Leita í fréttum mbl.is

Vælt um samúð

á öllum rásum í fjölmiðlum vegna fólks sem kemur sér í vandræði með þvi að svíkja sig inn á okkur.

Af hverju eru vandamál Króata í blönduðum hjónaböndum eitthvað sem við eigum að leysa ? Þeir segjast ofsóttir í landi sínu sem er að ganga í ESB. Þeir eru að leita sér að betra lífi og ætla að eignast það hér hvað sem okkur finnst. Ef þeim tekst að eignast barn hérna eru þeir sloppnir inn hvað sem við segjum.

Hvað með allt bátafólkið frá Afríku sem er að sigla daglega til Ítalíu og dúkkar svo upp hér? Það vill betra líf og vill að við sköffum því það. Annars bara hótar það að drepa sig. 

Hvar ætlum við að enda í þjóðlegri "Malagasamúð" kvenna úr Vesturbænum?  Af hverju erum við að búa þessi vandamál til fyrir okkur?  Höfum við eitthvað pláss fyrir milljónir frá Afríku og Arabalöndunum? Það er vælt um samúð og mannúð. Við erum hreinlega vont fólk að gefa ekki ríkisborgararétt til hvers sem er.

En að kvelja okkar eigið gamla fólk og traðka á því og plokka á alla enda og kanta. Það er allt í lagi og enginn hefur samúð með því nema Helgi í Góu. 

En hinn nútíma Baldur skal alltaf grátinn úr helju og hvaða fangelsi og harðrétti sem honum dettur í hug að lýsa fyrir okkur og fréttamönnum okkar. 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

íslendingar mega eiga það að þeir eru ekki alltaf sjálfum sér samkvæmir.

Ríkir menn vildu flytjast til landsins og fá íslenzkan ríkisborgararétt og gátu séð um sig sjálfir.

En því var hafnað af landslýð af því að þeir eru ríkir og komu til landsins löglega, með lögleg skilríki og sögðu sannleikann við útlendingareftirlitið.

Fátkir menn vidu flytjast til landsins og fá íslenzkan ríkisborgararétt en gátu ekki séð um sig sjálfir.

Það þótti sjálfsagt af landslýð af því að þeir eru fátækir og komu til landsins ólöglega og/eða með fölsuð skilríki og/eða lugu að útlendingaeftirlitinu.

Svona er þetta bara.

Kveðja frá Las Vegas.

Jóhann Kristinsson, 29.5.2013 kl. 22:49

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sammála þér, Halldór.

Jón Valur Jensson, 30.5.2013 kl. 11:36

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Svo sammála.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.5.2013 kl. 16:32

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ég er svo kaldhjörtuð að ganga út frá því að þessi holskefla flóttamanna frá ESB-Króatíu hingað hafi stafað af því að fólkið hafi haldið að það væri síðasti sjens að koma sem hælisleitandi á kostnað íslenskra skattborgara, en ekki sem vinnuleitandi á eigin ábyrgð.

Svo til viðbótar, þá hefði það verið móðgun af hálfu íslenskra yfirvalda gagnvart  ESB að samþykkja þessa hælisleitendur.  Þvi þótt Króatía verði ekki formlega ESB ríki fyrr en 1.júlí n.k. þá var það á síðasta ári sem aðildarferlinu lauk og Króatía var boðin velkomin í sambandið eftir að hafa uppfyllt öll skilyrði ESB.

Kolbrún Hilmars, 30.5.2013 kl. 18:21

5 identicon

Margt fólk, frá þessum löndum á það skilið að fá hjálp. En vandamálið er ekki flóttafólkið, hedlur sú staðreynd að það er ekki verst satta fólkið sem getur komið sér utan. Og í mörgum tilfellum, er um að ræða fólk sem tekið hefur þátt í styrjöldunum, og á ekki að fá hæli, yfir höfuð.

En það sem maður á að varast, er "gerfi" samúð eins og er í mörgum ríkjum heims. Þar sem tekið er á móti flóttafólki, því síðan safnað saman í ghetto's. Og síðan allt gert til að það þrífist ekki. Fólk sem tekið er á móti, á maður að aðstoða við að það þrífist ... annars verður niðurstaðan bara eins og husby í Svíþjóð.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 30.5.2013 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband