Leita í fréttum mbl.is

Lokum þá af

þessa svokölluðu hælisleitendur sem við ráðum ekki við að senda tl baka þaðan sem þeir koma og rífa vegabréfin fyrir landgöngu í Keflavík. Þeir misnota ferðafrelsið svo sem fréttir herma.

Það má halda þeim á sérstökum svæðum samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins. Það á ekki að láta þá njóta ferðafrelsis í landinu sem þeir koma til. Þeir eiga að vera afgirtir þar til að máli þeirra lýkur. Svo einfalt er það.

Ríkið bregst skyldum sínum við að gefa þeim tækifæri á að hrella íslenska farmflytjendur.

Lokum þá af.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

þeir hafa gerst þjófar líka,og það er ekki ábætandi nóg höfum við af þeim fyrir..

Vilhjálmur Stefánsson, 28.7.2012 kl. 21:17

2 Smámynd: Einar Gunnar Birgisson

Ég hef bloggað mikið um hælisleitendur og innflytjendur. Það er erfitt við að eiga. Fjölmenningarsinnar og þeir sem aðhyllast óhefta fjölkynþáttastefnu hafa tögl og haldir.

Sjá blogg mitt „Svíþjóð og fjölmenningarhrollvekjan - Múslímar í meirihluta um árið 2050“. Svíþjóð er komin oní svartholið.

Sjá http://bjartsynisflokkurinn.blog.is/blog/bjartsynisflokkurinn/

Einar Gunnar Birgisson, 28.7.2012 kl. 21:35

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Er það ekki smá skrítið að við sem þurfum að hafa öll skilríki uppi mörgum sinnum þegar við erum á leiðinni heim og þurfa svo að sæta því að vera mynduð bak og fyrir við heimkomuna, snuðruð og stöðvuð útaf pela sem hafði slæðst með. Klukkutími minnst útaf honum og sekt. En tollurinn fær  búsið handa, Pól, nei, ég man ekki hver það er.   

En svo koma menn án skilríkja eða með fölsuð skilríki og þá hrinur Íslenska kerfið og eina lausnin er að fá þessum aðilum hús og mat á minn kostnað.   Svo fá þeir rekstrarfé og frelsi til hverra þeirra athafna sem þeir hafa snilld til og þeir eru vissulega ekki reynslulausir svo sem dæmin sanna. 

En í samfélagi sem samman stendur af móðursjúkum kerlingum og axarskaftasmiðum þá er ekkert í þessu að gera,  annað en að henda í þessa peyja kleinum ef þeir brjótast inn til þín.   Menn höfðu þó öxi við rúmstokkinn í gamla daga, en nú er það bannað.

Hrólfur Þ Hraundal, 28.7.2012 kl. 22:17

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

http://westurfari.blog.is/blog/westurfari/entry/1250992/

þetta er ekki einfalt.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.7.2012 kl. 22:44

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Jú, Anna B. þetta er einfalt mál. en öll mál verða flókin ef allir ætla að tala en eingin að gera.

Hrólfur Þ Hraundal, 28.7.2012 kl. 22:51

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

http://visir.is/vilji-rati-i-uppbyggilegan-farveg/article/2012707289961

afsakið, ég sendi vitlausa krækju í umræðuna!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.7.2012 kl. 23:17

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

satt Hrólfur, en við verðum að setja okkur í spor þeirra sem biðja okkur um hjálp. Ef það eru glæpamenn, þá er mín skoðun að horfa á Vesalingana í leikhúsi og ef það er ekki nóg, þá erum við með raunverulega glæpamenn! Þú skilur...

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.7.2012 kl. 23:21

8 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Takk Anna fyrir alveg einstaklega skýrt mál, sem upplýsir mig mjög til framtíðar. Veist þú um námskeið handa mér að sækja til að læra krækjumál?

Hrólfur Þ Hraundal, 28.7.2012 kl. 23:54

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Fyrirgefðu Halldór að ég fór að hjálpa uppá eða laska vit þessarar stelpu, hér á þinni síðu og settu barra ofan í við mig og ég þoli það. 

En aftur að málinu, og skilji ég rétt þá eru allar heimildir til svo senda megi skilríkja laust fólk til þess lands, umbúðalaust sem það kom frá.  Séu heimildir ekki notaðar þá þarf að fá skýringar á því.         

Það er bara nokkuð sem ég hef ekki tíma til, búin að prófa.

Hrólfur Þ Hraundal, 29.7.2012 kl. 00:35

10 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

hjálpaðu nú viti mínu Hrólfur og/eða Halldór, en hvað er krækjumál? 

Krækja=ling á ensku

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 29.7.2012 kl. 02:00

11 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég nota orðið "krækja" og kenni það íslenskum börnum í stað þess að nota ling, link, lingurinn, hvað er svæðið á þennan ling? hvaða link eigum við að nota?"

Krækja er íslenska orðið yfir krók sem krækir í þessar upplýsingar...

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 29.7.2012 kl. 02:03

12 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þakka þér Anna, nú ert þú farin að kenna fornaldar þuss sem veit ekkert um tölvumál. 

Ef mér tekst að skilja rétt þá er krækja í líkingu við það sem ég og mínir grannar höfum kallað tengi.  Krækjur voru notaðar til að halda aftur fjóshurðum en tengi voru notuð til að tengja kerru aftan í dráttarvél, eða slöngu við aðra slöngu.  En allt er gott sem skilst og nú skilur þussinn.  

Hrólfur Þ Hraundal, 29.7.2012 kl. 08:50

13 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Halldór,

Ertu að stinga upp á að íslendingar búi til svona eitt stykki Guantanamo Bay á Íslandi?

Íslendingar eru meðlimir í alls konar kaffi og te klúbbum (S.Þ. EES, NATO o.fl.) sem íslendengar hafa svo sem ekkert efni á að vera í. En af því að íslendingar eru í þessum kaffi og te klúbbum, þá verða þeir að fara eftir þeim leikreglum sem eru í hverjum kaffi og te klúb.

Þetta er aðal ástæðan fyrir að íslendingar geta ekki gert það sem þeim sýnist þegar kemur að málum hælisleitenda.

Kveðja frá Las Vegas.

Jóhann Kristinsson, 29.7.2012 kl. 11:45

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Þakka öllum fyrir athugsemdir. Jóhann, við erum tengdir svon kaffi og te klúbbi sem beinlínis segir okkur hvernig við eigum að hantéra hælisleitendur. Við erum ekkert að fara eftir því heldur allt öðruvísi.

Halldór Jónsson, 29.7.2012 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband