Leita í fréttum mbl.is

Fyrir hvað stendur?

frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins?

Stundum verð ég algerlega furðu lostinn að lesa eða hlusta á útskýringar vinstri spekinga eins og til dæmis Stefáns Ólafssonar prófessors á málefnum Sjálfstæðisflokksins.

Spurningar sem hann leggur fram á bloggi sínu eins og "Fyrir hvað stendur Hanna Birna...?" eru svo barnalegar að tæplega er hægt að svara þeim.

Þó að það sé borin von að Stefán Ólafsson og álika menn geti skilið það, þámá nefna hér að í Sjálfstæðisflokknum eru menn kjörnir til að fara fyrir stefnu flokksins sem er mótuð á landsfundi. Þar talar Hanna Birna eins og aðrir auðvitað fyrir sínum skoðunum og áherslum og greiðir atkvæði eftir þvi. Vinnur fólk á sitt band eða fær aðrar hugmyndir. En hún stendur svo auðvitað fyrir flokksstefnunni út á við og fer eftir henni sem stjórnmálamaður í dagsins önn.

Hanna Birna og aðrir frambjóðendur eiga auðvitað sín áherslumál og áhugasvið óháð því. Hún stendur fyrst og fremst fyrir Sjálfstæððisstefnuna eins og aðrir flokksmenn og hefur meiri áhuga fyrir einum málaflokki en öðrum. En pólitík er vinna og þar fyrir utan hópvinna. Það eru flokkar sem taka á málum og koma þeim í gegn. Ekki bara stórstjarna eins og Hanna Birna heldur líka samflokksmenn hennar.

Þetta eiga kommar skiljanlega erfitt með að skilja. Þeir og aðrir slíkir halda alltaf að stjórnmálamaður eins og Maó til dæmis, sé sjálf stefnan. Hún sé stefna allra kommúnista. Þegar Maó drepur 10 milljónir eða 20 þá er það samt ekki endilega stefna flokksins eða allra kommúnista heldur prívatglæpaverk Maós.

Stjórnmálamenn Sjálfstæðisflokksins eru kjörnir en komast ekki til valda eins og ráðamenn í kommúnistaríkjunum hvað þá að þeir sæki sér þangað fyrirmyndir.

Stefán Ólafsson virðist mér hafa verið í nokkuð stöðugri afturför í víðsýni síðan hann talaði við Milton Friedmann hér um árið og var þá einna skynsamastur viðmælenda hans. Er það af því að hann er búinn að finna hvaða tónar seljast best til þeirra stjórnmálafla sem í seinni tíð vilja kaupa hans þjónustu sem ráðgjafa? Prófessorslaun eru víst ekki svo há að ekki veiti af viðbótartekjum.

Fyrir hvað stendur þá maður og álitsgjafi eins og til dæmis Stefán Ólafsson?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þetta er áhugaverð pæling, Halldór, með þá stjórnmálamenn sem starfa í umboði Sjálfstæðisflokksins. Því ef þeirra hlutverk er bara að messa það sem samþykkt er á Landsfundum væri eðlilegast að forrita róbóta sem tækju sæti á Alþingi! Ástæðan fyrir góðu gengi fólks eins og Hönnu Birnu og Péturs Blöndal er einmitt það að hinn almenni kjósandi treysta því að þau hafi sjálfstæða hugsun og láti hvorki ættarveldi né flokksaga ráða yfir sinni sjálfstæðu hugsun. Það gæti nefnilega reynst róbótanum erfitt að leita svara við öllum því sem upp kemur í hans daglegur störfum í samþykktum Landsfundar! Reyndar koma upp þau atvik hjá sumum stjórnmálamönnum að manni finnst stundum eins og þeir séu róbótar með bilað forrit. En það er annað mál!

Annars er mitt eina afrek í pólitík það að hafa átt hugmynd að tillögu um að leita leiða til að flytja eitthvað af vöruflutningum af þjóðvegunum og út á sjó. Og afrekið felst í því að Ögmundur skildi tíu árum síðar taka þetta upp á sína arma, væntanlega eftir vandlega yfirferð í gegnum stefnumál Sjálfstæðisflokksins. Vonandi átti þetta þátt í endurkjöri Ögmundar til að leiða Vg í Kraganum....!

Ómar Bjarki Smárason, 27.11.2012 kl. 20:47

2 Smámynd: Mörður Ingólfsson

Mér hefur alltaf fundist að nazistar ættu í stórkostlegum erfiðleikum með að átta sig á þessu líka, að flokkur og foringi væri ekki sitthvor hliðin á sama peningi. Nazistar hafa tala t.d. gjarnan um að mikilvægt sé að hafa sterkan leiðtoga, ein Reich, ein Volk ein Fuhrer en þó voru menn eins og Göbbels, Göring og fleiri og jafnvel venjulegir verkfræðingar eins og Eichmann í raun þeir sem framkvæmdu stefnuna. Leiðtokadýrkun er þannig nazistum og öðrum slíkum í blóð borin. Þannig eru nazistar illa áttaðir á að það var ekki bara prívat illska Augusto Pinochet sem varð til þess að ungmenni voru pyntuð og myrt í stórum stíl, heldur var það í raun fasisminn sjálfur sem ól af sér illskuna.

Mörður Ingólfsson, 28.11.2012 kl. 00:56

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Að mínu mati er mikil munur á áherslum sósíalista=jafnaðarmanna=democrata=kommústa=nasista=fasista eftir þjóðríkjum.  Þannig má segja að allir séu þeir þjóðernissinnaðir eftir þjóðríkjum. Antí þjóðernisstefna er sjaldgæf. EU stjórnaskrá segir að Ríkishollusta þegna meðlima ríkja tryggi hollustu þeirra við Evrópsku Sameinginguna í grunni tækifæra til að hirða meiri vsk. og launskatta heima hjá sér. EU passinn komi ekki í stað Meðlima ríkis passanns heldur sé viðbót við hann.   Á elítu máli. Sérhver elíta bera ábyrgð á framfærslu sinna aumingja. Þjóðverjar höfundar EU og Frakkar líka eru rökréttir og þjálfaðir til að draga rökréttar ályktanir frá fæðingu.  Við eru að tala um toppanna í stjórnsýslum þeirra.

þegar lögjafinn fær framvæmda völd í eigin þágu , þá hafa alltaf skapast vandræði hjá almenningi í sögunni.  Þá gerast sauðirnir[meðalgreindir af Hitler líka]  löggjafar og treysta því best einum til að bera alla ábyggð á skattheimtunni sem framkvæmdir kosta.  Löggjafar=þingmenn eiga veita Framkvæmdavaldinu aðhald í fjármálum skammtíma og langtíma. Ekki semja skattkrefjandi eyðsluplön eins og væru hluti framkvæmdavaldsins.    

Júlíus Björnsson, 28.11.2012 kl. 03:20

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Æ Ómar minn Bjarki, af hverju ertu að snúa út úr fyrir mér. Fólk í stjórnmálum eru ekki róbotar. Það þarf að leysa ákveðið verkefni. Það vegur og metur í flokki sínum hvernig það samrýmist best því sem flokkurinn hefur sem stefnu, gagnist umbjóðendum sem eru þjóðin,og hvaða möguleikar eru á því að ná besu lausn fram, hvað sé hægt að semja um við andstæðinga sem eru annarra skoðunar osfrv. Pólitíkus þarf að vera einvaldur til að geta ákveðið allt sjalfur.

Mörður minn. Hitler byrjaði sem stjórnmálamaður og flokkur hans sem stjórnmálaflokkur. Hitler komst til valda á löglegan hátt. Hann tók hinsvegar alræðisvald með ruddaskap og morðum. Ég geri ráð fyrir að þú sér að vitna til þess kafla í sögunni.

Júlíus, hver á þá að semja "skattkrefjandi eyðsluplön eins og væru hluti framkvæmdavaldsins"? Til hvers eru þau? Eru þau ónauðsynleg?

Halldór Jónsson, 28.11.2012 kl. 08:38

5 Smámynd: Mörður Ingólfsson

Sæll Halldór,

Nei, ég er ekki að vitna til þess að Hitler hafi verið stjórnmálamaður. Hann vara bara nazisti. Það sem ég er að reyna að gera, en greinilega ekki að heppnast nógu vel svo þú skiljir, er að sýna nazisma og fasisma sem hliðstæðu við þínar stjórnmálaskoðanir eins og þú dregur upp hliðstæðu milli Maóísks kommúnisma og skoðana þeirra sem eru til vinstri við þig í íslenskri pólitík. Ég var að reyna að fara ofan í ormagryfjuna sem þú virðist lifa í til að reyna að ná athygli þinni. Ég var bara að reyna að vera ósmekklegur og ókurteis eins og þú.

Mörður Ingólfsson, 28.11.2012 kl. 18:34

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Mörður

Þér tekst ágætlega að vera ósmekklegur og ókurteis.

Ég eyði ekki tíma í orðaskipti við þig því að þú vilt hvorki skilja upp né niður í því sem ég er að skrifa um. Ég sting uppá að þú haldir þig á þínu læsta bloggsvæði okkur báðum til ánægju.

Halldór Jónsson, 28.11.2012 kl. 22:41

7 Smámynd: Mörður Ingólfsson

Ó, æ en hvað ég var vitlaus að skilja þig ekki nógu vel. Þú ert svo djúpvitur að meðalmenni eins og ég taka bara andkafir. Alltaf þegar sjallar kalla vinstrimenn kommúnista á að kalla sjallann nazista.

Mörður Ingólfsson, 28.11.2012 kl. 23:07

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

Aðilar setjast niður semja um hlutfallaga skiptinu á tekjum og gjöldum geira , lögaðila, og stétta, einstaklinga á 95% af heildar meðaltekjum og meðgjöldum síðustu 30 ára til næstu 30 ár. 5% Fara svo í að leiðrétta skekkjur, fjárfesta/verðtryggja í UK orkuverum.  Dreifingar alltaf hlutfalllega jafnar. Engir nefskattar eða niðurgreiðslur: persónafsláttur.  Fyrirfram greiddar samtryggingar í formi skattaafsláttar þegar það er réttlætanlegt.  

Framkvæmdavaldið kosið af  kjörmönnum til 6 ára.  Lögjafinn þess vegna á hverju á ári á netinu, og safnast einu sinni á ári  í eina viku til samþykkja breytingar eða ný lög  og reglur: langtíma fjárlaga ramma , og svo skammtíma:t.d. árangurtengt kaup toppa stjórnsýslunar.  Framkvæmdavaldið lætur þingmenn fylgjast með á netinu meðan lagafrumvörp þess eru að þroskast og hefur til þess hæfustu stofnanir og fagaðila sér til handar.

Útsvar verði 40% á starfsmannveltu, dreifist hlutfallslega jafnt.  Tekjur yfir meðal kaupi ef réttlætanlegt beri 2,5% til 5,0% tekjuskatts viðauka.

Rekstrar leyfisgjöld eða hluti veltuskatta vsk. fjármagni Miðstýringuna í Reykjavík.
City tax til að byggja upp ferðmanna iðnað[greiða niður Hörpur og Dýragarða: snyrti aðstöðu] verði á sveitarstjórnarstigi og hlutfallslegur ekki nefskattur til háðungar eins og í dag.     

Þjóðverjar hafa túrista framlagið[gistináttargjaldið] 7,0% og söluskatt á hótelum og veitingahúsum 7,0%: túrista framlagið til að endurveita og laða að túrista: ekki til að borga hagfræðingum og þingmönnum álags kaup.    USA er með 14% einfaldan söluskatt á þessum geira : skiptir bak við tjöldin.

Jöfn tækifæri og stétt með stétt, í stuttu máli. 100 ára kreppa á vestulöndum átti að byrja um 2000. Ísland er á síðasta snúning að uppfæra hjá sér ímyndunaflið.

Júlíus Björnsson, 29.11.2012 kl. 05:24

9 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sjávar útvegsgeirinn er búinn læra af reynslunni það má lesa í leikreglu Evrópu Borgríkja að það sem selst almennt þolir ekki okur. Ferskur fiskur selst ekki almennt t.d. Common market eru almennir markaðir , upparnir 10% heimila með 30% til 22,5% heildar heimilstekna versla á private market: það sem hugurinn girnist þurfa ekki að velja eins og virkir neytendur á common market.  Erlendis þekkist elítan ekki á sérstakri sparnaðar nísku eins og sumir sérvitringa elíotunnar á Íslandi.  Meðalverðflokkar sömu einga tegundar  seljast mest og hafa mest vægi til breytingar á raunverðum [ef betri verðflokkum er sleppt].

Ísland verður að læra heimsborgar hugsunarhátt ef það vill láta bera virðingu fyrir sér. Tala við sig eins og jafningja.  Hætta að spyrja eins og fávís.. 

Júlíus Björnsson, 29.11.2012 kl. 05:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418218

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband