Leita í fréttum mbl.is

Stytting náms til stúdentsprófs

er eitt af því sem ég skil ekki í málflutningi flokksins míns  í flutningi ráðherrans Illuga Gunnarssonar.

Mér finnst eins og það sé verið að segja mér að ég hafi verið að slugsa í Menntaskólanum í Reykjavík á árunum 1954 til 1957. Allir þessir góðu kennarar mínir Gylfi Þ.Gíslason, Björn Bjarnason, Guðmundur Arnlaugsson, Pálmi Hannesson, Sigurður Þórarinsson, Ólafur Hansson, Einar Magnússon, Gunnar Norland, Guðni Guðmundsson, Magnús Finnbogason, Bodil Sahn, Jón Guðmundsson, Ólafur Ólafsson, Skúli Þórðarson, Magnús Magnússon og Halldór Halldórsson hafi verið að slugsa við að kenna mér heimskingjanum það sem ég átti að geta lært á miklu skemmri tíma?

þegar ég kom til Þýskalands úr þessum skóla þá fann ég að þýskir og norskir, danskir, gahnnískir og tyrkneskir  jafnaldrar og samstúdentar sem voru með mér að hefja nám í verkfræði voru jafnvel aftar mér tossanum í almennum fræðum. En minn andlegi þroski 19 ára var í það tæpasta finnst mér núna þegar ég lít til baka. Ég hefði ekki viljað vera ári yngri en ég var þá. Ég var alveg nógu vitlaus á þessum tíma.

 Af hverju á ég að trúa Illuga Gunnarssyni núna þegar hann segir að ég hafi bara verið að slugsa? Hann sagði mér líka að semja um Icesave sem ég gerði ekki.

Mér finnst allt þetta allt della um að skólinn sé of langur. Það er meira en námsefnið  sem skiptir máli. Almenn tjáskipti, stelpur og brennivín og allt það. Allt þetta þarf að lærast áður en manni er hrundið út í lífið af hótel Mömmu.

Mér finnst allt þetta tal um styttingu skólans til stúrdentsprófs vera skammsýni og blekking. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Í öllum þessum umræðum gleymist margt sem er sérstakt hér á landi. Íslensk ungmenni gangi ekki að því að foreldrar borga námið. í

Í framhaldsskólum er margt sem nemendur þurfa að borga. Skólagjöld (þetta er að vísu kallað "innritunargjöld"), námsbækur og ekki að tala um efnisgjöld í sambandi við iðngreina. Þeir nemendur sem hafa ekki fjársterk heimili bak við sig þurfa að fjármagna námið sitt sjálfir og þar er gjarnan unnið allt sumarfríið.

Stytting náms þýðir að væntanlega á að stytta sumarfríið. Nemendur sem hafa ekki ríka foreldra í bakhönd verða illa úti.

Jafnrétti til náms?

Úrsúla Jünemann, 12.3.2014 kl. 21:07

2 Smámynd: Örn Johnson

Fyrirgefðu mér, ágæti Halldór, að ég ráðist svona inn á síðu þína til að tala um allt annað málefni. Svo er að kollegi þinn, Friðrik Halldór Guðmundsson, hefur lokað á mig á sinni síðu. Ástæðan er sú að ég minnti þar á hversu frábær verkfræðingur hann væri, sá fyrsti sem sá það fyrir að Hvalfjarðargöngin myndu fyllast af vatni. Þessari vitleysu sinni vill hann auðvitað gleyma og svo stendur þessi maður hér á Moggasíðu í harðri andstöðu við okkur Sjálfstæðismenn og heldur enn áfram að rugla á svipuðum nótum, ekkert nema vitleysa. Hvað megum við Sjálfstæðismenn þola????????????

Örn Johnson, 13.3.2014 kl. 00:23

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Kollege Ursula

Þetta er þörf ábending og innlegg í málið. Stúdent hefur ekkert að gera við að fara erlendis 18 ára í háskóla og vera yngri en þýskir samstúdentar. Það er þroskinn sem skiptir máli. Lítandi til baka þá breyttust menn mikið úr 5 bekk í 6 bekk.

Halldór Jónsson, 13.3.2014 kl. 16:18

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Örn

Ég er ekki viss um að ég skilji málið, hef lítið samband við þennan mann og man ekki eftir þessum deilum um göngin.Hvar er hann að skrifa eitthvað á móti okkur?

Halldór Jónsson, 13.3.2014 kl. 16:19

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Árin 1954 til 1957 þá eru á Íslandi gerðar miklu meiri andlegar FORMÓTUNARKRÖFUR TIL framtíðar háskólaborgara EN TIL DÆMIS 1978 TIL 1982.  í RÍKJUM MEÐ SÍU KERFI,  ÞÁ ER MIÐAÐ MIÐ 10% GREINDUSTU : 6,0% RÍKISBORGAR UK flokkast Univeristatis. Í þýskalandi mun foreldrum barna með svipað greind ætlað ákveð að þeirra afkvæmi um 10 ára fari í hrylling sem er ekki bjóðandi meðalgreindum og Tossum [líka þessu með athygli brest].

Þjóðverjar gera miklar kröfur til þýskra tungu, í samhengi orðsifja og rökréttrar setningarfræði. Þetta skilar greindarþroska líka ef heili er Íslenskur.
 Vitur nærri getur , reyndur veit þó betur.  

Íslenska er ekki Alþjóðlega lögtæk tunga.  Vera löggiltur þýðandi yfir á Íslensku er þá Íslenskt mat. 
  Almenn greind er mikið minn hér [lægri að meðaltali] en fyrir 100 árum.

Greina  OG FLOKKA EFTIR EÐLI.

Ríki þarf að mennta sína læsu  og því hæfu þjóna til fara eftir regluverki. [Verðtyggð námslán er ávísun að stórum hluta upp á hækkun skatta til greina laun þessa hóps.] 

  Ísland  er með Ríkisþjóna sem segjast arðbærir.  Slíkir ættu þá vera í að baka brauðið, létta  skattbyrðina.   

Júlíus Björnsson, 14.3.2014 kl. 00:51

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Svei mér þá Júlíus, þetta hefur hvarlað að mér oftlega.Forheimskun tölvuleikjanna og endalaus spilun af sápum sem fjalla um vitsmunalíf menntunarlausra heimskingja eða heilalausra óþjóða formyrkvuð í einhverskonar vúdútrú er að ná yfirhönd í mannheimum.

Hvenær heldurðu að sýrlensk hælisleitandafjölskylda sem verður að fá kennslu á arabisku í barnaskólanum fyrir börnin sín verði Íslendingar sem lesi Sturlungu? Eða langi til að þekkja Egil Skalla?

Halldór Jónsson, 14.3.2014 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband