Leita í fréttum mbl.is

Alveg varð ég bit

hversu  fólki tókst að æsa sig upp yfir einni bloggfærslu hjá mér um hommana. Algert aðsóknarmet varð á síðuna sem mér dettur sjaldnast í hug að margir lesi nema einhverjir sérvitringar. Viðtökurnar voru stórkostlegar og voru menn bæði með og á móti eins og gengur.En ekki virðist allt búið enn.

Nú kemur kemur ritsjtóri Fréttablaðisns, hann Ólafur Stephensen, og tileinkar okkur Gylfa Ægissyni leiðarann í dag. Sem hefði farið framhjá mér þar sem ég les ekki blaðið reglulega af því mér finnst það oftar en ekki leiðinlegt.En ritstjórinn segir svo:

"Skrif tveggja þekktra manna um gleðigönguna í Reykjavík síðastliðinn laugardag hafa vakið athygli.

Halldór Jónsson, verkfræðingur í Kópavogi, skrifaði bloggpistil um að í göngunni fælist "ofbeldi samkynhneigðra" sem hefði gengið alltof langt. Halldór sagðist styðja jafnréttisbaráttu samkynhneigðra (eins og er orðið í tízku hjá þeim sem ekki hafa losnað við fordómana gagnvart samkynhneigð) en skilgreindi "ofbeldið" þannig að ætlazt væri til að "venjulegir karlmenn" þyldu að horfa á karlmenn í sleik á almannafæri. "Þeir virðast heimta að við segjum að okkur finnist þetta flott og allt í lagi. Okkur streiturum finnst þetta hins vegar viðbjóðslegt og viljum ekki horfa á þetta. Okkur er auðvitað sama þótt þeir geri þetta en látið augu okkar í friði. Almennt velsæmi er ekki úrelt," skrifar Halldór.

Undir þetta tók Gylfi Ægisson tónlistarmaður í athugasemd á vef DV og sagði meðal annars: "Börn sem horfa á og alast upp við að þetta sé allt eðlilegt finnst þetta kannski spennandi og skemmast við að sjá þetta seinna meir. Ef svo að þjóðin öll verður orðin öfug eftir nokkur ár, þarf að flytja inn börn frá Rússlandi." Auðvitað þykir Gylfa líka "vænt um" samkynhneigða eins og hann tók fram í útvarpsviðtali þar sem hann ítrekaði fordómana.

Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Samtakanna ´78, sagði í Facebook-færslu í gær að hún væri "þreytt á að hatursorðræða gegn hinsegin fólki teljist vera "skoðun" sem gott sé að sé opinberlega rökrædd". Það er rétt hjá henni. Taut af þessu tagi á ekkert skylt við heilbrigð skoðanaskipti, heldur flokkast undir hatursfulla fordóma. Í hegningarlögunum er það skilgreint sem afbrot; refsa má fólki sem "með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á mann eða hóp manna", meðal annars vegna kynhneigðar viðkomandi.

Það er algengt að klæða fordóma gagnvart því að samkynhneigðir sýni ást sína opinberlega í búning umhyggju fyrir "almennu velsæmi". En ætli Halldóri Jónssyni finnist líka viðbjóðslegt að strákur og stelpa fari í sleik á almannafæri? Og sér Gylfi Ægisson ekki gargandi kaldhæðnina í því að höfundur Sjúddirarírei hafi áhyggjur af því að kossar á almannafæri eða borgarstjóri á upphlut skemmi barnssálir?

Auðvitað geta menn sagt sem svo að kallagreyin séu nú ekki að hvetja til að neitt verði gert á hlut samkynhneigðra. Nei, ekki nema að reka þá aftur í felur sem annars flokks borgara sem mega ekki sýna tilfinningar sínar opinberlega eins og aðrir. Gleymum heldur ekki að áróður um "viðbjóðslega" hegðun sem gæti endað með að "öll þjóðin verði öfug" er víða notaður til að réttlæta gróft ofbeldi gegn samkynhneigðum - stundum lögbundið, ríkisrekið ofbeldi eins og í Rússlandi.

Sem betur fer átta flestir sig á því að samkynhneigðir eru venjulegt fólk, sem lætur eðlilegar kenndir og tilfinningar í ljósi við þá sem það elskar. En það að svona galnir fordómar skuli enn vera til sýnir rækilega fram á að það er langt frá því að gleðigangan sé orðin úrelt eða ónauðsynleg og sigur unninn í mannréttindabaráttu samkynhneigðra. "

Það gengur nú frekar fram af mér ef pistillinn minn er túlkaður sem dulklæddur hatursáróður gegn samkynhneigðum. Ég þykist bara styðja jafnrétti samkynhneigðra en hatist við  það á laun?

Mér finnst nú þessi ritstjóri seilast full langt að gera mér upp skoðanir sem ég hef alls ekki. Ég tel mig ekki hafa sagt annað en meiningu mína um samkynkneigða eða öfugugga og hegðun þeirra á almannafæri. Auk þess hvaða erindi pólitík um Snowden og Manning hefði átt í gleðigönguna?

Þetta öfuga fólk sem ég þekki margt er eins indælt og nokkrir aðrir og ég faðma það að mér af því mér þykir vænt um það fyrir mannkosti þess en ekki til þess að leika eitthvað hlutverk fyrir Fréttablaðsritstjórann  eða tauta eitthvað annað fyrir Önnu Pálu. Ég er bara ég og það er eins og það er. Ég sagði líka og endurtek að kynhegðun fólks kæmi mér ekkert við og stend við það. En almennt velsæmi er ekki fólgið í því að ögra fólki á almannafæri eins og Steinunn Ólína lýsir í fyndinni grein sinni í sama blaði.

Mér þótti miður að sjá fólk hella sér yfir hann Gylfa Ægisson vin minn og skotfélaga,  fyrir að taka í sama streng.  

Gylfi orti sig frá hremmingunum svohljóðandi:

                                            Æfitímar ei lengdir,

                                            okkur ekki í hag.
                                            Við Halldór verðum hengdir,
                                           í hádeginu í dag.

Takk fyrir liðveisluna Gylfi. 

                                           Nú göngum við Gylfi báðir

                                           til Golgatakrossins trés

                                           og heitum á himneskar náðir 

                                           til hommanna alveg spes.   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Halldór , var að lesa þessa líka bununa frá 10.ágúst,fyrst í gær. Ég hefði nú verið með í athugasemdum,en var í Þorlákshöfn og síðan í Vestmannaeyjum. Rétt eins og þú rak ég augun í nafnið þitt í Fréttablaðinu,þá varð ég auðvitað að lesa það,svo nú veit ég alla málavöxtu. Ég hef oft haft á orði að þegar minnihluta hópar taka sig saman og vilja rétta sinn hlut, nægir þeim ekki að ná því markmiði,heldur fara yfir strikið og fólk verður oft fráhverft því. Steinunn Ólína er bráðfyndin,var næstum búin að gleyma henni blessaðri.

Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2013 kl. 18:23

2 Smámynd: Elle_

Munið þið eftir opinberum og ógeðfelldum stuðningi Ólafs Stephensen við kúgunina ICESAVE?  Enda heitur ESB-já-maður.  Morgunblaðið hafði vit á að losa sig við hann úr ritstjórn. 

Hann er að mínum dómi óvandaður blaðamaður/fréttamaður/ritstjóri.  Nú ætlar Ólafur Halldóri hatur á heilum hópi manna, eins og nokkrir enn (og ég nefni þar helst hinn skáldandi Elías), fyrir að finnast viss hegðun nokkurra manna á almannafæri ógeðfelld.  Það er ekki sama og hatur þó maður mætti gæta orða sinna. 

Ólafur Stephensen-  Opinber stuðningur þinn við ESB-umsókn Samfylkingar og kúgunina ICESAVE er hegðun sem gæti kallast ógeðfelld eða kannski ógeðsleg og sem mér finnst ógeðfelld, þó það þýði ekki að þeim sem finnist það, hati alla blaðamenn og fréttamenn og ritstjóra.

Elle_, 15.8.2013 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3418434

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband