Leita í fréttum mbl.is

Erlendur gjaldmiðill

á Íslandi er draumsýn ýmissa sem halda i sakleysi sínu, að þá verði allt gott á Íslandi. Hér verði hægt að fá óverðtryggð lán til langs tíma á 5 % vöxtum, engin verðbólga verði og svo framvegis. Síðasta uppfinningin er að fá hingað kanadadollara af því að það gengur svo brösótt með evruna.

Grikkir standa frammi fyrir því að öll laun í landinu verða að lækka um 25 % eða Grkkland fer á hausinn. Og auðvitað fer Grikkland á hausinn því enginn verkalýðsforkólfur samþykkir að lækka kaupið fyrir sitt fólk sem búið er að hækka með ærinni fyrirhöfn, svo sem skrúfugerð og verðhækkunum í kjölfar þeirra. Nóg er nú dýrtíðin fyrir.

Við þessar aðstæður tala Íslendingar um það eins og sjálfsagðan hlut, að við þurfum bara að skipta út ónýtri krónunni okkar svo nýjusu kauphaækkanir geti orðið varanlegar.Og fjöldi félaga með lausa "kjarasamninga" sem eru ef grannt er skoðað aðeins spurning um hversu verðbólgan eigi að vera mikil og hversu mikið meiri hjá öldruðum og öryrkjum. Á netinu í dag er gamla fólkinu bent á það hversu mikið kjör þess og aðbúnaður muni batna ef það fengi að fara í fangelsi í stað elliheimila. Því miður ekki alveg út í hött.

Á Íslandi er Starfsgreinasamband með 18 félögum. Ég held að starfandi séu tugir félaga til viðbótar sem geta farið í verkföll til þess að knýja fram kjarabætur. Veikt ríkisvald okkar hefur sýnt sig að geta ekkert í viðskiptum við þessa óaldarflokka, sem ríða um héruð og taka það af bændum sem þeim sýnist, rétt eins og höfðingjarnir gerðu á Sturlungaöld þegar sláttur var úti og hægt var að fara að stunda slátrun á óvinum höfðingjanna.Í þeim túrum fengu bændur bæði að éta og fara á fyllerí svo að þeir létu ekki bíða lengi eftir sér þegar slíkt bauðst.

Er ekki kominn tími til að við högum fjármálaumræðunni í þjóðfélaginu á raunsæjan hátt? Veltum fyrir okkur af hverju Þýskaland er svo máttugt sem það er? Af hverju launin hafa ekki hækkað þar í takt við Grikkland? Af hverju Íslendingar geta ekki haft annan gjaldmiðil í landi sínu annan en þann, sem þeir geta svikið, hrakið, falsað, stolið og logið að sjálfum sér með eins og þá lystir? Við höfum hreinlega ekki félagsþroska til annars.

Á tímunum fyrir 2008 máttu allir eiga þá gjaldmiðla sem þeir vildu og setja í skúffur hjá sér eða eyða í útlöndum. Er það ekki ásættanlegra markmið að skapa þá tíma aftur heldur en að krefjast erlends gjaldmiðils í landinu? Skipta á Steingrími, Mávi og einhverjum nýjum Davíð?

Meðan við búum við okkar agaleysiá vinnumarkaði þá förum við beinustu leið í flokk með Grikklandi ef við ekki höfum ekki krónuna. En erlenda gjaldeyrisfrelsið frá Davíðstímanum væri ágætt að endurheimta. Og það gerist með atvinnu og fjárfestingu í landi krónunnar góðu sem bjargaði okkur frá hörmungum Grikkja, Íra, Spánverja og Portúgala.

Það er hægt að fá þessa tíma aftur alveg eins og þjóðarsáttin virkaði á sínum tíma. En til þess þarf að endurheimta vitið sem nú er ekki að störfum í þjóðfélaginu. En það er þarna úti einhversstaðar og einhverntíman kemur það til baka og stynur við þungann eins og Káinn reyndi á sjálfum sér. Þá verður krónan jafngóð og hver annar erlendur gjaldmiðill.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ísland er byrjað á því að lækka öll laun hér og það að Brussel ákverðu að 263 krónur skul verða á krónunni innan skammt lækka öll laun enn betur.

CIP eftirspurnarmæling á almennum markaði í USA hefur sýnt um 4,5% hækkannir, að meðlatali ári þar, á eftirspurn  síðan 1974. 2005 eða í dag um fimm ár er orðin stefnubreyting á kaup mun ekki hækkana nemum 3,0% ári almennt í framtíðinni þar að mínu mati.

Á fjálsum mörkuðum, athugið frjálsi almenni neytenda markaðurinn er stærsta kauphöllinn, og litlu hallirnar fylgja sömu lögmálum og byggja sínar tekjur á vexti CIP. Þar er greinlega markmið að allir hækki jafnt á fimm árum ekki að allir lækki og hækki í einu: Íslenska kommúnista afbrigðið.  Stöðug veltuauking í kauphöll er best, engin veltuaukning dregur úr lífsþróttir sannar hægri manna.   Apartheid stefna lögaðilum forganraðað með til fasteigna í efnhagsreikningi. Barnalegt.  Bankar látnir sýna hátt áhættu eiginfé.  Vsk. fyrirtæki komast ekki í kauphöll til að fjármagna sig og sanna sitt "goodwill" Bankar látnir sýna raunhagvöxt meir en vsk. reksturinn.   Erlendis borga Bankar ekki raunvexti umfram vöxt CIP  til almennings. Það kostar reiðu fé að vertryggja. Banka gera út á lána allt í örugg bréf sem skila ávöxtum með lámarks reiðfjárkostnaði.  Hér nægir eitt Aðal útibú með Seðlabankahlutverk. Siðan geta útbústjórar verið í keppni í ótal útbúum [sjálfábyrgum rekstrar einingum] að skila sem bestu framlagi til eignanda. Gætu fengið bónsu á 5 ára fresti: minna áhættueiginfé meiri bónus. Ríkisjóður ætti að geta fjármagnað sig á því að  gefa út raunvaxta laus fasteigna lán til 30 ára. Veðsöfnin má svo leiga bönkun til auka lánshæfi þeirra.     Króna getur aldrei orðið erlendur gjaldeyrir. Hinsvegar getur góð stjórna á landinu aukið eftirspurn eftir verðnætum sem fást ekki keypt nema með því að kaup krónur til að greiða fyrir þau.  Þá verður til nóga af gjaldeyrir í Landinu. Gefa Brussell öll gróðatækifæri hér eru mistök til langframa. Tækifæri í viðskiptum er líka kallað arður eða raunvextir.  Fátækar þjóðir neyðast til að afsala sér tækifærum og fá erlendarfjárfestingar. Stöndugar þjóðir, á jafréttis grunvelli skipast á tækufærum innbyrðis: þær hafa Val. Fyrirtæki í rekstri sem ekki hefur val er staðnað og græðir ekki neitt til að auka innri gjöld sín. Hagræða í rekstri hér er eins og skera öll gjöld niður heima sér og lifa á vatni og mjöli.  Menn hagræða til að hækka laun og auka sitt "goodwill" til að geta fjámagnað sig í kauphöllum. Ég vill frekar gefa Kanada eða USA fjárforðræði yfir Íslandi en Brussell. Vegna þess að fátækramörkin í dollurum talið, eru miklu hærri þar en í ESB. 

Júlíus Björnsson, 10.6.2011 kl. 02:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 3418436

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband