Leita í fréttum mbl.is

Svartstakkur og frekjupúngur

er ég og þau kannski 95 % sem samþykktu að standa fyrir utan ESB á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins samkvæmt úrskurði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem eitt sinn var meira að segja varaformaður flokksins.

Á þeim sama Landsfundi reyndu fimmtuherdeildarmenn JÁ-liðsins að planta sér inn í alla umræðuhópa og höfðu áður reynt að gegnsýra ályktanir fundarins með áróðri sínum. Þetta mistókst algerlega  Seinni Landsfundur varð afdráttarlaus í því að hætta viðræðunum. Því tók minnihlutinn afar illa með Þorgerði og fleirum innanborðs.

Það væri ekki nokkur vandi fyrir mig að tvinna saman einhver lýsingarorð á Þorgerði Katrínu sem ég kann frá bísadögunum úr Norðurmýrinni. En í alvöru, verðum við ekki að fara að sækja okkur fyrirmyndir til siðaðra þjóða hvað orðfæri í pólitík varðar. Ég held að þeir noti ekki sum skrautblómin sem hjá okkur hafa heyrst nýlega á þingi og utan þess in the House of Commons á Englandi.

En getur einhver séð fyrir sér í alvöru að þeir Sigmundur Davíð og Bjarni færu fyrir nýrri aðildarviðræðunefnd tl Brussel. Jafnvel þó þeir hefðu þjóðaratkvæði á bak við sig um að klára aðildarviðræðurnar? Er ekki  hætt við að það myndi reynast bæði þeim og Stefáni Fúle erfitt viðfangs? Hvernig ættu þeir eiginlega að bera upp erindin um undanþágur þegar þeir yrðu að byrja á að lýsa því að þeir ætli alls ekki þangað inn? Vilji sjæalfir enga samninga heldur bara fara heim sem fyrst?

Eru Íslendingar og Indjánar á Austurvelli almennt svo vitlausir að þeir upplifi þetta sem pólitískan möguleika? Tilhugsunin um framhald og klárun aðildarviðræðna fái þá til fljúga með höndunum og æða með fótunum að hætti Jóns Vídalíns? Finnst þeim svona gaman að kosningadögum?

Já, ég er sjálfsagt svartstakkur og frekjupúngur í augum Þorgerðar Katrínar. Kannski er ég það bara í raun og veru? En varla bara í afstöðunni til ESB. Þessvegna hugnast mér að láta kjósa um það hvort við viljum í ESB. Eða biðja um hlé á viðræðum vegna þess að við þurfum að ræða betur saman sjálfir að hætti VG. Við munum að sjálfsögðu koma til baka þegar þjóðin hefur fengið að tjá einhug sinn í málinu. Búin að gefa svartstökkunum frí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta ekki sama biturðin og hjá Þorsteini Pálssyni? Reyna að skemma fyrir fjöldanum sem hafnaði þeim.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 4.3.2014 kl. 07:26

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessar aðildarviðræður hafa- í höndum þessarar ríkisstjórnar - orðið að skólabókardæmi um einfalt mál sem heimskingjum tókst að gera flókið.

Ríkisstjórnin tók við málinu í slíkri óskastöðu úr höndum fyrri stjórnar að því mátti líkja við að fá afgreidda pöntun á vandfengnum hlut með hraðsendingu og án kröfu. 

Hver setur fram samningsmarkmið í svona umræðum, eru það hestamannafélögin?

Nei, auðvitað er það ríkisstjórn eða/og Alþingi.

Ríkisstjórninni var í lófa lagið að skipa nýja samninganefnd og gefa henni skýr samningsmarkmið í sjávarútvegs-og landbúnaðarmálum.

Gefa jafnframt skýrt til kynna að ef ekki næðust samningar í þessum málum væri frekari viðræðum sjálfhætt. 

Fremur litlar (engar) eru líkur á að að á þau markmið hefði verið hlustað af hálfu móverksins úti í Brusselínu.

Þá var næst að skála fyrir notalegum samræðum, taka saman skjölin, óska eftir góðum og vinsamlegum samskiptum hér eftir sem hingað til og kveðja með handabandi. 

Árni Gunnarsson, 4.3.2014 kl. 12:48

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það verða engar sérkröfur samþykktar. Við afhendum ESB bara aðgang að auðlindum okkar skv. stefnu og ósk Samfylkingarinnar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.3.2014 kl. 13:06

4 identicon

Árni, Íslenskir stjórnmálamenn hafa ekki svona góða strategíu í sínum fórum.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 4.3.2014 kl. 15:28

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Samninganefndin á að vinna eftir skipunum ríkisstjórnar Íslands ef ég hef ekki misskilið stjórnarskrársnepilinn.

Og ég sé engin rök sem styðja þessa ályktun þína, Heimir. Samningaviðræður hefjast með samkomulagi tveggja, eða fleiri aðila sem leita eftir samningum. Komi í ljós að kröfur annars aðilans þykja of stífar er samningaþófi slitið.

Þetta er afar einfalt ferli. 

Ég sé engin rök til þess að við þurfum að biðja ESB um sérlausnir í sjávarútvegsmálum. Erum við í einhverjum vandræðum með að fiska það sem LÍÚ telur að passi til að halda niðri aflaheimildum en leiguverði í hæstu hæðum?

Ekk get ég séð það. 

Árni Gunnarsson, 4.3.2014 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418432

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband