Leita í fréttum mbl.is

Hvort svíkur Steingrímur

ţjóđina eđa Samfylkinguna spyr Styrmir á Evrópuvaktinni. Hann heldur ađ nú muni Steingrímur svíkja Samfylkinguna međ ţví ađ segjast elska makrílinn međ ţjóđinni meira en ESB.

Mín skođun er sú, ađ Steingrímur svíkji alla jafnt. Öllu sem hann lofar mest svíkur hann stćrst. Sama hvađ er. ESB, Samfylkingin, Vinstri Grćnir, jafnvel kommúnismann sjálfan. Steingrímur J virđist bara eiga eina hugsjón. Völd fyrir Steingrím sjálfan. Fyrir ţau svíkur hann allt sem hann getur. Ţví hann getur ekki tapađ. Verđtryggđur lífeyrir hans hćkkar dag frá degi hvernig svo sem öllu svikabixinu líđur.Kaupiđ hans og ţingmannanna hćkkar međan bćturnar hjá öldruđum og öryrkjum lćkka eftir ţví sem Björgvin skrifar í Mogga.

En hverju ćtlar hann ađ ljúga ţegar kosningar nálgast? Hverju getur hann fundiđ uppá til ađ lofa liđsmönnum sínum? Hann er búinn međ landrisiđ, atvinnumálin, ESB-andstöđuna,AGS-andstöđuna, Icesave I, II, III, Sjóvá, Íslands-og Aríonbanka, Askar Capital, VBS, Saga Capital, SpKef, veiđigjaldiđ, virkjanastoppiđ. Hvađ er eftir? Hann er einskonar sambland af Munchausen og Vel-lygna Bjarna. Sífelld uppspretta nýrra furđusagna.

Aumingja Vinstri Grćnir. Ţađ er ekkert eftir fyrir ţá ţví ađ Steingrímur er búinn ađ svíkja allt sem ţeir nokkurntímana hafa rćtt um. Skyldu ţeir  Hjörleifur og Ragnar Arnalds geta fundiđ nokkuđ ósvikiđ eftir í ţeirra gamal flokki?

Nú flennir Steingrímur granir á móti sjávarútvegsráđherra ESB og hristir hönd hennar ákaft sér mađur á myndum. Ćtli hann lofi henni ekki meiri makríl frá Íslendingum? Kannski fer hún ţá heim ánćgđ og Steingrímur sterki segir viđ okkur: Sjáiđ ţiđ hvernig ég tók hana? Hún fer ekkert međ mig.Viđ Jóhönnu segir hann svo kannski, er ţessi makríll nokkuđ til skiptanna viđ ESB? Verđur ţú ekki ađ standa ţig? Eđa á ég ađ gera eins og Styrmir segir?

Ţađ er ekki spurning um hvort Steingrímur svíki. Eiginlega alla jafnt.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ţetta bjó bak viđ túlann og er ţar enn ,auđvelt fyrir hann ađ skekja hönd Damanaki makráđu,hann kann orđiđ ţessa list.

Helga Kristjánsdóttir, 5.7.2012 kl. 16:36

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband