Leita í fréttum mbl.is

Svar Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir sat þreytuleg í Silfri Egils á sunnudaginn. Hún sagði að kosningaúrslitin væru eiginlega endalok fjórflokkanna. Þess vegna yrði nú að blása til stjórnlagaþings og breyta kerfinu.

Hafa menn ekki dæmi um endurskrifun stjórnarskráa frá ýmsum bananalýðveldum, þegar ráðamenn grípa til þeirra fangaráða að breyta stjórnarskránni sér í hag ? Hvernig á að velja stjórnlagaþingið ? Verður það ekki handvalið af ráðamönnum ?  Er ekki ástæða til þess fyrir mig og mína líka að vera uggandi um að boðað stjórnlagaþing muni setja ólýðræðislegar reglur sem auki mismunun þegnanna. Hver á að afgreiða ályktanir stjórnlagaþingsins ? Lýðræðið ?

Á ég að treysta Jóhönnu Sigurðardóttur ? Manneskju sem ekki vílar fyrir sér að keyra landið inn í ESB hvort  sem þjóðin vill eða ekki  ? Finnst mér henni vera treystandi til að setja reglur sem móta lýðræði  landsins til frambúðar ?  Verða þær annað en byrjun á stjórnarskrá Alþýðulýðveldisins Íslands ?

Það hefur ekki verið haldið stjórnlagaþing í Bandaríkjunum síðan þeir sömdu stjórnarskrá sína. Af hverju fáum við ekki afrit af þeirra stjórnarskrá ? Hið ólýðræðislega kjörna  Alþingi okkar Íslendinga getur greinilega ekki gert þær breytingar á stjórnarskrá okkar sem landsmenn geta sætt sig við.   Catch 22  okkar Íslendinga. Ár og kjörtímabil líða og Alþingi heykist á verkinu . Og ef það reynir eitthvað þá er boðið uppá hrossakaup.

 Hvernig í veröldinni á einhver handvalinn hópur vinstrimanna að geta gert einhverja betri stjórnarskrá inní Laugardalshöll ? Á ég að láta þetta yfir mig ganga ? Af hverju er einu sinni rétt kjörnu, þjóðkjörnu, en ekki kjördæmakjörnu  Alþingi ekki treyst fyrir verkinu ?  Kallið það þing stjórnlagaþing og ég skal samþykkja það.

Ég treysti ekki Jóhönnu Sigurðardóttur og ég treysti ekki Steingrími J. Sigfússyni fyrir lýðræði landsins. Ég treysti þessu ólýðræðislega kjörna fólki ekki fyrir málum þjóðarinnar.  Allt fitl slíks fólks við lýðræðið fyllir mig tortryggni.

Svar Jóhönnu veldur mér velgju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband