Leita í fréttum mbl.is

Gat ekki tekið því

þegar ég heyrði auglýsingu frá VG sem óskar mér gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Hvað hefur þessi hreyfing gert til að farsæla mitt næsta ár? Sýnt mér fjandskap á öllum sviðum. Viljað leggja á mig og afkomendur mína í fjórða lið Icesave uppá hundruði milljarða. Hækkað skattana á mér. Rýrt ellilífeyrir. Lagst í hernað gegn lúpínunni og skógrækt sem er mér hjartans mál.  Reynt að hindra virkjanir og stóriðju. Reynt að hindra atvinnusköpun. Reynt að koma okkur í Evrópubandalagið. Fyrir hvað ætti ég að þakka þeim?

Ég get bara ekki tekið við óskum um farsælt komandi ár frá þessu liði. Það boðar mér bölvun ekki farsæld. Svona eins og jólakveðja frá AlKaída til páfans.

 

Þessu línuriti stal ég frá Gunnari Rögnvaldssyni. Þarna geta þessir evruspekingar eins og Villi Egils og Gvendur í Rafiðn og þeir fáu sem trúa þeim, séð svart á hvítu hvers viðri krónan okkar var þegar holskeflurnar riðu yfir. Við erum að spóla okkur í átt að bakkanum. Lettarnir spóla líjka en þeir eeru langtum  dýpra í drullunni.

 

Mynd, Paul Krugman; Efnahagssamdráttur á Íslandi og Lettlandi frá fjórða ársfj. 2007 = 100. Því meiri samdráttur því betra, samkvæmt ESB. 

Ef ég heyri auglýsingu frá Samfylkingunni um að hún óski Íslendingum farsældar á nýju ári, þá slekk ég á tækinu. Svo fastur er ég í svartnættinu af áhyggjum yfir landsöluáformum þessa félags.

Ég gæti ekki tekið því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Þá ekki ég.           En óska þér gleðilegra jóla!

Helga Kristjánsdóttir, 24.12.2010 kl. 01:51

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Vel mælt. Engin ástæða til þess að þakka fyrir svona hræsnisfullar kveðjur. Við hrækjum á þessar útréttu krumlur en tökum ekki í þær.

Baldur Hermannsson, 24.12.2010 kl. 04:59

3 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Helga og Baldur, ég tek undir með ykkur og sendi í leiðinni Halldóri góðar óskir um gleðileg Jól og farsælt nýár !

Kveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 24.12.2010 kl. 09:36

4 Smámynd: Elle_

Ég er sammála ykkur öllum.  Og enn verra væri það ef Jóhönnufylkingin dirfðist að tala um gleðilegt eitthvað. 

Elle_, 25.12.2010 kl. 21:48

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Mæli með CIA factbook, þegar þarf að bera  saman. Opinberar upplýsingar á Íslendi minna svolítið mikið á upplýsingar frá Sovét í gamla daga.

Gleðileg Jól Halldór!.

Júlíus Björnsson, 25.12.2010 kl. 22:04

6 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Halldór minn, ég vona að jólaandinn sé kominn yfir þig þegar þetta er ritað.

Minna má nú ekki vera en að þú fáir smá jólagleði í þitt líf.

Vil þó taka fram að ég er í svipaðri súpu og þú varðandi lífeyrismóttöku.

Alla vega Halldór - njóttu jólanna eins og saklaust barn, það er hið besta sem fyrir okkur getur komið - þessa gamlingja - eins og þér er gjarnt að nefna okkur !

Gleðilega hátið þú mikli baráttujaxl ! 

Megi nýja árið færa okkur öllum betri tíð !

Sigurður Alfreð Herlufsen, 26.12.2010 kl. 00:38

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Helga mín,

þakka þér fyrir kveðjuna. Ég vona að þú hafi átt góða daga um þessi jól og óska þér alls hins besta á nýju ári.

Halldór Jónsson, 26.12.2010 kl. 11:29

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Baldur minn Hermannsson

Mikið er ég ánægður að það skuli vera kviknað á þér aftur, maður sársaknar þess að heyra ekki svona lengi í þér.Ekki hefur tilefnin skort hélt ég. Og ekki skortir þau enn meðan Steingrímur situr.

Halldór Jónsson, 26.12.2010 kl. 11:31

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Góði vinur Kristján apótekari

þakka þér fyrir góðar kveðjur nú sem endranær og srgi eins og gert var í gamladaga að sögn Kiljans:Ég kýs mér sama og allt eins.

Halldór Jónsson, 26.12.2010 kl. 11:33

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Elle Ericson,

Já ég býst nú við því að það eina gleðilega eða skemmtilega sem útúr Jóhönnu gæti komið héðan af væri, að hún segði af sér.

Þá myndi ég hlægja væri ég ekki dauður eins og draugurinn sagði.

Halldór Jónsson, 26.12.2010 kl. 11:35

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Júlíus

Þakka þér fyrir margar heimsóknir og margar ábendingar. Þessi nýjasta um CIA Factbook vildi ég finna. Hvar gerist það ?

Bestu óskir um hátíðar og áramót.

Halldór Jónsson, 26.12.2010 kl. 11:37

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Sigurður Herlufsen,

Við stundum okkar heilsurækt á nýju ári gamlingjarnir hvað sem tautar með lífeyririnn. Eigðu góða daga um hátíðarnar og sjáumst heilir.

Halldór Jónsson, 26.12.2010 kl. 11:40

13 Smámynd: Júlíus Björnsson

https://www.cia.gov/library/publications/the-world-factbook/region/region_eur.html

Hagfræðingar og fleiri meðgreindir "insular" geri sér grein fyrir að ef status raunhagvaxtar var 48 evrur merkir 7% minnkun næsta ár 3,36 evru skerðingu, hins vegar ef við eru að tala um 14 evru status þá er 7% minnkun ekki nema um  0,98 evrur.

Þess vegna borgar sig að bera saman Ísland og Færeyjar, Ísland og Holland eða UK eða Danmörku.

Ríki eins og Lettland og Sómalía eða Kúpa eru samburðar flokkur út af fyrir sig.

Ríki eða einstaklingar verða aldrei of gömul til að þroskast. 

Því hærri þjóðartekjur á mann því minni þörf fyrir raunhagvöxt. Þetta er spurning um að eignfæra raunhagnað  [og fela=vernda með afskriftum] eða gæði frekar en magn fyrir aðra en hreinar afætur.

Verkið lofar [eða lastar] meistarann.

Júlíus Björnsson, 26.12.2010 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3417960

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband