Leita í fréttum mbl.is

Þú veldur mér áhyggjum !

Fyrir þá sem ekki vilja lesa færsluna á undan á ensku, þá hef ég snarað henni hér:




'Þú veldur mér  áhyggjum ! " Eftir  John Maniscalco

Flugstjóra hjá American Airlines

Ég hef verið að reyna að segja þetta síðan 911, en þú veldur mér áhyggjum . Ég vildi að það væri ekki svo. Ég vildi, að þegar ég geng niður stræti þessa lands sem ég elska, að litur þinn  og menning blandaðist  við hið fallega mannlega umhverfi sem við njótum í þessu landi. En þú blandast því ekki lengur. Ég tek eftir þér, og það veldur mér áhyggjum.

Ég tek eftir þér því ég get ekki gert að  því.

Fólk frá þínum heimalöndum sem játar múslimatrú, hefur verið að ráðast á og drepa samborgara mína og vini okkar í meira en 20 ár núna. Ég skil ekki að fullu  klögumál þeirra og hatur, en ég veit að ekkert getur réttlætt mannvonsku árásanna.

Þann 11. september stálu arabískir múslimar fjórum farþegaþotum í landi mínu. Þeir skáru kvenfólk  á háls fyrir framan andlit  barna  og stungu aðra ruddalega til bana.   Þeir tóku yfir stjórn á flugvélunum og steyptu þeim í byggingar og drápu þúsundir af stoltum feðrum, elskandi sonum, vitrum öfum og ömmum, glæsilegur dætur,  bestu vini, uppáhalds þjálfara, óttalausa opinbera starfsmenn og mæður barna.

Palestínumenn fögnuðu, og  Írakar voru frá sér numdir af gleði eins og flestallir í Arabaheiminum. Svo  ég tek eftir þér núna. Ég vil ekki vera áhyggjufullur. Ég vil ekki vera nagaður að af sömu reiði og hatri og fordómum, sem eyðilögðu  sálir þessara hryðjuverkamanna.  En til þess þarf ég  hjálp þína. Sem skynsamur Bandaríkjamaður, sem reynir að vernda landið sitt og fjölskyldu í óskynsömum  og ranglátum  heimi,  þá verð ég að vita hvernig ég á að greina mismuninn á milli þín og arabískra- múslimskra hryðjuverkamanna.

Hvernig á  ég að greina á milli sannra bandarískra  arabískra- múslima og arabískra- múslimskra hryðjuverkamanna í samfélagi okkar,  sem sækja skóla okkar, njóta garðanna okkar, og búa í  samfélagi okkar undir vernd stjórnarskrár okkar, meðan þeir eru í  samsæri næstu árása, sem mun slátra þessum sömu góðu nágrönnum og börnum þeirra?

Atburðirnir 11. september breyttu svarinu. Það er ekki mitt að dæma hver ykkar elskar landið okkar, með öllum trúarbrögðum þess, með öllum mismunandi borgurum þess, með öllum göllum þess. Það er kominn tími til þess að allir arabískir-múslímar í þessu landi ákveði þetta fyrir mig.

Ég vil vita, ég krefst  þess að fá að  vita, og ég hef rétt til þess að vita, hvort þú elskar Ameríku eða ekki. Ert þú trúr flagginu okkar?  Viltu sýna það stoltur fyrir framan hús þitt, eða á bílnum þínum?  Ert þú biðja þess í mörgum daglegum bænum þínum  að Allah  muni blessa þessa þjóð, að hann mun vernda hana og leyfa henni að dafna? Eða ertu að biða þess að Allah muni tortíma henni í einu  ykkar Jihad ? Ertu þakklátur fyrir það frelsi sem aðeins þessi þjóð nýtur?  Frelsið,  sem var greitt fyrir með blóði hundruða þúsunda föðurlandsvina,  sem gáfu líf sitt fyrir þetta land? Ertu tilbúinn að varðveita þetta frelsi með því sjálfur að færa hina endanlegu fórn fyrir föðurlandið?  Elskarðu Ameríku?  Ef þessi skuldbinding  er þín, þá þarf ég að biðja þig um að þess að þú byrjir að láta mig vita af því.

Múslimaleiðtogar þínir  í þessu landi  ættu núna að vera að láta flæða yfir fjölmiðla  harðar staðreyndir um trú þína, og þær hörðu  aðgerðir sem þú ætlar að nota  í samfélagi þínu  og sem trúarbrögð til þess að vernda Bandaríki Norður-Ameríku. Gerðu svo vel að hafa ekki yfir velviljaðar þulur um að þér þyki leitt að saklaust  fólk hafi látið lífið  af því að ég áhyggjur af því hverja þú telur saklausa. Ekki fleiri velviljaðar þulur um  fordæmingu á tilefnislausum árásum af því að ég hef áhyggjur af því hvað þú telur tilefnislaust.  Ég hef ekki lengur þörf fyrir samúð. Ég hef  bara áhuga á aðgerðum.  Hvað munt þú gera fyrir Bandaríkin – hið mikla land okkar - á þessum örlagatímum, á þessum stríðstímum?

Ég vil sjá arabíska -múslimar veifa flaggi Bandaríkjanna á götunum. Ég vil heyra þig syngja  „Allah blessaðu  Ameríku " Ég vil sjá unga arabíska-múslíma  ganga í her okkar. Ég vil sjá framlög þín af peningum, tíma og tilfinningum til
fórnarlamba þessarar slátrunar  og til þessarar þjóðar í heild sinni.

FBI er með lista yfir 400 manns sem þeir vilja tala við varðandi WTC árásina. Margir þessara einstaklinga búa og starfa í Múslima samfélögum . Þú þekkir þá. Þú veist hvar þeir  eru. Framseldu okkur þá núna!   En hingað til hef ég lítið séð af því  að þú reynir einu sinni að nálgast þannig aðgerðir .Í stað þessa hef séð þá  þegar lokað og dult samfélag þitt loka jafnvel enn fastar að sér.  Þú hefur horfið af götunum. Þú hefur sett  vopnaða verði til að tryggja  öryggi við stofnanir þínar. Þú hefur hótað málsóknum . Þú hrópað  á vernd okkar fyrir hefndaraðgerðum gegn þér.

Hinir fáu  fulltrúar arabískra-múslíma  hafa í fjölmiðlum  hafa verið í varnarstöðu og lagt að jöfnu árásirnar við aðrar.Þeir virðast meira í mun um að tryggja að Bandaríkjamenn sanni hver var ábyrgur fyrir hryðjuverkaárásinni. Þeim virðist meira í mun að vernda aðra múslima frá ofbeldi sem beinist að þeim í Bandaríkjunum og erlendis heldur en að styðja land okkar og fordæma 'leiðtoga' eins Khadafi, Hussein, Farrakhan og Arafat.

Ef það er satt, að  kenningar Íslam boði umburðarlyndi og friði og kærleika fyrir alla menn, þá vil ég fá kafla og vers úr Kóraninum  og yfirlýsingar  frá vinsælum múslima- leiðtogum því til stuðnings. Hvað er gott í því,  ef kenningar í Kóraninum eru góðar og hreinar, og réttar, að leiðtogar þínir prédika ofstæki, hryðjuverk, og óumburðarlyndi? Það skiptir litlu máli  hversu gott  Íslam ætti að vera ef gríðarstór fjöldi múslíma í heiminum túlka kenningar Múhameðs ranglega  og fylgja einhverju hrakafbrigði trúarinnar. Sú mynd sem hefur birst okkur aftur og aftur.Sú mynd sem byggist á grunni ofbeldis, dauða, og sjálfsvíga. Sú mynd þar sem hermdarverkamenn koma úr  fangelsum um allan heim. Sú mynd ,þar sem trúaðir( niður í fimm ára börn) sjást dag eftir dag, og viku eftir viku út, ár eftir ár, marséra á götum heimsins, brennandi myndir af forseta okkar, brennandi bandaríska fána, skjóta af byssum upp í loftið. Sú mynd þar sem félagarnir hafa látið umskírast frá friðelskandi trúarbrögðum, til að taka upp vopn gegn hinum miklu  Bandaríkjum Norður-Ameríku, fæðingarlandi sínu. Sú mynd sem er svo rangsnúin,  að hinir trúuðu ferðalangar þínir neita að sýna andlit sín við öryggispunkta flugvalla í nafni Íslam. 

Við munum ALDREI  leyfa  árásunum 11. september, og  öðrum slíkum  árásum , að taka burt það sem er svo dýrmætt í augum okkar: Réttindi okkar undir mestu stjórnarskrá í heimi. Ég vil því vita að vita hvar allir  arabískir- múslimar í þessu landi standa og ég held að það sé réttur minn og réttur sérhvers sanns borgara þessa landi að krefjast þess.  Réttur sem greitt var fyrir með blóði þúsunda bræða minna og systra sem létu lífið við það að vernda stjórnarskrána  sem núna verndar þig og fjölskyldu þína. Ég er bið þig um  að láta mig vita. Ég vil hafa þig hér eins og bróðir minn, nágranna minn, vin  minn, sem samlenskur Ameríkumaður.

En það getur ekki verið neitt grátt svæði eða tvíræðni  um tryggð  þína, og það er undir ÞÉR  komið að sýna MÉR, hvar þú stendur. Þangað til þá.

'Þú veldur mér áhyggjum ! "


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Emilsson

Fyrst var sigrast a nazistum, þá kommúnistum, og nu muslinum. Allt er þegar þrennt er.

Björn Emilsson, 9.2.2010 kl. 02:27

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gott framlag ég vona að þessu málefni verði tekið alverlega en það virðist sem að EU ætli ekki að gera það. Múslimum er engan vegin treystandi.Period...Þeirra lagabókstafur er kórarin sama í hvaða landi þeir eru. 

Valdimar Samúelsson, 9.2.2010 kl. 11:25

3 Smámynd: Billi bilaði

Já, það er auðvelt að sjá fram hjá flísinni.

Billi bilaði, 13.2.2010 kl. 07:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband