Leita í fréttum mbl.is

Hið rétta andlit ESB

birtist í því að kaupa Nojarana og Föroyingana til að svíkjast að Íslendingum á þann hátt að makríllinn verði ofveiddur þannig að hann sjái ekki þörf á að ganga inn í íslenska lögsögu. Við sjáum ekki beituna sem þeir renndu upp í þessar þjóðir, En hún mun sjást síðar.

Okkar svar er aðeins eitt. Veiða, veiða, veiða og veiða makríl eins og við lifandi getum. Mig langar að nota enskt orðtæki sem byrjar á F... og lýsir minni afstöðu til þessa hyskis alls sem að þessu stóð.

Sýnum þeim að við látum ekki bukka okkur. Það var fróðlegt að sjá hið rétta andlit ESB, sem beitir undirferli, svikum og lygi þegar því hentar. það þarf menn með greindarstig Össurar og Árna Páls til að útskýra þetta andlir ESB  fyrir þjóðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Heyr heyr - F... 'em ! Já Damanaki sem enginn kjósandi í nokkru aðildarríki kaus til hennar starfs vélaði þetta með öðrum kontóristum í þessu ólýðræðislega sambandi.

Annars er Björn Bjarnason með athyglisverða hugleiðingu um þetta :

„Fimmtudagur 13. 03. 14

Þegar allt er í óvissu um samskipti ESB og Rússlands vegna ögrana Pútíns í garð Úkraínumanna er ekki að undra að Brusselmenn forðist illdeilur við Norðmenn og setji ekki fyrir sig þótt makrílstofninum verði útrýmt – hann er þeim minna virði en aðgangur að olíu og gasi.

Danskir sjómenn knúðu á um samning milli Noregs og ESB vegna veiðiréttinda innan norskrar lögsögu og ákvörðunar um kvóta í Norðursjó. Færeyingum hafði verið ógnað af ESB og áttu mikið undir stuðningi Dana innan sambandsins. Þeim var því ljúft að taka þátt í þriggja strandríkja samkomulaginu til að losna undan refsivendi Mariu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB, og leggja sitt af mörkum til að drepa svo mikið af makríl að hann hætti að ganga í íslenska svo að ekki sé talað um grænlenska lögsögu.

Þetta er hin stórpólitíska umgjörð makrílsamningsins sem Færeyingar, Norðmenn og ESB gerðu miðvikudaginn 12. mars þegar þeir skildu Íslendinga útundan. Þríhliða samningur af þessu tagi er ekkert nýnæmi. Hið furðulegasta við hann nú er tilraun samningsaðilanna til að hindra að Íslendingar og Grænlendingar semji um hagkvæmustu nýtingu á makríl á svæðinu sem er fjærst yfirráðasvæði strandríkjanna þriggja.“

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.3.2014 kl. 02:16

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þegar að Norsk íslenski síldarstofninn var að rétta úr kútnum eftir hrunið sem Norðmenn átti stærsta sök á, þá þvöðruðu þeir hver uppí annan um að nú yrði að veiða svo mikið að náttúruleg hegðun þessa stofns yrði stöðvuð svo að hann næði aldrei til Íslands, þeim mistókst það.

Það sama er uppá teningnum núna og þeir vilja miklu fremur útrýma tegundum en að þær nái til Íslands.  Tegundin Norskir stjórnsýslumenn varð nefnilega eftir í Noregi, með sinn yfirgang þegar forfeður okkar, mestmegnis sveita strákar, gáfust upp á þeim og fóru margir konulausir áleiðis til Íslands.

Það er margt líkt með Norskum stjórnsýslumönnum og innri kjarna Evrópusambandsins. Yfirgangur er þeirra aðals merki og í raun ekkert furðulegt við framgang þeirra. Þetta liði þarf að gína yfir öllu og er ekkert heilagt nema eigin rass.  Norsku sveitastrákarnir máttu ekki eiga konu nema að eiga land sem yfirgangs hyskið hafði af þeim tekið í nafni Krists.

 

Hrólfur Þ Hraundal, 14.3.2014 kl. 09:10

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kæri Hrólfur.

Ertu búinn að gleyma viðtalinu við Kára frekjustamp í Íslenskri erfðagreiningu fyrir fáeinum árum ? Hann upplýsti það að það væri búið að greina erfðamengi þjóðarinnar og niðurstaðan alveg skír - við værum alls ekkert skyld þessum margumtöluðu „frændum okkar á norðurlöndum“ ! Það væri eitthvert sáralítið prósent þaðan að meðaltali í okkur. Þó væri Geir H,. Haarde óumdeilanlega frændi þeirra og okkar sem og Siv Friðleifsdóttir og nokkrir slíkir en ekki nærri öll þjóðin. Við værum skyld engilsöxum, frönkum, írum og ýmsum mið- Evrópuþjóðum eitthvað. Man ekki nákvæmlega um þá prósentu þó en væri gaman að fletta þessu upp.

Mikið var mér létt þegar hann upplýsti um þetta - það verð ég að viðurkenna. Þetta staðfesti álit ýmissa fræðimanna um áratugi sem meðal annars Jón Baldvin lýsti í einhverjum umræðuþætti í sjónvarpi fyrir kannski áratug síðan þar sem hann fór yfir einmitt álit þeirra semþað höfsu sett fram og röksemdir sem lágu að baki. Kári beinlínis staðfesti það.

Ein stóra skýringi er einmitt að fornsögurnar eru skrifaðar af ribböldunum/sigurvegurunum/landbrotsmönnunum um sjálfa sig og sín afrek við að hrökklast undan Haraldi hinum hárfagra. Þeir komu hér og tóku sér land með sverði eins og hver annar múslimi gerir enn þann dag í dag - og Pútin auðvitað. Þeir létu þó þess getið að fáeinir kristnir hafi verið hér en bara flust búferlum eins og sagt er um álfa í steinum þegar umferðargnýrinn verður of mikill eftir lagningu nýrra vega eins og frægt er !

Svo benda menn á kristnitökuna árið 1000 - hún hafi verið einkennilega einföld eftir feldyfirlagninguna frægu hjá Ljósvetningagoðanum. Þeir sem hafa bent á það sama og Kári hefur sannað með genarannsóknum að hér var þjóð sem þeir að einhverju leyti gerðu að hjúum eða þrælum og stálu af þeim bestu jörðunum og aðrir hafa fengið að halda áfram business as usual þar sem þeirra eigur voru kannski ekki eins girnilegar. Þannig urðu þessir ribbaldar „höfðingjar“ eða herrar yfir landinu sem hver önnur innrásarþjóð eins og tyrkir á tímabili víða á miðöldum. En þeir voru auðvitað bara verulega lítil prósenta þjóðarinnar í heild. En klæðskeraskrifuðu söguna að sjálfum sér og mikilfengleik sínum.

En eins og þú kæri Hrólfur nefnir þá er yfirgangur aðal þeirra og það par excellence verður að segjast. Það er sennilega frekjugenið sem blundar í svo mörgum landanum þó smátt sé í prósentu í þjóðinni sem fyrr segir.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.3.2014 kl. 14:07

4 Smámynd: Kristmann Magnússon

Já - svo ég noti nú þín orð, þáefur líka verið fróðlegt að sjá hið rétta andlit Landsdundarfulltrúa XD, sem einmitt beita undirferli svikum og lygum þegar það hentar þeim, og það sjá allir og jafnvel þeir sem hafa mörgum sinnum lægri greindarstig en Össur, Árni Páll og Halldór Jónsson. Þessir landsfundarfulltrúar hafa ekki verið að ýta á eftir landsfundarályktunum sem samþykktar hafa verið svo tugum skiptir, án þess að nokkuð hafi verið hugsað um þær eftir að landsfundum hefur lokið. Það er því lítið að marka ályktanir sem þessir aðilar hafa verið að samþykkja síðustu áratugina

Kristmann Magnússon, 14.3.2014 kl. 16:27

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kristmann !

Ert þú landsfundarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á einhverjum tíma ? Ef ekki, hvar ertu þá á landsfundum eða í flokki ?

Þetta er mjög athyglisvert að heyra þig tala svona, því þetta er ekki það sem ég þekki vel um landsfundarsamþykktir Sjálfstæðísflokksins. Eftir þeim er farið og stór hópur landsfundarfulltrúa er duglegur að minna sveitastjórnarmenn sína sem þingmenn á að halda sig við þær. Það kann að vera að einhver af landsfundarfulltrúum sé undirförull en það fer lítið fyrir því - spurning hvort þeir tilheyri ekki 4% Sjálfstæðisflokksins og aðhyllast fullveldisafsal Íslands til ESB ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.3.2014 kl. 16:34

6 Smámynd: Kristmann Magnússon

Tala ekki við þá sem þora ekki að koma fram undir eigin nafni - - en skal tala við þig hvenær sem er ef þú þorir að gera það og þá skal ég útskýra fyrir þér hvaða ályktanir Landsfunda XD hafa aldrei verið meira en ályktanir.

Hver var að tala um fullveldisafsal - komið ykkur niður á jörðina og kynnið ykkur málin

Kristmann Magnússon, 14.3.2014 kl. 19:16

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kristmann.

Þetta segjka menn sem eru rökþrota. Það skiptir hver segir en ekki hvað. Aristoteles, Descantes og fleir andans menn hefðu nú ekki vílað fyrir sér að taka rökræðuna !

Sumir bara lenda í öngstræti og hafa ekki svörin og þá gerist þetta.

Þitt mál hafir þú ekkert að segja, því ekki máttu gleyma að á þessu bloggi ertu að tala til þúsunda því Halldór verkfræðingur hefur verið í sæti 4-10 í mestu vinsældum bloggara sem mest eru lesnir hér.

Þú skalt ekki láta nafnleysi mitt (sem er nú þekkt hjá stjórnendum bloggsins ásamt kennitölu) á ekki að koma í veg fyrir að þú komir máli þínu á framfæri við mig og þúsundir lesenda síðu Halldórs og hver vreit nema þú rasskellir mig með svari þínu og ég hvett þig til þess hafir þú eitthvað markvert fram að færa. Farir þú m,eð rétt mál en ekki ég þá skal ég lúta fyrir rökum þinum, en vita skaltu að ég þekki afar vel landsfundarsamþykktir Sjálfstæðisflokksins til margra áratuga og einnig þá sem átt hafa að framfylgja þeim og er einn þeirra sem hef haldið þeim ávallt að þeim sem eiga að vinna eftir því að framfylgja þeim á vettvangi Alþingis og sveitastjórna.

En ef nafnleysið kemur í veg fyrir að þú færir fram rök gegn máli mínu þá er það miður því hér er tækifærið að sýna fram á að þú hafir rétt fyrir þér eða ekki, því flettingar undanfarna daga hjá Halldóri er um 3.5000 manns sem sæju röksemdir þínar - því það eru þær sem skipta máli ekki satt - ekki sendiboðinn ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 15.3.2014 kl. 03:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband