Leita í fréttum mbl.is

Ísland og Haiti.

Læknirinn Gunnar Skúli Ármannsson skrifar athyglisverða grein í Moggann í dag. Þar dregur hann fram hliðstæðu við það hvað AGS og okkar svokölluðu vinaþjóðir okkar  eru að gera á hluta okkar Íslendinga.

Grípum niður í greinina fyrir þá em ekki lesa Mogga :

"Þegar varað er við því að heil þjóð lendi í skuldafangelsi hafa menn í huga m.a. land eins og Haítí. Árið 1804 brutust þeir undan yfirráðum Frakka. Frakkland hafði áður auðgast vel á auðlind landsins, »svarta gullinu«, þ.e. þrælunum, íbúum Haítí. Frakkar voru að vonum ekki sáttir. Þess vegna settu þeir, ásamt vinum sínum Bandaríkjamönnum, Spánverjum og Bretum verslunarbann á Haítí. Í dag er slíkt ástand kallað »að vera ekki hluti af alþjóðasamfélaginu«. Þess vegna neyddist Haítí til að skrifa undir samning við Frakka árið 1825. Þeir samþykktu að borga bætur til franskra þrælaeigenda, þ.e. þrælarnir sem brutust undan þrældómnum voru neyddir til að greiða bætur til þrælahaldaranna! Upphæðin var risastór, 150 milljónir franka í gulli, sem tekin var að láni hjá bönkum í Frakklandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Þeir samþykktu að borga kröfuna í þeirri von að verða gjaldgengir á mörkuðum heimsins. Það tók þá 122 ár að borga skuldina. Um aldamótin 1900 fór um 80% af ráðstöfunarfé þeirra í afborgun af þessari skuld.

 

Síðan frönsku skuldinni lauk, 1947, hafa vesturveldin, alþjóðasamfélagið, haldið áfram að kúga Haítí. Skuldsetning Haítís er gífurleg. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stjórnar endurheimtum skuldanna. AGS krafðist afnáms verndartolla á hrísgrjónum og þar með flæddu bandarísk ríkisstyrkt hrísgrjón yfir Haítí. Hrísgrjónabændur á Haítí fóru þá á hausinn og landið er ekki sjálfbært með mat lengur. Atvinnuleysi er um 75%. Laun duga varla fyrir mat. Einræðisfeðgarnir Papa Doc og Baby Doc stofnuðu til 45% af skuldum Haítís og megnið lenti í einkabankabókum þeirra, með góðfúslegu leyfi alþjóðasamfélagsins. Í þessu tilfelli er alþjóðasamfélagið sammála um að skuldir sem vanhæfir stjórnendur Haítís stofnuðu til skuli greiddar af skattgreiðendum.

 

Íslendingar, sem hluti alþjóðasamfélagsins, ennþá, bera ábyrgð á neyð Haítís. Við getum sjálfsagt samþykkt að við höfum ekki farið vel með Haítí. Sjálfsagt fórnarkostnaðurinn af því að vera þjóð meðal þjóða. Núna er röðin komin að Íslandi, okkur er boðið inn í sama klefa og Haítí hefur verið í frá 1825. Sömu lönd hóta okkur verslunarbanni og einangrun. Er uppgjöf valmöguleiki þrátt fyrir ofurefli? Ekki ef örlög Haítís verða okkar. "

Sjá menn ekki samlíkinguna ? Hvernig menn eru kúgaðir til að undirgangast jarðarmen með nauðungarsamningum ? Nauðungarsamninga er engin skyldur til að halda, fremur en Gizur Þorvaldsson við eiða sína við Sturlu Sighvatsson á Apavatni.

Mér finnst þetta meistaraleg samlíking hjá lækninum. Alveg eins og Versalasamningarnir hleyptu Hitler til valda og heimsstríðinu seinna, þá mun Icesave snúa Íslendingum frá samstarfi við kúgarana í AGS og Evrópubandalaginu.

Það er ástæða til þess að við látum okkur Haiti meira varða. Mína virðingu og þakkir sendi ég þeim íslensku hetjum okkar sem fóru á staðinn til að rétta Haitibúum hjálparhönd svo og öllum sem létu eitthvað rakna við þá í neyðinni. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór.

Ég hafði ekki heyrt þetta í svona smáatriðum.

Þetta er rosaleg meðferð á einni þjóð ! Það var gott að  lesa  þessa vitneskju !

Kveðja.´

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 20.1.2010 kl. 17:24

2 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Halldór,

ég þakka hrósið.

Gunnar Skúli Ármannsson, 20.1.2010 kl. 18:34

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Las þessa grein með morgunkaffinu og er búin að vitna í hana t.d. á facebook. Af þessu getum við séð afleiðingar friðarkaupa,sem mun                 brjóta niður sjálfsvirðinguna,þar með aflið,getuna til að ráða okkur sjálf. Kveðja.

Helga Kristjánsdóttir, 20.1.2010 kl. 23:25

4 identicon

Segi það sama....setti greinina hans á feisið hjá mér......mér finnst alltof mikið af fólki sem nennir ekki lengur að fylgjast með þessu Icesave máli og veru AGS....allt hefur sínar afleiðinar

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 12:50

5 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Halldór,

Ég heyrði í viðtali í gær á CBC að þessi skuld Haiti við Frakka er metinn á jafnvirði 45 milljarða bandaríkjadollara í dag eða um 5.600 milljarða íslenskra króna.  Miðað við núverandi íbúatölu (um 9 milljónir) þá jafngildir það um 1,5 milljörðum dollara fyrir Ísland ef ég reikna rétt.  Ég veit svosem ekki hvort þetta dæmi er sambærilegt við Ísland, en meðferð þjóða á Haiti er algjörlega skammarleg.

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 21.1.2010 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418216

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband