Leita í fréttum mbl.is

Eigum við ekki að salta þetta

ESB aðildarviðræðumál fram yfir sveitarstjórnarkosningar? Var þessi Landsfundarályktun nokkuð tímasett? Þarf ekki stjórnviskan að velja tímann betur?

Er það ekki bara vont fyrir íhaldið sem er á blússandi siglingu allstaðar nema kannski i Reykjavík að leyfa Samfylkingunni að vera að þeyta alla þessa lúðra? Eigum við ekki að salta þetta? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það er að sjálfsögðu allt í lagi að láta þetta ESB lið hlaupa einhverja hringi.Það verður auðveldara að tugta það til á réttu augnabliki.Rúvvið hlýtur að þreytast á því fyrr eða síðar að hafa Þorstein Pálsson á skjánum.Stjórnarandstaðan er í miklu uppnámi.Það er gott.Og það er engin ástæða fyrir stjórnina að smitast af æðinu.Mér sínist að stjórnin og stjórnarflokkarnir eigi að hafa þetta í höndum sér ef þeir halda ró sinni.

Sigurgeir Jónsson, 6.3.2014 kl. 20:26

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það hefur sýnt sig að allur undansláttur við þetta fólk sem er á mála með pakkakíkjum, skapar bara meiri vandræði. 

Ef Reykvíkingar vilja vera kjánar þá er ekkert við því að gera annað en að fara að huga að aðkomu landsbyggðar manna að stjórnum höfuðborgarinnar. 

Reykjavík er ekki bara eign Reykvíkinga heldur og okkar Íslendinga allar á meðan hún er Höfuðborg Íslands.   

Hrólfur Þ Hraundal, 7.3.2014 kl. 09:38

3 Smámynd: Eðvarð Lárus Árnason

Að kigna í hnjánum fyrir þessu háværa liði gengur ekki, er ólíkt Halldóri. Á að afhenda Þorsteini Pálssyni, RÚV. 365 miðla, Árna Páli og samfylkingar/sjálfstæðis folki sviðið.. Nei Halldór lesendur vilja ekki trúa að þú viljir gera þetta fólk að leiðtogum lífs þíns. Við eftirgjöf yrði hrun fylgis hjá stjórnarflokkunum Bkv. Eðvarð.

Eðvarð Lárus Árnason, 7.3.2014 kl. 11:17

4 Smámynd: Kristmann Magnússon

Já getið þið ekki bara saltað þessa Landsfundarályktun eins og þið eruð búin að gera svo tugum skiptir um ályktun Landsfunda um breytingu á tollum og vörugjöldum -aldrei staðið við orð af þeim ályktunum ! !

Kristmann Magnússon, 7.3.2014 kl. 12:36

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Mannsi, saltvondur útí flokkinn eins og venjulega. Fáum okkur bara Kandís og hættum að pexa við ykkur þessa landsölumenn.

Eðvarð, allt orkar tvímælis þá gert er. það var ekki besti tíminn fyrir okkur í sveitastjórnarpólitíkk að far að djöflast í þessu. Líklega hrinti Framsókn okkur útí þetta núna með það í huga þar sem enginn vill sjá þá heima í héröðunum.

Sigurgeir og Hrólfur, það verðu líklega erfitt að þagga niður í þeim sem hafa ekkert annað að tala um en þetta eina mál.Hvað kann hann Árni Páll annað?

Halldór Jónsson, 7.3.2014 kl. 12:43

6 Smámynd: Kristmann Magnússon

Já þér finnst allt í lagi með að landsfundir sl 10-15 skipti hafi samþykkt ályktanir á hverjum landsfundi eftir annan að nú þurfi að drífa sig í að breyta tolla og vörugjaldsmálum, en síðan aldrei gert nokkuð í því. En nú var knúin í gegn ályktun um EB og þá ber flokknum auðvitað að fara eftir henni. Þetta kalla ég hræsni á hæsta stigi.

Málið er bara einfalt í mínum huga - Þið þorið ekki að bera þetta undir þjóðina.

Og éttu svo bara þinn kandís sjálfur ! ! ! !

Kristmann Magnússon, 7.3.2014 kl. 14:59

7 Smámynd: Þorkell Guðnason

Mér virðast óheftar þriðju gráðu yfirheyrslur ómerkilegra fjölmiðlunga hafa komið þessum fræjum efasemda til að spíra. Mér er minnisstæð þessi klausa úr dönskubók forðum:

"Et fjols kan stille spørgsmål som ti vise mænd ikke kan svare på"

Gísli og Seljan eru hin ómerkilegu fjols þessa leiksviðs í mínum huga.

Þorkell Guðnason, 8.3.2014 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband