erfitt fyrir lánardrottnana þegar fram í sækir.

Baldur Hermannsson, 8.1.2010 kl. 11:19

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er sjálfstæðisflokkurinn farinn að draga  í land með þjóðaratkvæðagreiðslu? Óttast þeir opið lýræði? Kæmi mér ekki á óvart. Það verður gaman að sjá hvernig eir kjósa í því máli í dag.  Ef Þeir setja sig gegn því, þá eru þeir búnir að eyðileggja málstaðinn og klúðrið verður alfarið skrifað á þá.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.1.2010 kl. 12:04

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Jón Steinar, engan svona barnaskap. Það er komin upp allt önnur staða en var fyrir áramót. Þá var besti kosturinn sá að stefna á þjóðaratkvæði. Nú þegar ÓRG hefur hafnað lögunum er sterkast að semja á nýjum grundvelli. Einkennilegt hve margir vinstri menn skilja ekki svona einfalda hluti. Breytt vígstaða, breytt hernaðaráætlun. Elementary, my dear Watson.

Baldur Hermannsson, 8.1.2010 kl. 12:22

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Baldur: Samningurinn er í gildi þar til honum hefur verið hafnað af þjóðinni.  Það er ekki um neitt að semja. Við berum engar skyldur né skuldbindingar í þessu máli. Verði þessu hafnað í þjóðaratkvæðum, þá á dómstólaleiðin að verða næsta skref.  Sú leið, sem alltaf átti að fara.  Það á ekki að vera háð vilja neins.

Ég skil samt vel að Sjálfstæðismenn hræðist afnám þing og flokkræðis. Barátta þeirra snýst nú um að ná völdum.  Þeir eru stórhættulegir líka. Hér eru hagsmunaklíkur gamalla og nýrra peninga, sem slítast á um hræið. Það er mergurinn málsins. Spillingin lifir og blundar undir sem aldrei fyrr.  Hulin markmið stjórna málflutningi allra.

Þið leikið tveimur skjöldum að sama skapi og Samfó. Það er klingjandi klárt. VG er stefnulaust flokkslíki, sem enginn tekur mark á og hefur ekki taðið í lappirnar né staðið við nokkuð af því sem þeir lugu sig inn á þing með. 

Ég ætla að vona að ný hreyfing vakni upp úr þessu og jarði þessi öfl endanlega.  Sturlungaöldin er liðin. Þótt fyrr hefði verið.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.1.2010 kl. 15:56

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Það er engin þörf á enn einni Hreyfingunni. Treystu Guði og kjóstu Sjálfstæðisflokkinn.

Baldur Hermannsson, 8.1.2010 kl. 16:00

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er enginn svo vitlaus að ætla sjálfstæðisflokknum traust á komandi árum. Það hefur engin gleymt enn.  Það er engin sem væntir þess að sjálfstæðismenn muni standa vörð um hagsmuni fólksins í stað fjármagnseigenda, eins og núveranfdi stjórn.  Að því leyti eru þeir nákvæmlega sama tóbakið. Sama plágan.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.1.2010 kl. 16:02

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón minn Steinar,

Geturðu nokkuð sagt mér hvar þessi Sjáfstæðisflokkur sem þú þekkir býr ? Þó ég hafi verið í honum í meira en hálfa öld þá kannast ég ekki við lýsingar  þínar.

Þú ert sjálfsagt miklu greindari en ég í alla staði. Þessvegna get ég eiginlega ekkert komist áfram með þetta ávarp þitt "þið sjálfstæðismenn " Ég þekki marga sjálfstæðismenn og þeir birtast mér ekki sem eitthvað safnheiti sem hægt er að nota um mig eða við mig.  Við erum sammála um hugsjónagrundvöll en oft ósammála um margt annað. Við leitum niðurstöðu á grundvelli hugsjónanna. Vegna þeirra erum við í Sjálfstæðisflokknum með venjulega meira en þriðjungi þjóðarinnar.

Ég botna yfirleitt  ekkert í því hvað þú ert að tala um þegar þú ert að tala um stjórnmál. Hvernig eiga þau að fara fram að þínu viti ? Átt þú að koma fram með eina tillögu sem við öll svo samþykkjum ? Eða á einhver annar að gera það ? Og hann má bara ekki vera í Sjálfstæðisflokknum ?

Ættirðu ekki að taka þér tak Jón minn og hugsa svolítið til tilbreytingar áður en þú setur fram svona metafysik eins og birtist í skrifum þínum

PS Er þetta ekki örugglega nýjasta myndin af þér sem birtist með skrifunum?

Halldór Jónsson, 9.1.2010 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3418247

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband