Leita í fréttum mbl.is

Jón Gnarr

sat fyrir svörum í gærkveldi hjá Sigmari. Sá ætlaði nú aldeilis að grilla karlinn fyrir allt gifsaða fólkið sem datt á hálkunni. En honum varð ekki kápan úr því klæðinu. Gnarrinn benti einfaldlega á að langflest af fólkinu hefði brotnað á einkalóðum sem Borgin hefði ekkert með að moka. Og svo hefði bara snjóað á snjó ofan á götunum og ekki hefði bara hafst við að moka. Það hrökk eiginlega ofan í Sigmar. Samt er nóg framboð af fólki til að skammast út í Gnarrinn vegna viðtalsins.

Hinn frómi Borgarstjóri viðurkenndi hreinskilnilega að hann hefði komið með fordóma inn í pólitíkina. Nú sæi hann að allt fólkið í pólitíkinni vildi bara láta gott af sér leiða. Enginn vildi skilja eftir sig einhverjar rústir. Margt hefði truflað sig í að vinna að stefnumálum sínum eins og til dæmis að redda ísbirni handa borgarbúum. Í stað þess hefði hann orðið að fara að redda Orkuveitunni. Þannig færu hlutirnir öðruvísi en menn ætluðu í pólitík.

Gnarrinn er skammaður fyrir Orkuveituhækkanirnar og niðurskurðinn þar. En höfðu ekki forverar hans á Borgarstjórastóli bara forsómað að láta gjaldskrá fyrirtækisins fylgja verðlagshækkuum þannig að nú var allt komið á heljarþröm? En gleymist kannski ekki aðalatriðið sem er hversvegna OR tapar á rekstri Hitaveitunnar meðan Hitaveita Seltjarnarness getur selt heitavatnstonnið á hérumbil helmingi lægra verði og grætt á því?.

Allavega virtist vera hægt að draga mikið saman í rekstrinum eftir regeringstíð Alfreðs Þorsteinssonar þegar fyrirtækið er svona sokkið í skuldir. Ætli hagræðingin hafi ekki gleymst ansi lengi undir þeim gömlu Borgarstjórum sem menn telja núna langt yfir Gnarrinn hafna?

Stendur Jón Gnarr þessu Borgarstjórafólki nokkuð afgerandi að baki yfirleitt? Er ekki mála sannast að hver meðalsnotur sem er getur verið góður Borgarstjóri alveg eins og góður bankastjóri ef viðkomandi er einlægur og heiðarlegur? Fer ekki fyrst að kárna gamanið þegar spillingin og ábyrgðarleysið heldur innreið sína eins og Glitnismálið er dæmi um? En nú er réttað yfir þeim aðilum sem urðu til þess með ábyrgðarleysi eða yfirlögðu ráði, að eyðileggja eignir okkar hluthafanna og sólunda fé bankans í fíflaskap sinn og taprekstur viðskiptafglapa. Þvílíkt slys var að fá þessa kóna Jón Ásgeir og Lárus Welding til valda í okkar gamla og góða banka sem áður var rekinn af ábyrgð og festu.

Það stafar vissan ljóma af mörgum gömlum Borgarstjórum sem maður man eftir. Geir Hallgrímsson kom eins og stormsveipur og malbikaði bæinn. Davíð Oddsson seldi Bæjarútgerðina og og braut land undir ný hverfi.
En baklandið var ef til vill ekki ekki eins traust og áður var í tíð seinni Borgarstjóra Íhaldsins. Vinstrimenn komust til valda og öllu hnignaði eins og ávallt gerist þegar svo ber til. Í tíð Ingibjargar Sólrúnar hröktust lóðalausir Reykvíkingar til Kópavogs í hrönnum. Borgaryfirvöld gleymdu til hvers þau voru kosin. En það er að skaffa rennandi vatn og rafmagn og byggingalóðir fyrir þá sem vilja. Flóknara er það ekki.

Er ekki bara Gnarrinn að reyna að redda málunum eins og hann hefur vit til. Hann býr við erfiða tíma og vont árferði. Mér finnst allt í lagi þó að ísbjörninn frestist og jafnvel fríu handklæðin í Laugunum. Karlinn er að reyna að gera sitt besta þó enginn viti kannski núna hvort hann verður endurkjörinn. Reykvíkingar kusu hann til að stjórna og þá er rétt að hjálpa honum við verkið frekar en að hrella hann.

Hann er bara Jón Gnarr!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Jónsson

Halldór:Hjartanlega sammála, mér fannst reyndar ómaklega vegið að borgarstarfsmönnum, sem margir hverjir hafa lagt dag við nótt að reyna að halda samgöngum gangandi, og hverjum manni átti að vera það nærtækast að kunna fótum sínum forráð, eða er það ekki, ekki fór ég út að labba þegar rigndi sem mest og hálkan var mest, og vel á mynnst það verður hált í fyrramálið svo farið varlega, og hafið hugfast að hver er sinnar gæfu smiður.

Magnús Jónsson, 12.1.2012 kl. 22:15

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Sammála þessari grein.

Jóhanna Magnúsdóttir, 12.1.2012 kl. 23:26

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta bæði. Mega menn ekki ætla fólki að það reyni að gera sitt besta. Ég held að Borgarstjóri hafi margt til sín máls.Það koma aðstæður   þegar ekkert er hægt að gera vegna veðurs og almenns verksvits.

Halldór Jónsson, 13.1.2012 kl. 10:07

4 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Ef ekkert hefði verið gert vegna veðurs og ekkert verksvit hefði verið fyrir hendi, í gegnum árana rás þá væri enginn skipafloti til,og eymd og volæði væri hér ríkjandi, með ölmusu frá öðrum þjóðum. Það er alltaf hægt að gera eitthvað, það þarf bara að standa upp úr rúminu og framkvæma!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 15.1.2012 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 3418315

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband