Leita í fréttum mbl.is

Búrkur

Ég fékk sent myndasafn sem heitir The CanvasPrison.pps. Þetta er einskonar tískublað um klæðnað íslamskra kvenna, sem þær eru neyddar til að bera þar sem talibanar og bókstafstrúarmenn ráða ríkjum og sýnir svo viðurlögin sem konur eru beittar ef þær hlýða djöflunum ekki.

Þetta er hroðalegt á að líta fyrir siðað fólk.  Framrás Islams sem heimsvaldahreyfingar verður að stöðva með öllum ráðum á vesturlöndum ef við eigum að lifa af.  Konur verða að láta sig þessi mál sérstaklega varða því þeirra bíða annars grimmilegri örlög en karlanna.

Það virðist til lítils vera að fórna stöðugt góðu vestrænu blóði í að kljást við bókstafsmenn í Afganistan til og kenna þeim uppá lýðræði  þegar fólkið þar vill ekki taka við því. Það vill heldur ekki berjast sjálft gegn kúguninni eins og við sáum í S-Vietnam. Þetta fólk verður að lifa sínu lífi sjálft. En vopnaðar árásir frá þeim yfir landamærin verða  auðvitað vandamál áfram.   

Bókstafstrúar múslímar geta ekki lifað samhliða okkur í vesturænum þjóðfélögum margir saman í hóp. Árásargirnin og ójöfnuðurinn er óaðskiljanlegur hluti af strangtrúnni og þeir sýna hatur sitt  og fyrirlitningu  á flestu sem við í heiðri höfum og hlýða öllu sem imamar og ayjatollar  þeirra skipa þeim. Þeir eru í rauninni  á sama menningarstigi og Íslendingar þegar galdrabrennurnar stóðu hér á landi. Þorleifur Kortsson myndi líklega lítið skilja í okkar tíma  og varla mundum við kjósa hann til veraldlegra valda núna.

Vesturlönd geta ekki haldið áfram frjálsum innflutningi múslímafólks af þessari gerð hvað þá leyft að það hópi sig saman í gettóum og magni þaðan ófrið.  Því það virðist sama hvað gert er, allstaðar spretta upp ofsatrúarhópar meðal þessa fólks eins og hermdarverkamenn gerðu á Írlandi. Það er fullreynt að múslímar sem fjöldahreyfing samlagast ekki þeim þjóðfélögum sem þeir flytja til.  þeir verða ríki í ríkinu sem sífellt sligar gistiþjóðfélagið neðar.

Ef ekki næst utan um núverandi ástand þá eiga Vesturlönd ekki annars  úrkosti en að reka eða kaupa þetta lið af höndum sér og loka landamærum sínum fyrir aðstreymi þessa fólks. Né heldur hafa þau ráð á að leyfa múslímum moskubyggingar þar sem sannað er að mynda gróðrarstíur stangtrúarhópa. 

Annar munu búrkur verða tískufatnaður Evrópu síðar á þessari öld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418280

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband