Leita í fréttum mbl.is

400 þúsund bílar !

„...Nærri 400 þúsund bílar fóru um Héðinsfjarðargöng á síðasta ári, mun fleiri en gert var ráð fyrir þegar gerð ganganna var undirbúin. Þessi fjöldi bendir til þess að um milljón manns hafi farið um göngin, fram og til baka, á árinu.

Hversvegna borga þessir bílar ekki veggjöld? Voru þessi göng grafin ókeypis? Til hvers eru menn að rífast yfir því hvenær Vaðalheiðargöng hafi borgað sig og hvenær þau verði afhent ríkinu til eignar? Hvaða máli skiptir ártalið í þúsund ára sögu þjóðarinnar?

Hvað fóru margir um Vestfjarðagöng? Hvað voru greidd mikil veggjöld þar?

Hversvegna eru Norðfjarðargöng ekki grafin strax? Er það af því að það finnast ekki peningar til að grafa þau notendum að kostnaðarlausu? Hvaða lögmál gildir þar?

Hvervegna slógum við hendinni á móti til dæmis hálfum milljarði upp i framkvæmdakostnað í Héðinsfirð? Af hverju eru sum jarðgöng ókeypis en önnur ekki?

400.000 bílar ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

400.000.000 miðað við 1000kr gjald. Það munar um minna.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.1.2012 kl. 19:29

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Í fréttinni er lagt upp með forsendurnar (hugsanlega réttar) en útkoman er óskhyggja.

Unga fólkið þarna nyrðra á eflaust sinn þátt í sportinu; nýr og spennandi kvöldrúntur - a.m.k. á meðan hann er ókeypis.

Kolbrún Hilmars, 14.1.2012 kl. 19:48

3 identicon

Þetta eru nærri 1100 bílar á dag.  Það búa þarna ca. 1200 manns skv. þjóðskrá.  Athyglisverðar tölur.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 15.1.2012 kl. 02:25

4 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

hér er frétt Vegagerðarinnar.

Þar er talað um 548 bíla á sólarhring og 500 þúsund manns.

Hér er samantekt á kostnaði við Héðinsfjarðargöng.

Ef kostnaður vegna Héðinsfjarðarganga er 10% á ári, með fjármagnskostnaði, afskriftum, rekstrarkostnaði og öðrum kostnaði, þá er árlegur kostnaður 1,5 milljarður.  Þegar það deilist niður á umferðina þá kostar hver ferð 7.500 krónur á bíl.

Lúðvík Júlíusson, 15.1.2012 kl. 12:42

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta. Skilur einhver hversvegna verður að reikna arðsemi Vaðlaheiðarganga uppá tvo aukastafi þegar maður er búinn að  kynna sér kostnaðargreiningu Héðinsfjarðargangna og horfa á myndina af Möllernum búinn að keyra í gegn?

Halldór Jónsson, 15.1.2012 kl. 15:34

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Halldór, þú ert líklega búinn að sjá tölulega leiðréttingu Vegagerðarinnar; bílunum hefur fækkað um helming - ímynduðum farþegafjölda líka.

Þegar ég var ung þurftum við að fara YFIR Vaðlaheiðina sjálfa. Síðar var þjóðvegurinn færður norðar, um Víkurskarð. Nú vilja menn fara UNDIR Vaðlaheiðina. Samt getur Víkurskarðsvegurinn ekki talist fjallvegur. Eins konar Þrengslavegur samanborið við Hellisheiðina.

Fyrir mitt leyti tel ég að Austfirðingar eigi að fá næstu göng ef fjárhagur leyfir. Myndi þó mæla með Fjarðarheiðinni frekar en Oddsskarði.

Kolbrún Hilmars, 15.1.2012 kl. 16:24

7 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Halldór, ég skil ekki heldur hvers vegna Vaðlaheiðagöng verði að standa undir sér á sama tíma og önnur göng, fyrir utan Hvalfjarðargöng, þurfa þess ekki.

Svo lengi sem framkvæmdin er arðbær fyrir samfélagið þá á samfélagið, hið opinbera, að ráðast í framkvæmdina.

Lúðvík Júlíusson, 15.1.2012 kl. 18:00

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Kolbrún. En ég held að það sé nú varla að almenningur leggi þetta að jöfnu við Þrengslin eða Heiðina þó að við höfum nú minna vílað fyrir okkur hlutina þegar við vorum ung.

Gæti ekki verið meira sammála þér Lúðvík.En þarna er félag svipað og Spölur á ferð sem gerir þetta enn sjálfsagðara Við fáum þessi göng til þjóðarinnar, það er bara deilt um ártalið.

Halldór Jónsson, 16.1.2012 kl. 06:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418264

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband