9.11.2013 | 21:15
Fræknir frambjóðendur
í prófkjöri Sjalfstæðismanna til Borgarstjórnar í Reykjavík komu í félagsheimili flugmanna á Reykjavíkurflugvelli á laugardagsmorgni.
Kjartan Magnússon lýsti reynslu sinni af sambýli við flugvöllinn frá blautu barnsbeini. Hann áætlaði að 1 % af vinnuafli borgarinnar, 65000 manns, væri beinlínis starfandi á flugvellinum. Hann sagðist ekki sem stjórnmálamaður geta látið sem að þetta skipti ekki máli. Undir þetta tóku meðframbjóðendur hans Lára Óskarsdóttir og Björn Jón Bragason. Nokkrum vikum áður höfðu frambjóðendurnir Júlíus Vífill Ingvarsson og Marta Guðjónsdóttir komið á þennan sama stað og lýrst eindregnum stuðningi við Reykjavíkurflugvöll.
Fram kom á fundinum að flugmenn og flugrekendur á Reykjavíkurflugvelli væru mjög óánægðir með það tómarúm sem vellinum væri haldið í. Þar mætti ekkert gera, ekkert byggja né enga framtíð eiga vegna þessara sífelldu vangaveltna um að flugvöllurinn færi kannski. Fasteigna eigendur yrðu sjálfir að kosta vatns- og fráveitulagnir frá eignum sínum þó að þeir væru skattlagðir að fullu með vatns-og horæsagjöldum án þess að fá hvorugt til sín lagt sem aðrir borgarbúar. Þó hefðu Fluggarðar verið reistir með fullu leyfi borgaryfirvalda fyrir meira en 30 árum. Nú skrifaði lögfræðingur Reykjavíkur þessu fólki bréf og tilkynnti þeim að eignirnar skuli fjarlægðar bótalaust.
Síðasta uppákoma um frestun á niðurlagningu N-S brautar hefði engan vanda leyst, aðeins framlengt þetta hægfara dauðastríð. Gera ætti kennslu-og almannaflug útlægt af vellinum með atbeina innanríkisráðherra. Fluggarðar væru þar með dauðadæmdir fyrst allra mannvirkja þar sem þeir stæðu á landareign Reykjavíkurborgar. Flugvöllurinn hefði verið staðsettur af löglegri Borgarstjórn í Reykjavík á útmánuðum 1939 og Bretar hefði aðeins lagt völlinn samkvæmt því löglega skipulagi sem nú ætti að ómerkja.
Einn fundarmanna benti á að þversögn væri fólgin í talinu um verðmæti byggingarlands á vellinum og umhverfi hans þegar deiliskipulögin sóuðu landinu undir gríðarlega fláka af bílastæðum í stað þess að setja þau undir byggðina eins og á háskólasvæðunum.
Íbúðir á flugvellinum myndu verða mjög dýrar væru byggðir bílakjallarar undir öll hús og fermetrinn myndi fara yfir 700.000 kr., eins og hann væri nú boðinn til kaups á núverandi þéttingarsvæðunum. Þessar íbúðir yrðu ekki keyptar af barnafólki. Allir frambjóðendur töluðu um að ungt barnafólk hefði líka flúið borgina á undanförnum árum til nágrannabæjanna. Þeir sögðu þetta ekki ætti að vera stefna Borgaryfirvalda í skipulagsmálum.
Fundarmenn óskuðu fræknum frambjóðendum allra heilla í baráttunni og hvöttu þá til að taka höndum saman við aðra frambjóðendur sem vildu Reykjavíkurflugvelli vel.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:34 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Lauga, Tobba, Harðlynda Hanna eða Ólafur Magnússon læknir. Hver er munurinn?
Hann er Júlíus Vífill, Halldór Halldórsson, Kjartan Magnússon, Marta Guðjónsdóttir, Lára Óskarsdóttir, Björn Þór Bragason.
Lifi náttúruperlan Reykjavíkurgflugvöllur. Þar ríkir kyrrðin og fegurðin, þögnin og heiðríkjan. Fegursti staðurinn í landnámi Ingólfs meða Gálgahraunið í baksýn.
Halldór Jónsson, 9.11.2013 kl. 23:25
Vil bara minna á að Ólafur F. Magnússon var kosinn í borgarstjórn 2002 og 2006 vegna baráttu sinnar fyrir því að flugvöllurinn væri kyrr og hefur alla tíð verið einlægur flugvallarsinni.
Það er munurinn á honum og mörgum öðrum.
Ómar Ragnarsson, 10.11.2013 kl. 02:28
Flugstöðin á Reykjavíkurflugvelli er þjóðinni til háborinnar skammar.
Sinnuleysi borgarfulltrúa hefur verið sem lamandi hönd yfir framförum við flugvöllinn.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 10.11.2013 kl. 11:59
Auðvita eiga skipulagsmál flugvalla að vera á valdi ríkisins, rétt eins og þjóðvegirnir.
Það er ekkert heilagt í því eins og ljóskan heldur fram.
Hrólfur Þ Hraundal, 10.11.2013 kl. 12:49
Skipulagsvald einstakra sveitarfélaga, eins nauðsynlegt og sjálfsákvörðunarréttur þeirra er, er kominn út í ógöngur.
Í stjórnlagaráði gafst ekki tími til að fara ofan í þau mál, en því lengur sem það dregst, því verra.
Ómar Ragnarsson, 10.11.2013 kl. 16:10
Takk Halldór. Augljóst er að ef Sjálfstæðisfólk velur Þorbjörgu Helgu eða Hildi Sverrisdóttur til oddvitasætis, þá fær vinstri vængurinn styrk frá þeim hægri í næstu kosnngum til þess að fljúga með völlinn burt. Líka staðfestingu á öðrum skipulagsslysum.
Ívar Pálsson, 10.11.2013 kl. 18:48
Það ríkir algert framkvæmdabann í Reykjavíkurflugvelli vegna ráðleysisins sem ríkt hefur í framtíð vallarins lengi. Þessu verður að linna. Völlurinn gæti gefið landinu og borginni risatekjur væri hann markaðssettur í alvöru.Ekki veitti Hörpunni af að fá eitthvað meira.
Allir þurfa nú að leggjast á eitt að koma í veg fyrir frekari skipulagsslys í kring um Reykjavíkurflugvöll. Til þess varður fólk að vanda það hvaða fólk það kýs í prófkjörinu á laugardaginn.
Halldór Jónsson, 10.11.2013 kl. 19:51
Samningurinn ómögulegi bætir þessum mannfjölda inn í Skerjafjörðinn þegjandi og hljóðalaust:
Ísafjörður:2.624. Hnífsdalur:216. Flateyri:199. Suðureyri:264
Ívar Pálsson, 11.11.2013 kl. 00:43
Skarpur Ívar. Þetta fólk selur bílana sína með drifi á öllum og hjólar í vinnuna eftir Hofsvallagötunni og inn í Fall-Street með skákbrettastígunum að gærða á bréfum og kaupaukum.
Halldór Jónsson, 11.11.2013 kl. 07:05
Já Ómar, Ólafur Magnússon er langtum minna ruglaður en sumir borgarfulltrúar eða viljandi verða Sjálfstæðisflokksins
Halldór Jónsson, 11.11.2013 kl. 07:07
Já og svo er komin ný stjórnarskrárnefnd væntalega til að bæta í leiðum til að afsala fullveldinu til Broksels og gelda forsetann eller hur?
Halldór Jónsson, 11.11.2013 kl. 07:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.