Leita í fréttum mbl.is

45 milljarðar milli vina?

er ráðgert að setja í nýjan Landspítala.

Svo segir í frétt í Morgunblaðinu:

" Á þriðja tug arkitekta og verkfræðinga
vinna þessa dagana að deiliskipulagsgerð og
forhönnun sjúkrahússins nýja. Saman mynda
þeir SPITAL-hópinn svonefnda sem sl. sumar
bar sigur úr býtum í forhönnunarsamkeppni
um nýjan Landspítala. Að auki koma að verkefninu um 100 starfsmenn Landspítala og Háskóla Íslands með vinnu í notendahópum.

Auk vinnu við deiliskipulagsgerð er unnið
að forhönnun meðferðarkjarna sem er 49 þúsund rúmmetrar og hýsa mun m.a. bráðamóttöku, myndgreiningu, gjörgæslu, skurð-
stofur og legudeildir með 180 rúmum í
einbýli. Einnig sérstakt hús fyrir blóðbanka
og þjónusturannsóknir auk áttatíu herbergja
sjúkrahótels.

Í heild eru þetta 66 þúsund fermetrar. Þá er unnið að forhönnun á um átta þúsund fermetra byggingu austan við Læknagarð fyrir heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands. Þá er unnið að forhönnun bílastæðahúss fyrir 500 bíla og eins er að hefjast hönnunarvinna vegna undirbúningsframkvæmda á lóð.

Áætlaður framkvæmdakostnaður á verðlagi
í dag er um 45 milljarðar króna fyrir utan
framkvæmdir HÍ...."

Þetta er auðvitað álíka skiptimynt og Alþingi ætlaði að sletta í Icesave svo menn hafi þetta í samhengi. Hugsanlega kemur þjóðin í veg fyrir þetta 9.apríl n.k. og má segja að aurarnir verði þá betur komnir hér en þar.

En spyrja menn sig nokkuð að því hvort sé þörf á þessu. Núna?

Þegar Kárahnjúkavirkjun var byggð þá lá svo mikið á til að spara vexti að það voru fluttir inn þúsund Kínverjar til að halda dampinum. Þurfti þess nokkuð þegar skömmu síðar vantaði mikið meira en þúsund störf?

Læknar flykkjast úr landi af því að við getum ekki borgað þeim.Við höldum áfram að mennta lækna með sama hraða sem svo fara úr landi.Við flytjum inn útlendinga sem vilja vera á framfærslu hérna. Hér er fólk meðal okkar sem sveltur. Hér eru útlend glæpagengi sem taka sér veiðileyfi á almenning.

Við eigum ekki peninga til að reka þann spítala sem fyrir er segir Steingrímur. Við verðum að loka deildum. Við getum ekki baðað gamalt og veikt fólk nema einu sinni í viku. Við getum ekki notað vinnubúðir undir fanga því að er ekki nógu fínt handa þeim.

Hver skyldi greindarvísitla "hins opinbera" vera ef hægt væri að mæla hana á tilsvarandi skala og mannfólkið?

Skilur maður nokkuð hvað 45 milljarðar eru milli vina?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar L Benediktsson

Jú, það er hægt að greiða 200.000 krónur . tvær milljón tvöhundruð og fimmtíu þúsund sinnum. Gæsalappa finnst þetta sjálfsagt ekki mikið.

Ragnar L Benediktsson, 13.3.2011 kl. 18:22

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þarf ekki að bjóða allar stór framkvæmdir út Í Evrópsku Sameiningunni, svo fá hinir útvöldu  [kaupa] Seðlabanka meðmæli og gera besta tilboðið.

Í lögum EU kemur fram. Aðal Verkfæri [fyrir utan aðgang að öllum stofnum EU] eru Evrópski Fjárfestingarbankinn og Evrópski Seðlabankinn sem er yfir þjóðar-Seðlabankakerfinu.

Seðlabankarnir sjá um skila á Meðlima sköttum, selja evrur til Meðlima Ríkja á þeir innra gengi, einnig selja þeir Meðmæli  með Bréfum [t.d. stjórnsýslu eininga] sem banka í umboði greiðanda koma í Kauphallar kerfið.

Þannig er tæknilega hægt að tryggja sama hagvöxt hjá öllum ríkjum sem eru dugleg.  Meðmæli eru matsatriði hverju sinni. Líka lánshæfis mat. Í augum alvöru fjárfesta sem gera sitt eigið mat. 

Júlíus Björnsson, 14.3.2011 kl. 03:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 3418312

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband