Leita í fréttum mbl.is

Frumherji

er glæsilegt fyrirtæki með afbragðs þjónustu. Verksviðið það sem að almenningi snýr er að skoða bíla og kerrur. Ég versla við það mér til ánægju.

Það skoðar líka skip. Ég á ekki lengur skip.  Það hefur líka einkaleyfi á öllum orkusölumælum landsins. Einu sinni seldi ég orkusölumæla,ekki lengur. Ég kaupi orku. Mér er sagt að orkukerfið hafi verið tvöfaldað vegna einhverra ESB fyrirmæla, sem ekki þurfti að taka hátíðlega en hentaði réttum aðilum að gera.  Nú eru tvö fyrirtæki að gera það sem eitt gerði áður. Með tvöföldum kostnaði.  Hvar er Frumherji í því dæmi?

Frumherji rekur löggildingarsvið. Ég teiknaði raflagnir stundum, fyrir hrun.  Frumherji rekur rafskoðunarsvið og það fer núna yfir allar teikningar að mér skilst. Ég ét enn of mikið. Frumherji rekur matvælasvið. Hvar er Frumherji í fæðukeðjunni?  Barnabörnin eru að taka bílpróf. Frumherji rekur ökuprófasvið. Nýliðar eru kannski ekki þeir bestu á bíla. Þá rekur  Tryggur bílaverkstæði.

Grunnurinn að Frumherja var að ríkið hætti að skoða bíla og leyfði einkaframkvæmd á því sviði. Svo einhvern veginn eru allir orkusölumælar landsins komnir í hendur þessa fyrirtækis. Og það er sjálft sagt komið í hendurnar á einum milljarðamæringi sem Sverrir Hermannsson hefur í það minnsta sagt landsmönnum þrim sinnum hvernig náði þeim fjármunum til sín.

Frumherji er á samkeppnismarkaði hvað varðar bílaskoðanir. Tryggur er áreiðanlega líka á samkeppnismarkaði.  Hvernig er Orkusvið Frumherja á samkeppnismarkaði? Eða hin sviðin? 

Er Frumherji almenningshlutafélag ? Hver er markaðshlutdeildin svona með tilliti til þeirra rosabauga, sem hafa risið yfir landinu?

Frá vöggu til grafar og kynslóð til kynslóðar, er þá einn stjórnmálaflokkur bestur til brautargengis?Bestur fyrir frumherja á öllum sviðum? Allt um það er Frumherji flottara félag en víða gengur og gerist á óheftum samkeppnismarkaði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

þeir skoðuðu Jeppan minn og sögðu að hann vera í lægi !! Hann er nýr.....

Vilhjálmur Stefánsson, 23.6.2011 kl. 15:04

2 identicon

síðast þegar ég gáði...átti Pálmi nokkur kenndur við FONS þetta ágæta fyrirtæki.

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 23.6.2011 kl. 16:38

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Mér er sagt að sá sem á það sé hestamaður sem vill lítt láta nafn síns getið.

Halldór Jónsson, 23.6.2011 kl. 16:40

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Er þetta ekki eigandi Frumherja?

Ágúst H Bjarnason, 23.6.2011 kl. 20:11

5 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Halldór !   Vel getur verið að þú sért vilhallur undir útrásarvíkingana , en það er langur vegur frá því að ég sé það . Ef Finnur Ingólfsson flokkast ekki undir útrásarvíking , þá veit ég ekki hver nær þeirri nafnbót , hann og Alfreð Þorsteinsson eru það góðir menn að ég tími ekki að umgangast svona gæðinga , en verði þér að "góðu"  .

Hörður B Hjartarson, 23.6.2011 kl. 20:27

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Frændi Ágúst

"Þetta" er talsvert líkt manni sem ég hef séð einhversstaðar.

Hörður, ég er ekkert að áfellast útrásarvíkinga per se. Ég er hinsvegar á móti að flokksgæðingar fá afskriftir skulda sem þeir stofnuðu til af því þeir fengu flokksgæðinga"fyrirgreiðslu"(sem er allt annað en lántaka Jóns og Gunnu).Útrásarvíkingar eru dugnaðarmenn margir. En vitlausar leikreglur gera menn að skúrkum.

Halldór Jónsson, 23.6.2011 kl. 22:21

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Núna, held ég að pilsfaldakapítalismi kommúnista sem er öðru nafni sósíalismi andskotans, sem birtist í gjaldeyrishöftum, viðhalds ónýts bankakerfis,viðhald ónýtra fyrirtækja vegna atvinnuverndarsjónarmiða, það er það sem er að leggja Ísland í eyði. Og svo óheft satrfsemi bófaflokkanna sem taka börn og vesalinga í gíslingu til fjárkúgana. Því miður, þá er ég rosalega svartsýnn á að kreppan sé að leysast.

Halldór Jónsson, 23.6.2011 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband