Leita í fréttum mbl.is

Perlan Moska?

Ég hef heyrt að múslímar vilji fá lóð i Öskjuhlíð undir Mosku. Ég hef heyrt að Jón Gnarr vilji selja Perluna.

Gæti draumsýn Kjarvals um ljóskastara á toppi kristalshvelsins sem lýsti upp himingeiminn ekki fallið saman við stóran upplýstan hálfmána sem snérist á toppnum á Perlunni? Þá þurfa menn ekki að deila um lóð eða ekki. Múslímar eru búnir að eignast gamla félagsheimili Karlakórsins Ými sem þeir geta nýtt sem safnaðarheimili.  Fara þeir ekki létt með að kaupa  Perluna og gleðja  um leið alla kommatittina sem hafa hatast við húsið allt frá því að Davíð lét byggja það sællar minningar.

Yrði Perlan ekki glæsilegastan Moska á Norðurlöndum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Aldrei skal Moska rísa á Íslandi. Aldrei, og hana nú. Hvernig tækju stjórnvöld í Írak eða Íran, að ég nefni nú ekki Afganistan, í að kristnir menn fengju að byggja kirkjur í þeirra löndum og stunda trúboð? Hætt er við að blóðið tæki þá að renna og margir mættu missa höfuð sín, og þá ekki á nein silfurföt.

Aldrei Mosku á Íslandi. Aldrei.

Björn Birgisson, 9.9.2010 kl. 21:40

2 identicon

Þetta er ekki svo galin hugmynd hjá þér með Perluna. 

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 22:18

3 identicon

Björn ... reyndar eru starfandi ca. 600 kristnar kirkjur í Íran og í Írak er talið að um 600.000 manns iðki kristna trú.  Auk þess eru talsvert af kristnum mönnum í Bahrain, Jórdanía, Kúveit, Líbanon, Quatar, og Sýrlandi.  Að vísu eru tvö lönd sem eru undantekningar frá þessu og þau eru Afganistan og Sádi-Arabía.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 22:28

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Munurinn á múslimum og kristnum er sá að múslímar stunda sína trú af hjartans einlægni en kristnir látast stunda sína trú.

Á Íslandinu "kristna" missir fólk höfuð sín (mannréttindi), ef það hefur ekki efni á að flýja okur-svika-vaxtastefnu "kristinna" og gráðugra embættismanna!

það eru nú þegar margir sem hafa flúið "kristna" Ísland, og enn aðrir sem hafa hreinlega fyrirfarið sér vegna þess að "kristna" Ísland gerði þeim ekki kleyft að lifa á samfélagslega heiðarlegan hátt á landinu "kristna"?

Hvar er í raun heiðarleg og fölskva-laus kærleiks-kristni á Íslandi? Hvar er náungakærleikurinn í kristna landinu? (Ég um mig frá mér til mín og hinir mega bara deyja ef þeir eru svo vitlausir að vera ekki bankaræningjar)?

Hvað hefur í raun kristnin umfram aðra trúarflokka?

Hræsni embættismanna t.d. í biskups-stólum?

Ég þekki marga múslima (ekki öfga-múslima) sem myndu aldrei skilja svona fals og svik öfga-kristninnar vegna þess að náungakærleikann vantar alltaf í "sýndar"-öfga-kristnina! Alveg eins og náungakærleikann vantar alltaf í "sýndar"-öfga-múslima!

Margir heiðarlegir prestar eiga mjög erfitt núna vegna öfga-svikara kristninnar! Sendi heiðarlegum prestum stuðnings-kveðju!

Öfgar eiga aldrei rétt á sér, hvorki í kristni né öðrum trúarbrögðum!

Múslímar sem eru án öfga eru með mikinn og þroskaðan náungakærleika og velkomnir til "kalda, óþroskaða náunga-kærleiks-snauða bankaræningja-kristna" Íslands!

Ef þeir treysta sér til að koma hingað? En þvílíkur ands...... kjarkur að þora því ef samfélags-hugsjón er þeirra markmið!

Horfum aðeins í eigin barm áður en við dæmum aðra úr leik? Eða hvað?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.9.2010 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 3418314

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband