Leita í fréttum mbl.is

Munur á fólki

var greinilegur í mótmælum á Austurvelli núna og síðast.

VG sló taktinn 2008 og lætin keyrðu úr hófi undir öskrum Harðar Torfasonar, lúðrablæstri Sturlu og skrílslátum Hallgríms Helgasonar með velvild Baugsveldisins og Samfylkingarinnar, þegar Austurvallarindjánarnir stigu stríðadansa, eyðilögðu það sem þeir gátu og réðust að lögreglu.

Nú mætti millistéttin á Austurvöll. Að henni sækja nú kommúnistaöflin sem fastast að undir forystu þeirra sem síðast börðu bumbur. Annar hópur og sýnu yfirvegaðri fyllti Austurvöll en 2008. Innanum leyndist auðvitað skríll og glæpamenn sem brutu rúður og reyndu að slasa fólk. En allt slapp betur en á horfðist að þessu sinni. Enda var lögreglan skynsamlega undirbúin í þetta sinn.

Innan Alþingsiveggjanna standa þeir stjórnmálamenn sem 2008 þóttust kunna öll ráð. En  hafa nú sýnt sig að hafa aldrei vitað neitt um hvað bragðs eigi að taka. Rekið fyrir vindum  og nota nú AGS sem afsökun fyrir dáðleysi sínum og ræfilsskap gagnvart vanda heimilanna í landinu. Uppgefnir gagnvart atvinnuleysinu túlka þeir landflóttann sem árangur á því svíði.

 Aðeins þjóðin sameinuð bjargaði þeim frá því að vinna óbætanlegt tjón á fjárhag landsins um alla framtíð með Icesave samningunum. Sem þeir samt berjast enn við að koma yfir þjóðina.  Foringjar þess auma liðs þeirra kalla nú á stjórnarandstöðuna sér til bjargar. Allt nema að segja af sér eins og krafa fólksins er.  Verður lægra  komist í stjórnmálum?

Það er munur á fólki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Þessi færsla sannar það Halldór að þið á hægri kantinum eruð alveg jafn blindir og þeir sem standa yst til vinstri. Það er einmitt þetta sem fólk er ekki að biðja um núna. Öfgapólitík sem snýst mest um það að klekkja á andstæðingnum og hamra á því hvað hann er ömurlegur en láta sér minna varða fólkið sem er í vanda og þarf hjálpar við.

Þórir Kjartansson, 5.10.2010 kl. 10:52

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þórir var greinilega ekki á Austurvelli í gærkvöldi, eða verið með bundið fyrir augu og eyru.

Þarna var sleginn takturinn á trumbunum oftast sem kenndur hefur verið við hrynjandina í „Vanhæf ríkisstjórn”. Flestir sem ég heyrði í voru þarnba í vioðleitni sinni til að lýsa frati á ríkisstjórnina og vill kosningar. Auðvitað voru einhverjir þarna með almenn mótmæli en þetta var grunntónnninn.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.10.2010 kl. 11:48

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þórir, hlustaðirðu ekki á Jóhönnu? Mér heyrðist hún vera að kalla á stjórnarandstöðuna sér til hjálpar hvað sem minni blindu líður.

Ekki þetta sem fólkið er að biðja um? Prédikari spyr réttilega hvort orðin "Vanhæf Ríkisstjórn" geti þýt kröfu fólksins um að hún sitji áfram? Er það öfgapólitík? Verða ekki nýjar tillögur að koma fram úr því að engar koma frá stjórninni?

Halldór Jónsson, 5.10.2010 kl. 12:21

4 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Ég sé sama fólkið.

Aðalsteinn Agnarsson, 5.10.2010 kl. 14:19

5 Smámynd: Þórir Kjartansson

Halldór, ég er ekkert að verja þessa ríkisstjórn. Ef hún ætlar að sitja áfram þarf hún að koma með ný og skilvirk úrræði fyrir það fólk sem nú er í vandræðum og það ekki seinna en í gær.  Fannst bara færslan þín svo lík gamla pólitíska skotgrafahernaðinum, sem allir eru orðnir svo dauðþreyttir á.

Þórir Kjartansson, 5.10.2010 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 3418318

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband