Leita í fréttum mbl.is

Komdu ef þú þorir

virðist Árni Páll segja við Jóhönnu.

"Ekki var hægt að skilja Árna Pál Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, í Silfri Egils síðasta sunnudag, með öðrum hætti en að hann sé ágætlega sáttur við að hverfa úr ríkisstjórn. Hann brosti sínu breiðasta, tók til varna fyrir Jón Bjarnason en varaði við að Steingrími J. Sigfússyni yrði færð of mikil völd.

Árni Páll hefur áttað sig á því að það væri pólitísk gæfa ef Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, tæki þá ákvörðun að fórna honum til þess eins að bola Jóni Bjarnasyni – hinum óþekka ráðherra – úr ríkisstjórn. Með því fái hann nýtt tækifæri til að sækja fram sem forystumaður Samfylkingarinnar."

Svo segir á T24 hjá Óla Birni.

Þessi skæra stjarna fyrrum Alþýðubandalagsins virðist ekki hafa tapað trúnni á "Brinkmanship" kaldastríðsins. En það var nokkurskonar komduefþúþorir stefna. En er ekki Árni um leið búinn að valda Jón Bjarnason með þessu og var hann þó valdaður fyrir af Ögmundi. Þetta kemur í veg fyrir frekari framsókn Steingríms í Machtpolitik hans yfir efnahagsmálunum. Jóhanna verslar ekki við hann með þetta allt opið.

Ríkisstjórnin fetar flughála stigu og verður fyrir vikið enn afkastaminni og árangurslausari fyrir þjóðina í því að gera nokkurn skapaðan hlut. Gersamlega ónýt til neins nema hækka skatta og skipta skortinum milli manna. Ekkert framtak í neinu sem byggir upp. Forsætisráðherra sem segir tölur um landflóttann byggðar á miskilningi.

Pólitíkin viðist byggjast upp á því einu að segja við samráðherra sína:

Komdu ef þú þorir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Klókt hjá Árna en það var að sama skapi hálf aulalegt hjá Jóni að leggja höfðuið á höggstokkinn með því að bera fram "tillögur að frumvarpi um breytingar á stjórn fiskveiða". Tillögurnar fólu það í sér í stuttu máli að fresta öllum breytingum um 20 ár.   Jón verður þá að nálgast nírætt og mun því tæplega hafa mikil áhrif á þær breytingar sem þá kynnu að vera gerðar. Þess vegna hefði Jón allt eins getað lagt til að nauðsynlegum breytingum yrði frestað í 200 ár. Ríkisstjórnin er svo ráðvillt og hugmyndasnauð í sjávarútvegsmálum að þessum fingurbrjót var tekið fagnandi til að breiða yfir vanmáttinn með því að fórna þessum annars ágæta hafri.

Sigurður Þórðarson, 14.12.2011 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 3418427

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband