Leita í fréttum mbl.is

Fylking fjöldans

flykktist á kjörstað til að kjósa leiðtoga sinn Össur Skarphéðinsson! Hann sigraði mótframbjóðanda sinn með miklum yfirburðum, heilum 68 atkvæðum! Sem eru nálægt 7 % !

Þetta fólk er þess umkomið að býsnast yfir því að formaður Sjálfstæðísflokksins sigrar í sínu kjördæmi með þrisvar sinnum fleiri atkvæðum en leiðtoginn Össur sem eyddi bara fimmtíuþúsund kalli af SPRON-gróða sínum í atkvæðakaup. Bjarni hafði enga kosningaskrifstofu heldur. Kosningaþáttakan var hlutfallslega svipuð hjá báðum flokkum nema kjósendur Bjarna þurftu að ferðast sjálfir á kjörstað.

Þetta fólk þykist þess umkomið að hafa fullkomið vit fyrir Íslendingum til allrar framtíðar. Þetta fólk vill afsala fullveldi þjóðar sinnar til erlendra aðila og afhenda stjórnun auðlinda landsins til Brussel. Það hefur greinilega fjöldafylgið á bak við sig eða hvað?

Þorsteinn Pálsson er ekki seinn á sér í Fréttablaðinu að túlka það svo að kjör Ragnheiðar Ríkharðsdóttur í 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum með hátt á þriðja þúsundum atkvæða þýði að flokkurinn sé nú jákvæðari en áður í garð aðildarumsóknar Össurar. Hann hefur auðvitað ekki fyrir því að spyrja þingmanninn sjálfur hvaða afstöðu hann hafi til stefnu flokksins í því máli heldur spinnur upp stefnubreytingaráhrif við það að Ragnheiður taki sæti Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.

Makalaus er þessi sífelldi rangupplýsingaspuni um að tveir turnar séu í íslenskum stjórnmálum. Það sé Sjálfstæðisflokkurinn annarsvegar og Brusselfylking fjöldans hinsvegar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það stendur ekki steinn yfir steini hjá Steina

Helga Kristjánsdóttir, 18.11.2012 kl. 11:52

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þorsteinn þreytist aldrei á að halda fram þeirri firru að þeir sem vilja framselja öll okkar ráð til ESB séu víðsýnir. Við hinir erum sem sé þröngsýnir. Steini er búinn að skrifa þennan sama pistil í mörg ár. Og hann má mín vegna halda áfram að skrifa svona.

Sigurður Þórðarson, 18.11.2012 kl. 13:11

3 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Þorsteinn Pálsson þarf að fara yfir í Samfylkinguna, hann virðist vera orðinn þannig þenkjandi, finnst mér. Hann er greinilega ennþá sár út í sinn flokk.

Eyjólfur G Svavarsson, 18.11.2012 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband