Leita í fréttum mbl.is

Verður hún þá uppnumin?

Ég hlustaði á Þórunni Sveinbjarnardóttur kveðja pólitíkina með ógurlega dramatísku drottningarviðtali í Ríkissjónvarppinu í kvöld og aftur í 10 fréttunum. Hugsið ykkur, manneskjan er búin að vera 12 ár á þingi og ætlar nú að hætta og fara í skóla á eftirlaunum. Og ég sem var búinn að bíða allan þennan tíma eftir að hún gerði eitthvað stórt fyrir land og þjóð.Það geymdi hún þá þangað til núna fyrir mig.

Hún sagði að hún efaðist um að VG hefði úthald til að klára kjörímabilið. Mitt gamla hjarta tók kipp og fór heljarstökk af hamingju. Skyldi hún núna hafa rétt fyrir sér um horfurnar í pólitíkinni?

Annars sagði hún eina stórmerkilega spásögn fyrir minn heimska haus. Hún lýsti því að aðildarumsóknin að ESB væri algert aðalatriði í stefnu Samfylkingarinnar. Það yrði að klára umsóknina og leggja hana fyrir þjóðina.

Þýðir þetta kannski að hafni þjóðin aðildinni þá bara loki Samfylkingin?Þessi görótti kokkteill af kommum og krötum verði loksins drukkinn í botn og veislugestirnir sitji eftir í brakinu tilbúnir undir tréverk? Við fáum aftur okkar gömlu Allaballa og Alþýðuflokk? Komnir heim í heiðardalinn?

Ef það er þessvegna sem Þórunn pakkar saman núna, þá sýnist mér að hún sé að boða okkur mikinn fögnuð. Er hún þá bókstaflega sjáandinn í eyðimörkinni og spámaðurinn sem birtist okkur eftir 12 ár í innhverfri íhugun?

Þvílík framtíðarsýn ef Samfylkingunni verður bara lokað þegar þjóðin hefur sagt sítt nei!

Er þetta ekki skarplega athugað hjá Þórunni, ef þarna blasa við fyrirsjáanleg endalok einsmáls-flokksins, að hlaupa frá borði núna eins og sagt er að sumir geri sem fara í land áður en dæmt skip leggur úr höfn í hinstu för? Endalok ESB málsins virðast þegar ráðin.

Verður Samfylkingin þá bara uppnumin eftir allt og hverfur hægt og hljótt út á hin pólitísku eilífarengi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

....er ekki rétt að senda alþingismenn og ráðherra í einu lagi í nám í siðfræði..... kannski bara eðlilegast og auðveldast að færa námið á Austurvöll, svona til að spara biðlaunagreiðslur....?

Ómar Bjarki Smárason, 5.9.2011 kl. 22:49

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Góðir!! Vonandi fer þessari martröð að ljúka.

Helga Kristjánsdóttir, 6.9.2011 kl. 00:37

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég var útskrifaður úr sígldri innrætingu í siðferði fyrir 5 ára aldur.  Það er sagt hér að Íslandinga stundi kappræður í samburði við útlendinga.  Hinvegar stund bara í mesta lagi um 8% útlendinga rökræður marktækt .  Við sem tilheyrum þessum 8,0% fæddumst með grunninn og þjálfum hann upp.  Ef farsími kostaði 1000 kr í gær og kosta 1500 krónur í dag þá hefur raun virði þorsks á Íslandi lækkað að öllum líkindinum. Ef króna lækkar að raunvirði verð geymslu kostnaður í bönkum dýrari. Til að hækka verðmæti krónu þá  geta Íslendinga lagt sitt af mörkum og lækkað verð öllu sem er Íslenskt. Þeir stjórna ekki gengisskráningum og raunvirðis mati erlendra ríkja. Við verðum að borga evrur til að markaðsetja hér með andvirði þess sem hægta  er selja fyrir evrur. Seðlabanki EU tekur veð fyrir því í afla og orku.  Hugmyndfræði Íslandinga í siðferði og fjármálum er ekki hægt að selja erlendis. Nema kannski, í fyrrverandi komma nýlendum.  Hér verð mennta Íslendinga óarðbært til lengri tíma litið.

Júlíus Björnsson, 6.9.2011 kl. 06:21

4 Smámynd: Geir Magnússon

Ég hef lesið athugasemdir Halldórs um árabil, fyrst á síðum Morgunblaðsins og núna á bloggi og alltaf er hann ferskur og hnyttinn.

Vona að spá hans um afdrif ESB vitleysunnar fari eftir.

Geir Magnússon, 6.9.2011 kl. 07:15

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta öll. Sér í lagi gleður mig að hafa skemmt Geir Magnússyni þó að hrós hans um mín skrif séu stórum orðum aukin sérílagi á þankalausum stundum.

Halldór Jónsson, 6.9.2011 kl. 07:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418430

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband