7.2.2010 | 19:18
You aint seen nothing yet !
.
Á árum áður töldu flestir að Alþýðubandalagið myndi aldrei fá undirtök í stjórn ríkisins. Lýðræðisöflin, sem þannig skilgreindu sig voru sammála um að hið gamla Moskvuvaldseðli kommúnismans myndi aldrei höfða til breiddar Íslendinga og það væri hægt að halda þeim í spennitreyju þó verslað væri við þá um einhver minni mál .
Þetta voru taldir sérvitringar sem gengu Keflavíkurgöngur hugsjónum sínum til framdráttar. Þarna voru róttæklingar og pólitísk furðufyrirbrigði undir ýmsum nöfnum eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson, Svavar Gestsson og Álfheiður Ingadóttir, Birna Þórðardóttir geta verið dæmi um. Fólk sem virt var fyrir sínar einbeittu skoðanir en kjósendur vildu færri þeirra heiðra með atkvæði sínu.Nú eru breyttir tímar. Gamla Alþýðubandalagið er ekki lengur til. En það hefur +i staðinn sáð sér inn í tvo flokka sem nú fara með öll völd. Aðeins tveir ráðherrar í ríkisstjórninni geta talist vera úr gamla Alþýðuflokknum.Hitt eru hreinir allaballar með öllu því sem því fylgir. Þannig eru áhrif þess bandalags orðin margfalt meiri en áður var, þegar Alþýðuflokkurinn átti í sífelldu dauðastríði sínu í samkeppni við Sjálfstæðisflokkinn.
Kratarnir reyndu inn á milli að skapa sér sérstöðu með sprengingum og flugeldasýningum í hvert sinn þegar þeir virtust um það bil að deyja út. Bandalag Jafnaðarmanna, Þjóðvaki og hvað þessir jafnari meðal jafnaðarmann hétu. Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Baldvin Hannibalsson lögðu grunninn að þessu þegar þeir ferðuðust um landið á rauðu ljósi og boðuðu fagnaðarerindi sameinaðra vinstri manna. Báðir héldu auðvitað að hvor væri að fífla hinn, en nú er ljóst að Ólafur hafði vinninginn.
Það er alkunna að mikill hugsjónaágreiningur hefur verið með þjóðinni um erlenda fjárfestingu í landinu , s.s. orkufrekan iðnað eins og álverin og járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Flestir vilja ekki selja landgæðin sjálf meðan aðrir kæra sig kollótta.
Menn sáu lengi vel loppur alheimskapítalismans teygja sig um sveitir landsins og uppræta hina fornu friðsæld í sveitum landsins. Margir þjóðernissinnar vildu ekki þessar breytingar og bændafólk leitað gjarnan skjóls í Framsóknarflokknum. Þeir vildu búa áfram að hinum fornu atvinnuvegum . En þjóðinni fjölgaði of hratt af ýmsum ástæðum og það varð ljóst að endimörk voru á því hversu mikið sveitirnar og fiskimiðin gátu framleitt. Það hlaut að koma minna og minna í hvers hlut ef ekkert nýtt kæmi í staðinn.
Þegar ráðist var í Búrfellsvirkjun og álverið í Straumsvík voru allir vinstri menn heiftarlega á móti þeim framkvæmdum. Virkjunin myndi tapast í næsta Heklugosi og þá yrði rafmagnslaust í Straumsvík Hjörleifur Guttormsson varð iðnaðaráðherra í einni vinstri sveiflunni eftir þetta og tók til óspilltra málanna við að vinna stóriðjustefnunni það ógagn sem hann mátti.
Kenningar hans um Hækkun í hafi á álinu hjá Íslenska Álfélaginu sáði fræjum tortryggni í garð útlendinga í sálirnar og orðspor Íslands skaðaðist varanlega í áratugi. Erlent fjármagn tók sveig fram hjá Íslandi talsvert engi á eftir fremur stutta valdatíð Hjörleifs.
Nú er Alþýðubandalagið á ný komið með undirtök í stjórn Íslands. Í VG er að finna kjarna gömlu harðlínukommana, sem eru ávallt tilbúnir að selja hvað sem er fyrir völd og aðstöðu til að sá sér út í innviði samfélagsins. Þetta persónugerist um þessar mundir í Steingrími J. Sigfússyni. Með ofstopa hans, eins og menn urðu eftirminnilega vitni að í varnarræðu hans fyrir félaga Svavar á dögunum, sem sjálfur Adolf hefði verið fullsæmdur af, er VG er búið á einu ári að koma í veg fyrir allar stóriðjuframkvæmdir í landinu og rýja landið öllu trausti til margra ára.
Margir telja nú útséð um að það verði byggt álver í Helguvík, engin stækkun verði í Straumsvík, ekkert álver á Bakka lengi eftir þessa ríkisstjórnartíð.. Þar með verður ekki virkjað í neðri Þjórsá um árabil, engin suðvesturlína lögð, og enginn tilgangur með að virkja við Búðarháls þó Jóhanna tali um þau áform sem raunveruleg. VG hefur þá ná fram skammtímamarkmiðum sínum um stóriðjustopp eins og þeir höfðu lofað að beita sér fyrir.
En sjá þeir fyrir næstu leikfléttu kratanna ?
Þó að VG hafi nú fengið að leggja grunninn að þeirri efnahagslegu niðurlægingu næstu framtíðar sem Samfylkingin þarf á að halda til þess að hnípin þjóð í vanda telji sig eiga einskis annars úrkosta en samþykkja inngönguna í ESB., þá má horfa lengra fram. Fyrir kjósendur verða engar aðrar leiðir í botni kreppunnar í boði en að segja já við ESB-aðildinni. En að því fengnu mun Samfylkingin láta til skarar skríða gegn VG. Þá mun hún láta Fréttablaðið og Stöð 2 búa til skrímsli úr Steingrími og VG á grundvelli skemmdarverkanna sem þá munu heita svo. VG verður einangrað pólitískt til næstu áratuga eftir það. Það verður hinsvegar lengra verk að hreinsa út lykilembættismennina sem meinvarpið verður þá búið að sá um allan þjóðarlíkamann þegar að þessu kemur. En fall þeirra og vinslit munu verða afgerandi.
Lífskjör Íslendinga eru nú þegar stórsködduð til langrar framtíðar umfram það sem hjá hefði mátt komast, vegna þess að VG var leitt til valda að ráðvilltri þjóð. Og þau eiga fyrirsjáanlega eftir að versna mikið enn. Hvert ár kommúnista við völd hefur jafngilt þremur til fimm árum í endurreisnarstarfi. Þess vegna voru kjörorðin varist vinstri slysin og aldrei aftur vinstri stjórn notuð við flestar kosningar á síðustu öld
Sé handritið að núverandi leiksýningu eitthvað í þá veru sem hér hefur verið lýst þá gætu mörgum sýnst dimmir tímar framundan í þjóðlífi Íslendinga. Botninum virðist þá ekki endilega vera ekki náð í atvinnumálunum sem flestir hafa áhyggjur af. Tuga prósenta atvinnuleysi mun þurfa til þess að tryggja aðild Íslands að ESB. Þetta er á góðri leið að verða að raunveruleika meðan VG hefur undirtök í efnahagsmálum Íslands.
Nú er liðið heilt ár síðan þessi ríkisstjórn tók við. Mörgum finnst lítið hafa gerst í þeim málum sem á kjósendum brunnu þá. Tíminn hefur farið í allt annað og að mörgum finnst lítt uppbyggilegt þref um hverjum sé meira að kenna um hrunið, útrásarvíkingunum eða regluverkinu. Og síbyljan heldur áfram dag hvern og hálf þjóðin virðist trúir því að einhver væntanleg skýrsla um löngu liðna atburði breyti einhverju um framtíðina. Ríkisstjórnin hreykir sér af endurreisn bankakerfisins með því að þeir eru nú í eigu einhverra sem enginn veit hverjir eru.Síðustu fréttir benda til þess að útrásarvíkingar komi þar við sögu og hefjist á ný til vegs og virðngar.
Brostnar eru vonir fólksins um skjaldborg um heimilin og úrræði í skuldavandanum. Sá bikar er enn ódrukkinn. Á meðan eru klisjurnar endurteknar um það sem vinstri stjórnin ætlaði að færa fólkinu en færði því nýtt skattkerfi í staðinn.
You aint seen nothing yet !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:27 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Spurt er
Viltu breyta klukkunni?
Hvaða fyrirmenni treystirðu best ?
Athugasemdir
Halldór. Svika-skíturinn þarf uppgjör Íslensks lög-dóms-uppgjörs. Hér er hægt að ásaka og skíta út alla Íslendinga ef við sem þjóð tökum ekki svikarana! En til hvers að standa í slíkri vitleysu á meðan allt fellur hér til helvítis og til ESB!!! Sameinuð getum við barist í það stríð og sundruð töpum við öllu sem hægt er að tapa í okkar ágæta landi.
Við verðum að læra mála-miðlunar-leið ef við ætlum að bjarga því sem bjargað verður. Við verðum að hætta öllu pólitísku rugli akkúrat núna. Ég hef trú á að þú styðjir réttlætið Halldór!
Gangi okkur öllum sem best. M.b.kv. Anna
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.2.2010 kl. 22:50
Trúir þú þessu virkilega?
Ég sé ekkert nema frjálshyggjusóða hvar sem glittir í Samfylkinguna.
Billi bilaði, 8.2.2010 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.