Leita í fréttum mbl.is

Traustið

Einn góður maður lýsti mannheimum í kreppunni þannig, að ef maður horfði á jörðina utan úr geimnum þá sæjust engin missmíði. Umferðin væri á götunum, mannfólkið væri á ferð og flugi, húsin og Kínamúrinn væru á sínum stað. Það sem vantaði sæist ekki. Það væri traustið. Traustið milli manna væri horfið.

Ef fólk lítur í eigin barm og spyr sig: Hefur traust mitt á öðrum beðið skipbrot ? Treysti ég meðbræðrum mínum verr en áður ? Trúi ég verr en áður því sem mér er sagt ? Efast ég um ágæti fyrirmenna og fólks sem vill ráða fyrir mér ? Treysti ég Alþingi eins vel og áður ?

Ef maður veltir fyrir sér þeirri staðreynd að Alþingi ráðstafar 70 % af öllu opinberu fé en sveitarsjóðir 30 %. Veltir svo fyrir sér með hvílíkri ósanngirni Alþingi er kosið, þar sem sumir þingmenn eru þar fyrir þriðjung af atkvæðum þéttbýlisþingmanna. Sveitarstjórnir eru hinsvegar kjörnar með einu atkvæði á íbúa. Ýtir þetta undir traust mitt á Alþingi ? Er rétt gefið? Í Svíþjóð er þetta ráðstöfunarhlutfall þveröfugt.

Hvað er Alþingi að gera ? Hvað er ríkisstjórnin sem hefur völdin í gegnum þetta Alþingisapparat að gera ? Pukrast með leyniskýrslur, blanda sér með svívirðilegum hætti í málefni sveitarstjórna eins og pólitísk aðför Steingríms J. að Gunnar Birgissyni hér í Kópavogi sem er gengin út yfir allt velsæmi.

Hvar er traustið til bankanna hans Steingríms ? Hverjir eiga núna Íslandsbanka og Kaupþing ? Steingrímur lýgur því blákalt að okkur að hann viti það ekki. Hann lýgur því líka blákalt að hann viti ekki hvað stendur í Hrunadansskýrslunni sem hann skýlir sér á bak við. Hann lýgur því líka að það verði heimsendir ef þjóðin felli Icesave.

Á ég að bera traust til Bankasýslu Ríkisins og Íslandsbanka ? Á ég að bera traust til kúlubréfadrottninga ? Á ég að trúa því að Jón Ásgeir og Bjarni Ármanns séu ekki í eigendahópi nýju bankanna ? Get ég bara ekki alveg eins trúað því að svo sé meðan annað er ekki beinlínis sannað? Á ég að trúa því að það sé þjóðarnauðsyn að Bónusfeðgar sitji við stjórnvölinn í Högum ? Að Bakkabræður stjórni Símanum ? Hæfileikar þessara manna séu svo einstakir að engir aðrir geti það sem þeir geta ?

Að hæfileikar Steingríms séu svo einstakir að hann sé ómissandi ? Eða Jóhönnu ?

Hver biður mig um traust ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Ég treysti engum! Og ég er líka viss um að Bjarni Ármannsson, Jón Ásgeir, Finnur Ingólfsson, Björgólfur Thor og Björgólfur eldri eru allir í eigandahópum nýju bankanna. Alla vega trúi ég ekki örðu fyrr en það verður sannað af óháðum erlendum aðilum.

Það er hins vegar óvíst að þetta komi nokkurn tíma í ljós því ég trúi því að þegar þessir aðilar komi eignarhlut sínum á hljólátan hátt út úr þessu þegar þeir telja sig hafa ávaxtað hlut sinn í Vogunarsjóðunum nægilega. En auðvitað sér valdsstjórnin til þess að íslenskur almenningur fær aldrei neitt að vita um þessi mál, því það er ekki valdsstjórninni hagstætt að grásvartur almúginn fái yfirleitt réttar upplýsingar um eitt eða neitt.

Það kæmi ekki á óvart að hún væri nú að ritskoða og skipta sér af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og það sé í raun ástæðan fyrir því sem þá nefnd skipa gráti sig í svefn á hverju kvöldi......

Svona er Ísland í dag, svona hefur Ísland alltaf verið og svona mun Ísland alltaf vera..... Og svo eiga yfirlýstir lögbrjótar að fjalla um efni skýrslunnar.... Hvílíkt rugl.....!!!

Ómar Bjarki Smárason, 27.1.2010 kl. 22:16

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Netop vinur Ómara Bjarki,

Ég er á sama máli með þessa kurfa og eignina á bönkunum. Mér finnst Íslandsbanki ekki geðslegur þó að fyrrum átrúnaðargoð mitt hann Friðrik Sophusson, sem talaði svo fallega um báknið burt hér um árið, sé orðinn formaður fyrir fimmhundruðþúsundkall. Hann er með kúlubréfadrottninguna hana  HvítaBirnu sem bankastýru. Bankasýsla ríkisins sem heyrir undir samskonar kúlubréfaprinsessu Elínu Jónsdóttur. Þarf ekki leyniþjónusta Íslands að nasa uppi þegar ver'ður haldinn hluthafafundur í bankanum. Þangað hlýrur Steingrímur að mæta fyrir hönd Ríkisins.

Heiður á Vilhjálmur Bjarnason skilið fyrir að opna okkur glufu inní spillngargryfju Jóns Ásgeirs í Glitni.

Hugsaðu þér að kallinn í Seðlabankanum kemur í sjónvarp til að tilkynna um að stýrivextir hafi verið lækkaðir um 1/2 % niður í 9.5 % í mínus verðbólgu. Ætli Villi Eigls standi ekki á haus í gleði sinni og Gylfi Arnbjörnsson með honum. Í þjóðfélagi sem er svo ráðalaust að enginn vill taka lán því það er ekkert efnahagslíf í gangi. Þá tala menn um að stýrivextir uppá 10 % skipti einhverju máli þegar fólk situr í spennitreyju gjaldeyrishafta og tvöföldun myntkörfulána  vegna uppskrúfaðs handstýrðs gengis ríkisstjórnarinnar.

Halldór Jónsson, 27.1.2010 kl. 22:35

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Við erum þjóð með kúlu í keðju við ökklann. Þannig verður lífið hér næstu áratugina, fyrir fjöldann, en þeim sem komnir eru á eftirlaun eftir dygga þjónustu við valdsstjórnina þurfa vitanlega smávægilegan kaupauka til að geta skrymt eitthvað fram á ævikveldið.... Valdsstjórnin sér um sína....

En farðu varlega þegar þú spælir þér egg á morgnana svo ekki verði litið á það sem mótmæli ef of fast er kastað.... kannski gæti pannan hafa einhver ættartengsl við einhvern í dómskerfinu....

Kannski er ekki langt í að Iceland Express og Icelandair hætti að fljúga og flugvélar frá Aeroflot taki flugið yfir....

Kannski er það stefna stjórnvalda að svelta þjóðina svo að hún hafi ekki þrótt í byltinguna.... en fróðlegt verður að sjá hvað gerist í mars, þegar og ef valdsstjórnin hleypir skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis í gegn..... Kannski fer Mogginn að seljast aftur þegar hann fer að birta valda kafla úr skýrslunni, ef henni verður hleypt út fyrir læstar dyr Alþingis....

Ómar Bjarki Smárason, 27.1.2010 kl. 23:02

4 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Sæll Halldór,

Spjallaði við góða vinkonu í dag, sem var einmitt að skrifa grein um Traust.

http://visir.is/article/20100127/SKODANIR04/824953114

Það urðu smá skoðanaskipti hjá okkur skessum, þó að við keyrum alla jafna á sama sporbaug.

Ég held því fram að "traust" verði ekki framkallað si sona.  Tortryggni og vantraust mun ráða ríkjum mörg komandi ár.  Því fyrr sem skýrslan kemur út, og tekið verður á þeim málum, sem eru andlag, upphaf og orsök trúnaðar og traustbrestsins, því fyrr getum við farið að treysta aftur.

You got to practice what you preach! Segir allt sem segja þarf.

Traust, virðing og heiðarleiki verður ekki keyptur eða seldur,  annað hvort er einstaklingur  með þetta, eða ekki.

Þess vegna finnst mér líka gaman að spjalla við þig, þó við deilum sjaldan sömu skoðunum.

Lifðu heill

Jenný Stefanía Jensdóttir, 28.1.2010 kl. 03:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband