Leita í fréttum mbl.is

Ég vil ekki lifa í svona þjóðfélagi

öskrar hann frændi minn og  kommúnistinn Illugi Jökulssson, titlaður rithöfundur, á Austurvelli í dag. Úr sömu tjöldunum, af sömu pöllunum  og uppröðuninni og voru þarna í búsáhaldabyltingunni 2009.

Þá var sagt að Jón Ásgeir hefði kostað öll mótmælin. Hefur eitthvað breyst annað en að Illhugi er kominn í stað Harðar Torfa?

Illugi segir orðrétt: 

"Og ég vil ekki lifa í  þjóðfélagi þar sem hátíðleg loforð eru hermd upp á stjórnmálamenn og viðbrögðin eru fyrirlitning og hroki, lygar og ennþá meiri valdníðsla, og svo er slett framan í okkur: “So what?”

Ég vil ekki lifa í svona þjóðfélagi, og ég vona að ekkert okkar vilji lifa í svona þjóðfélagi, hvaða flokk sem við kunnum að styðja í kjörklefanum á fjögurra ára fresti, og sama hvaða skoðun við höfum á aðild að ESB. Ef ríkisstjórn Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar ætlar að skapa svona þjóðfélag, þá þurfum við að láta ærlega í okkur heyra – við viljum ekki slíkt þjóðfélag, við viljum það ekki, nei, nei og aftur nei. "

Mér er í rauninni ekki sama þó Illugi Jökulsson neyðist til að flytja til fyrirheitnu landanna þar sem Evran er Guðinn. Ég vil ekki hælisleitendur frá Afríku eða flóttamenn frá Kólumbíu í staðinn fyrir hann Illuga því hann Illugi er frændi minn. Þó hann skrifi ekki neitt fyrir mig sem mig vantar að lesa þá skrifar hann þó á íslensku og les fornsögurnar. Hann Illugi er Íslendingur þótt svo óeirinn sé. Mér finnst hann því gera úlfalda úr mýflugu með tilliti til niðurstöðu Reykjavíkurbréfsins. Þeir eru varla svona vondir sem hann segir þá vera, þeir Simmi og Baddi.

Hver skyldi afstaða Illuga til þess sem lesa má í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í dag? Hann og Guðfaðirinn studdu ríkisstjórnina sem hér ríkti 2009-2013. Sveik sú stjórn ekki neitt að mati Illuga? Hver var afstaða Illuga til Icesave I, II, og III? Hver er afstaða Illuga til sýknudóms  ESB-dómstólsins í þeim málum? Hver var afstaða Illuga til samstarfsins við Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins? Hver var afstaða Illuga til fríverslunarsamningsins við Kína eða Huangs Nubo til Grímsstaða á Fjöllum?  Hver er afstaða Illuga Jökulssonar til fornrita íslensku þjóðarinnar? Er honum svo sama hvað verður um rit Sturlu Þórðarsonar að hann vill ekki lengur búa á Íslandi þeirra Simma og Badda eða Hádegismóans?  Eða var hann bara að apa Martein Lúther King til að skemmta Samfylkingunni sem finnst núna allt í einu  svona gaman að þjóðaratkvæðagreiðslum?

Í hvernig þjóðfélagi vill hann Illugi eiginlega búa?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristmann Magnússon

Halldór minn

Nú þartu að lesa greinina hans Illuga aftur og lestu hana nú hægt og rólega eins og þú lærðir í Grænuborg í gamla daga

bestu kveðjur

Mannsi

Kristmann Magnússon, 2.3.2014 kl. 09:35

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það voru engin tjöld eða pallar á Austurvelli. Heldur var þarna rauður vörubíll annsi fallegur með opnar 2 hliðar og þar upp á voru ræður haldnar og músik flutt!

Og svona bara til að nefna það er hugsanlega fjármögnun örugglega komin frá Já Ísland og örugglega ekkert mál fyrir þá að fá styrki því óvart eru flest heildarsamtök nú sammála þeim sem mótmæla!  Finnst ótrúlegt að Jón Ásgeir hafi fjármagnað Hörð Torfason og þá sem mótmæltuní Búsáhaldamómælum þar sem að eitt af því sem var rætt þar var að það þyrfti að taka m.a. hann og fleiri til rannsóknar. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.3.2014 kl. 14:11

3 Smámynd: Gunnlaugur I.

Hver var afstaða Illuga frænda þíns þegar VG sem stjórnarflokkur með Samfylkingunni eftir kosningar 2009 gekk þvert gegn loforðum sínum og einnig skýrri og markaðri stefnu um að ganga ekki í ESB og sækja ekki um ESB aðild.

Afhverju mætti Illugi frændi þinn ekki þá á Austurvöll og öskraði "að hann vildi ekki búa í svona landi"

Ég held að það sé af því að Illugi frændi þinn vill bara búa í ESB landi og þá skiptir hann engu máli hvað aðrir vilja.

Gunnlaugur I., 2.3.2014 kl. 17:00

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ef Illhugi vill ekki lifa í því þjóðfélagi sem hann er í núna hlýtur hann að geta farið úr því.Til þess hefur hann ýmsar leiðir, meðal annars án þess að flytja úr landi.

Sigurgeir Jónsson, 2.3.2014 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 3418326

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband