8.6.2011 | 21:07
Leggjum honum lið!
Þorsteinn Pálsson skrifaði góða hugvekju í Baugstíðindin á laugardaginn var um réttarhöldin yfir Geir Haarde. Þar fer ríkisvaldið fram með ótakmarkað fé skattborgaranna tiil að framleiða málsskjöl og ávirðingar á einstakling sem verður að verja sig með sínu eigin fé. Sannarlega Davíð á móti Golíat.
Þorsteini Pálssyni verður hugsað til annarra réttarhalda fyrir síðustu heimsstyrjöld. Þá hamaðist glæpamaðurinn Stalín með öllu afli Sovétríkjanna gegn einstaklingum.
Þorsteinn segir m.a.:
Niðurstöður rannsóknarnefndarinnar verða hvorki sannaðar né afsannaðar með vísindalegum aðferðum eða lagarökum. Sama er um mat fyrrverandi forsætisráðherra á aðstæðum árið 2008. Kjarni málsins er sá að réttarhöldin snúast um mat á aðstæðum sem menn axla pólitíska ábyrgð á í lýðræðisríkjum en eru fundnir sekir fyrir þar sem önnur gildi eru æðri. Réttarhöld Stalíns gegn Búkharín á ofanverðum fjórða áratug síðustu aldar eru þekkt dæmi um pólitískan málarekstur. Þeim verður alls ekki í einu og öllu jafnað til þeirra réttarhalda semhefjast í næstu viku, af þeirri ástæðu að þar markaði dauðinn endalokin. Þau réttarhöld spunnust þó inn í íslensk stjórnmálaátök og íslenskar bókmenntir enda var Halldór Laxness viðstaddur. Hann skrifar um þau í Gerska ævintýrinu og segir: "Sú lifandi mynd baráttunnar milli pólitískra höfuðafla er svo skyld náttúruöflunum sjálfum að atriði eins og siðferðileg eða lögfræðileg "sekt" samsærismannanna, eða sú persónulega refsíng sem beið þeirra, verða í raunréttri smámunir sem ekki freista til kappræðu. Þegar svo djarft er teflt um örlög 170 miljón manna, og raunar als heimsins, einsog blökkin gerði, þá fara ræður um "sekt" að fá býsna smáborgaralegan hljóm, sömu leiðis býsnanir útaf réttlátum eða ránglátum aftökum.""
Þessi viðurstyggilega afstaða kommúnistans Halldórs Kiljan Laxness til lífs og dauða Búkaríns og félaga dugði mörgum Íslendingi til ævarandi fyrirlitningar á manninum bak við pennann þó maður gengi undir manns hönd að hvítþvo Nóbelsskáldið.
Sem betur fer erum við Íslendingar hættir að beita refsingum eins og Laxness dásamaði Stalín fyrir. Engu að síður eru þau dusilmenni sem samþykktu að draga Geir Haarde fyrir landsdóm, láta hann verja öllu sínu fé til að verjast upplognm sökum og koma honum síðan í fangelsi til langs tíma, í raun og veru svipaðrar náttúru. Fólk sem er eins eins og gamla konan sem lagði sprek í bálköst Brúnós í einfeldni sinni. Slíkt fólk gætir þess ekki að hvað það gerir þegar því finnst við hæfi að beita öllu afli íslenska ríkisins gegn einum manni.
Á sjötta hundrað manna lögðu leið sína í Hörpuna í gær til að láta í ljós siðferðilegan stuðning við Geir Haarde. Þar mátti sjá mörg þekkt andlit úr vinstri flokkunum þannig að þetta mál byggir á fleiru en venjulegri pólitískri skiptingu. Sómatilfinningin er sem betur fer innbyggð í flest fólk fremur en innprentuð.
Kristrún Heimisdóttir flutti drengilega ræðu á fundinum. Hún sagði að hún hefði aldrei orðið vitni að öðrum eins heigulshætti en þeirra háttvirtu þingmanna sem greiddu ákærunni atkvæði sitt án þess að hafa reifað málið fyrir sér sjálfir heldur hlýtt forsögn illra anda annarra í blindni.
Vonandi sjá réttsýnir menn að Geir Haarde er liðveislu þörf í baráttu hans við ofureflið.
Leggjum honum lið!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:12 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Ofsaleg grimmd og skömm að fara svona gegn einum manni. Ætli hann hafi ekki meira vit og sé ekki vandaðri en þær mannleysur sem völdu að fara gegn honum einum?
Elle_, 9.6.2011 kl. 00:31
Þakka þér Halldór, fyrir að styðja við bakið á Geir Haarde.
Einnig biðla ég til Samfylgingarmanna að gera slíkt hið sama og með því geta þeir leiðrétt að nokkru eigin villu sinna samflokksmanna sem komu Geir í snöruna.
Sigurður Alfreð Herlufsen, 9.6.2011 kl. 12:36
Algjörlega sammála þessu. Ætti að vera landssöfnun til styrktar Geir.
Það er eitthvað svo óíslenskt.. að maður þurfi að taka ábyrgð.
Þetta verður að stöðva.
ThoR-E, 9.6.2011 kl. 14:36
Vorum við nokkuð að halda fram að menn ættu ekki að taka ábyrgð, Acer? Nei, menn ættu að gera það, en ekki einn maður af öllum hinum.
Elle_, 10.6.2011 kl. 01:08
Þótt að hinir hafi sloppið fyrir horn, en þeir áttu að vera kærðir líka, að þá þýðir það ekki að við eigum að sleppa þeim sem þó var kærður, við allt saman.
ThoR-E, 17.6.2011 kl. 13:19
Oft er sagt að upphefðin komi utan frá og er þá átt við, að ef einhver, sem íslendingar hafa rakkað niður og útlendingar hrósa honum, þá tekur þjóðin viðkomandi í sátt.
Óþverraháttur stjórnarliða í máli Geirs H. Haarde er með ólíkindum og undarlegt að nokkur heilvita maður skuli gleypa við lygaspuna vinstri flokkanna.
Geir H. Haarde hefur fengið viðurkenningu erlendra fjölmiðla á því, að brást hárrétt við þegar hann lét bankanna falla í stað þess að gera eins og önnur ríki sum, þ.e.a.s. dæla fé inn í ónýt fjármálafyrirtæki.
Þá fer lygaspuninn af stað og segir að það hafi ekki verið hægt að dæla fé inn í bankanna, þess vegna hafi ríkisstjórnin ekki átt neinn annan kost.
Vitanlega var hægt að gera þessi mistök, að dæla fé í bankanna, Þorvaldur Gylfason og Már Guðmundsson vildu báðir fara þessa arfavitlausu leið, eins gott að Már var ekki tekinn við á þessum tíma.
Hvernig í ósköpunum halda menn að hægt hafi verið að framkvæma þetta með bankanna, ábyrgjast innistæður og leggja fé inn í þá?
Auðvitað átti ríkið peninga til að gera rétta hluti og ranga, það var tekin rétt ákvörðun og hægt er að lesa um það víða, ef fólk hefur áhuga á að kynna sér staðreyndir.
Stefan Füler lofaði að koma til landsins sl. haust til að kenna ESB sinnum að notast við staðreyndir, ef hann hefði staðið við það, þá hefðu kannski fleiri getað notfært sér þekkingu hans á notkun staðreynda.
Jón Ríkharðsson, 4.7.2011 kl. 20:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.