Leita í fréttum mbl.is

Af hverju fer Frumherji

ekki í gjaldþrot úr því að hann er kominn á hausinn?

Það kemur bara  tilkynning frá einum hrægammabankanum í hádegisfréttum á RÚV að þeir séu búnir að taka yfir allt hlutféið í félaginu á móti einhverjum gæjum sem leggi fram nýtt hlutafé upp á 20 %. Meira en líklega finnst manni að það sé fengið að láni hjá hrægamminum sjálfum í gamla stílnum frá Kaupþingi í tíð Ólafs í Samskip, Al Thani,Sigurðar Einarssonar, Hreiðars Más og Wernersbræðra.

Hvaða nauðsyn ber til að halda þessu einokunarfyrirtæki Finns Ingólfssonar á floti? Þessu félagi sem sölsaði undir sig orkusölumælamarkaðinn  á öllu Íslandi og ruddi okkur hinum sem vorum að reyna að selja orkusölumæla útaf markaðnum á "einu augabragði " eins einn landsfaðirinn tók til orða með fallegri  handsveiflu. 

þetta var feitur biti og maður hélt að Finnur væri nú fullsaddur. Frumherji hefur líka verið mikilvirkur á bílaskoðunarmarkaði og aðrir hafa lítt komist að vegna fyrirferðar Frumherja. Ekki það að þessar skoðunarstöðvar Frumherja hafi verið eitthvað lélegar. Þvert á móti hefur maður skipt við þær með ánægju því þær voru virkilega flottar. Það hefur ekki dugað til án þess að nokkur skýring sé gefin.Nú er skattgreipðendum gert að borga afsláttinn eins og fyrrum hjá Baugi og í Bónus.

En það er ekki sama og að aðrir geti ekki gert þetta líka og skoðað bíla, fengju markaðsöflin að ráða. Eignir eru seldar úr þrotabúum þegar venjulegt fólk á í hlut. En það er greinilega ekki í þessu tilfelli. Hvað með Aðalskoðun? Hvað með Múrbúðina? Hvað með aðrar bókabúðir en Pennann og Eymundsson?

Lögin segja svo:

".......„ ........   22. gr. Tímabundin starfsemi og yfirtaka eigna.

Viðskiptabönkum, sparisjóðum og lánafyrirtækjum er því aðeins heimilt að stunda aðra starfsemi en þá sem um getur í þessum kafla að það sé tímabundið og í þeim tilgangi að ljúka viðskiptum eða til að endurskipuleggja starfsemi viðskiptaaðila. Tilkynning, ásamt rökstuðningi, hér að lútandi skal send Fjármálaeftirlitinu. Hafi viðskiptabanki, sparisjóður eða lánafyrirtæki, eða dótturfélag þeirra, þurft að grípa til aðgerða skv. 1. málsl. og tekið yfir a.m.k. 40% eignarhlut í viðskiptaaðila sínum skulu ákvæði VII. og VIII. kafla laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, gilda um viðskiptaaðilann eftir því sem við á.

 

Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita undanþágu frá ákvæði 3. málsl. enda sé fjárhagslegri endurskipulagningu lokið innan sex mánaða frá því að viðskiptabanki, sparisjóður eða lánafyrirtæki, eða dótturfélag þeirra, hóf starfsemina. Fjármálaeftirlitið metur hvort fjárhagsleg skilyrði 1. málsl. séu uppfyllt og skal endurskipulagningu lokið áður en 12 mánuðir eru liðnir frá því að starfsemi skv. 1. málsl. hófst. Fjármálaeftirlitið getur framlengt tímafrest skv. 5. málsl. og skal í umsókn rökstutt hvaða atvik hindra sölu.

 

Viðskiptabönkum, sparisjóðum og lánafyrirtækjum er heimilt að yfirtaka eignir til að tryggja fullnustu kröfu. Eignirnar skulu seldar jafnskjótt og hagkvæmt er... "

Það er  nokkuð ljóst að ákvæðið  sem hljóðar svo:   "...skulu seldar jafnskjótt og hagkvæmt er..".  virðist gefa hrægamminum frítt spil til að gera það sem honum sýnist.  Hann tilkynnir að hann ætli að selja fyrirtækið seinna. Einhvern tímann seinna þegar honum passar. Skyldi hann vilja lána mér til að kaupa  80 % ? Eða þér ?

Verður ekki að leita til lífeyrissjóðafurstanna til að koma með skæs í þetta svona "þjóðnauðsynlega" fyrirtæki Frumherja. Sem er komið á hausinn og ætti að fara í gjaldþrot ef sömu reglur giltu fyrir Jóna og séra Jóna.  Hrægammurinn þarf ekki að standa reikningsskil á neinu. Hann bara tilkynnir þetta ganske pent. Flottur stjórnarformaður og hvítskúraður bankastjóri. Allt saman flott og fólkið flykkist í bankann. Sjóva, Landsbankinn, Íslandsbanki, Aríonbanki. Fyrirtæki í þjónustu fólksins.

Spilling, spilling spilling!  Hvert sem auga er litið.

Allt við það sama og ekkert breytt. Frumherji fer ekki á hausinn af því að... 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það má heldur ekki gleyma þeirri staðreynd að Frumherji hefur einokun á að kvarða vigtar og mæla í landinu. Þarna koma nánast allar vigtar sem notaðar eru í verslunum og fyrirtækjum landsins, bæði til að vigta vöru beint til kaupanda og einnig vigtar og mæla sem notast í framleiðsluferlum. Þetta verkefni eitt ætti að geta haldið góðu lífi í þokkalegu fyrirtæki, sér í lagi þegar um einokun er að ræða.

Einokun Frumherja á mælamarkaði, raf og vatnsmælum, er annar armur þessarar einokunnar. Ekki nóg með að fyrirtækið hafi einokun á þeim markaði, heldur virðist það sjálft geta gefið skipun um að þessum mælum skuli skipt út a.m.k. á fimm ára fresti. Og auðvitað flytur það sjálft inn nýju mælana. Greiðendur eru svo auðvitað neytendur.

Sú starfsemi sem Frumherji var stofnaður um er ágætlega rekinn, enda fékk fyrirtækið góðann tíma til að koma sér fyrir, áður en einokun á þeim vettvangi var aflétt.

Ekki veit ég hvernig endaði með rafmagnsúttektir í nýbyggingum. Eitt sinn þótti það verkefni hæfa Frumherja vel. 

Frumherji er í raun a.m.k. þrjú megin fyrirtæki og að sjálfsögðu átti bankinn að setja þau í þrot. Síðan hefði átt að splitta þeim upp og selja hverja einingu fyrir sig, með banni við að sami aðili gæti keypt meira en eina einingu.

Það getur varla verið eðlilegt að sama fyrirtæki sem flytur inn og setur upp mæla, skuli síðan hafa eftirlit með að þeir starfi rétt.

Hinu geta menn svo velt fyrir sér, hvernig Finn tókst að glutra þessum gullkálf úr höndum sér.

Kannski er hann jafn mikill fjármálasnillingur og aðrir útrásarvíkingar. Myndin af þeim er að skýrast. Hreiðar Már átti ekki nema 15 milljónir upp í mokkura milljarða skuld. Þó var hann ekki illa haldinn launalega séð fyrir hrun. Jón Ásgeir átti einungis fyrir einni diet kok, að eigin sögn. Og nú sést að Finnur gat ekki haldið þeim gullkálfi sem honum hafði verið skapað. Fleiri svipaðar staðreyndir um útrásarvíkingana eiga eftir að koma upp á yfirborðið.

Þessir menn virðast hafa minna fjármálavit en meðal Íslendingur!

Gunnar Heiðarsson, 12.1.2014 kl. 18:01

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Það er bara verið að færa til eignir til klíkunnar eins og verið hefur undanfarið og ekkert við það að athuga, er það?

Eyjólfur Jónsson, 12.1.2014 kl. 19:10

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnar Heiðarsson, þetta er verra en ég hélt. Ég vissi ekki hversu mun víðtækara einokunarnet Finnur Ingólfsson var búinn að setja upp fyrir sig en ég hélt.

Breytir því ekki í mínum huga að þetta fyrirtæki er óvinur almennings eins og hrægammabankarnir eru líka. Ég má hafa þessa skoðun og ég trúi því ekki að það sé hægt að lögsækja mig fyrir að hafa svona skoðun.

Halldór Jónsson, 12.1.2014 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3418305

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband