Leita í fréttum mbl.is

Ísland íslamskt ríki?

Íman einn birtist á skjánum og var hampað mjög í tilefni þess að Ramadam gengur í garð á Íslandi eins og annarsstaðar.  Þessir farandklerkar Múhameðsmanna eru sumstaðar taldir víðsjárgripir  þar sem oftlega eru þeir uppvísir að því að vera ekki friðflytjendur. Enda var svipur mannsins ekki par blíðlegur og vildi ég ekki eiga nótt undir exi hans að óséðu. Enginn innfæddur Íslendingur hefur hugmynd um hvað þessir menn eru að prédika eða hvað af því mun leiða. Víst er að ekki er Sturlunga lesin í þeirra skólum eða lofsunginn Jón Sigurðsson frá Hrafnseyri við Dýrafjörð eða hvaða annan fjörð. Er þeim þetta enda mátulegt fyrir að banna allar umræður um innflytjendamál, kynþáttavandamál og  það sem af þeim leiðir. 

Það sem ég hnaut um er að Múhameðsmenn teljast nú orðnir 1200 talsins á Íslandi. Fyrir örskömmu síðan voru þeir taldir um 200. Miðað við það, að hver Múhameðskona elur 8.3 börn að meðaltali meðan íslensk kona elur 2.3 börn, þá hlýtur sá dagur að vera útreiknanlegur þegar þeim hefur vaxið nægur fiskur um hrygg til að lýsa yfir íslömsku  ríki á Íslandi.

Fylgja þá Íslendingar fordæmi forystuþjóðanna í Evrópusambandinu, sem eru Bretar, Frakkar og Þjóðverjar. En þessi ríki munu óhjákvæmilega gjalda sofandaháttar síns í innflytjendamálum og verða múslímaríki á þessari  öld. Evrópusambandið verður þannig bandalag múslímaríkja fyrr en varir.

Ísland  veður íslamskt ríki meðal jafningja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Athyglivert var að hlusta á málsvara þeirra í útvarpi í morgun þegar hann svaraði spurningunni af hverju konur væru annarsstaðar en karlar við bænahald að það vildi bara svona til þær mættu alveg vera við hlið karlanna. En þetta var rangt. Þannig er það ekki. Það veit málsvarinn mæta vel en hann svarar alltaf eins og honum hentar og neitar að horfast í augu við að boðun Íslam er andstæð hugmyndum vestræns fólks um einstaklingsfrelsi og mannréttindi. Þeir sem tóku þátt í gleðigöngunni í Reykjavík mættu e.t.v minnast þess að það samkynhneigð varðar dauðadómi í mörgum löndum Múslima.

Þá er athyglivert að við skulum upplifa nú nokkuð sem við höfum ekki upplifað áður í þessu landi. Sauðaþjófnað þar sem lömbum er slátrað með þeim hætti að þau hæfi Múslimum til átu. Skyldi það vera tilviljun?

Jón Magnússon, 12.8.2010 kl. 23:18

2 Smámynd: Dingli

Það skelfilegasta við þessa þróun er, að ef ekkert verður að gert á allra næstu árum, brjótast óhjákvæmilegaút borgarastyrjaldir víðsvegar um Evrópu og örugglega víðar. Lífshættir frjálsra manna og múbbana geta aldrei farið saman.

Dingli, 13.8.2010 kl. 06:44

3 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Bráðum 1/2 % þjóðarinnar.

Kjartan Sigurgeirsson, 13.8.2010 kl. 09:24

4 Smámynd: Björn Birgisson

Einhvers staðar sá ég að muslimar væru orðnir fast að 10% dönsku þjóðarinnar. Ljótt er ef satt er.

Björn Birgisson, 13.8.2010 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418282

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband