Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna vændishús?

Hefur einhver skýringar á því hversvegna vændi er opinbert og leyft í mörgum löndum? T.d.í Suttgart þar sem ég bjó lengi, er slíkt hús nærri áfast við ráðhús bæjarins. Það er búið að vera þarna í minntsa kosti hálfa öld og er enn í fullum gangi.

Skyldi þetta vera til að létta af einhverjum þrýstingi sem annars gæti birtst öðruvísi? Hugsað tl að draga úr einhverjum perraskap og áreitni ?

Vændi er blómleg atvinnugrein um allt Ísland en auðvitað dreift og óskipulagt. Kannski er þarna ónýttur skattstofn fyrir Steingrím og Indriða?


mbl.is Samkirkjulegt átak gegn kynferðisofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill Óskarsson

Hefurðu eitthvað fyrir þér í því að það sé minna um kynferðisglæpi í löndum þar sem vændi er uppi á yfirborðinu?

Egill Óskarsson, 29.8.2010 kl. 13:44

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei, veit ekkert um þetta nema um þessar staðreyndir, veit ekki um ástæðurnar.

Halldór Jónsson, 29.8.2010 kl. 15:16

3 Smámynd: Egill Óskarsson

En af hverju ertu þá að tengja þetta saman? Þ.e. löglegt vændi um kynferðisgæpi (perraskap og áreitni)? Það ætti að vera nokkuð auðvelt að komast að því hvort það væri einhver tenging þarna á milli.

Egill Óskarsson, 29.8.2010 kl. 16:37

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég var að tala um það. Forvarnir.

Halldór Jónsson, 29.8.2010 kl. 17:28

5 Smámynd: Dingli

Sæll Halldór

Var ekki aðal-yfirskyn vændislagana og þess að banna súludans, að vernda ætti konur og gott ef ekki, ráðast gegn mansali í heiminum!

Er það til að vernda stelpurnar sem hér störfuðu að þær verði að leita annað eftir vinnu? Er ekki meiri vernd í snyrtilegum klúbb undir opinberu eftirliti þar sem starfsfólk er í verkalýðsfélagi og nýtur sömu réttinda og vinnandi fólk almennt? Fastakaupið er lægsti taxti,svona fyrir skattinn, en skattfrítt þjórfé ríflegra en nokkur fiskvinnubónus.

Dingli, 30.8.2010 kl. 04:34

6 Smámynd: Egill Óskarsson

Þú varst að tala um það já. Og ég er að reyna að átta mig á því hvernig þér dettur í hug að gott aðgengi að vændi dragi úr kynferðisglæpum. 

Egill Óskarsson, 31.8.2010 kl. 19:28

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Ja Egill, ég byrjaði nú á því hvað Þjóðverjum dettur í hug þannig að þú ættir að spyrja þá fyrr en mig.

Halldór Jónsson, 31.8.2010 kl. 20:58

8 Smámynd: Egill Óskarsson

Nú? Leyfa Þjóðverjar vændi af því að þeir telja að það dragi úr kynferðisglæpum? Það hef ég ekki heyrt áður.

Egill Óskarsson, 4.9.2010 kl. 22:44

9 Smámynd: Dingli

Egill, ósköp virðast skrif Halldórs í léttum dúr, um löglegt vændi, hafa farið undir punginn á þér.

Þarf að fara að senda mann til að grúska í borgarsamþykktum áratugi aftur í tíman og hugsanlegum samanburðarannsóknum um tíðni kynferðisglæpa vítt um álfur með tilliti til fjarlægðar við lögleg vændishús, svo þú verðir ánægður?

Dingli, 4.9.2010 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband