Leita í fréttum mbl.is

Nóturnar á netið!

er góð tillaga frá 23.manni á lista Sjálfstæðisflokksins við Borgarstjórnarkosningarnar í vor. Eftir þessa hressilegu byrjun  munu margar upplýsingar um Borgarreksturinn koma fram fyrir kosningar.

Kristinn karl Brynjarsson skrifar svo:

"Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 stóð til í fyrstu að stórhækka gjaldskrár borgarinnar til þess að standa undir sífellt hækkandi rekstrarkostnaði borgarinnar. Eftir nokkurn þrýsting, m.a. frá aðilum vinnumarkaðsins voru þó þessar hækkanir dregnar til baka. Þó ekki með meira afgerandi hætti en að: »Ef forsendur bregðast hins vegar áskilur Reykjavíkurborg sér rétt til að taka gjaldskrár til endurskoðunar á síðari hluta árs 2014.«

Með öðrum orðum, ef sami meirihluti stjórnar enn borginni að loknum kosningum í vor, þá hækkar bara gjaldskráin eftir kosningar. Af fenginni reynslu má þá búast við enn meiri hækkunum þá en áætlað var. Enda ekki beinlínis hægt að halda því fram að kosningaloforðalisti Samfylkingar sé sérlega ódýr.

Að öðrum kosti, þ.e. ef annar meirihluti tekur við eftir kosningar, þá lendir það á þeim meirihluta að bregðast við þeirri stöðu sem uppi verður að loknum kosningum.

Það er talið að það kosti Reykjavíkurborg u.þ.b. 300 milljónir að falla frá þessum hækkunum. Án hagræðingar í rekstri borgarinnar verða þeir fjármunir sóttir í vasa borgarbúa með einum eða öðrum hætti.

Þrátt fyrir að horfur séu á því að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist á næstu misserum er ekki hægt að ætlast til þess að meðalfjölskylda í borginni taki á sig annað kjörtímabilið í röð rúmlega 400 þús. króna útgjaldaaukningu vegna gjaldskrár- og skattahækkana borgaryfirvalda. Slík þróun, ef ekki verri, er klárlega i kortunum, ef borginni verður stjórnað með þeim hætti og henni hefur verið stjórnað á því kjörtímabili, sem góðu heilli tekur senn enda.

Á kjörtímabilinu hefur kostnaður við skrifstofu borgarstjórnar þrefaldast, farið úr rúmlega 160 milljónum í rúmlega 500 milljónir. Fyrir þeirri hækkun er engin ástæða önnur en óábyrg fjármálastjórn og bruðl með skattfé almennings. Enda er sú hækkun 300 milljónir umfram verðlagsbreytingar á kjörtímabilinu.

Skrifstofa borgarstjórnar er bara eitt dæmi af mörgum þar sem bruðl og óráðsía vinstri meirihlutans hefur gersamlega farið úr böndunum. Það er því af nógu að taka til þess að vega upp á móti þessum 300 milljónum sem tapast og meira til.

Það er stefna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að með ábyrgri fjármálastjórn og hagræðingu í þágu grunnþjónustu í stað gæluverkefna eigi klárlega að nýta það svigrúm sem af slíku skapast til þess að lækka gjaldskrár og útsvar borgarinnar.

Ábyrg fjármálastjórn mun svo einnig í framhaldinu draga úr þörf borgarinnar til að fjármagna rekstur sinn með lántökum og skapa henni svigrúm til þess að greiða niður skuldir sínar fremur en að auka við þær.

Það er svo að sjálfsögðu stefna Sjálfstæðisflokksins, komist hann til valda í borginni, að setja »nóturnar á netið«, þ.e. að gera borgarbúum og reyndar öllum öðrum það kleift að fylgjast með því á auðveldan hátt í hvað fjármunum borgarinnar er varið. "

það er ánægjulegt að sjá að  frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru að hefja sókn fyrir borgarstjórnarkosnngarnar sem verða eftir mánuð. Væntanlega munu minni staðirnir fylgja á eftir og kynna málefni Sjálftæðisflokksins.

Þessi tillaga Kristins Karls um upplýsingagjöf er eitthvað sem að kjósendur um allt land eiga að láta sig varða. Það pukur sem viðgengiist hefur um ráðstöfun fjármuna hins opinbera má hverfa.

Allar upplýsingar um ferðalög, risnu og persónubundnar greiðslur eiga auðvitað að liggja fyrir svo að greiðendurnir geti séð þær. Þetta er auðvelt með nútimatækni ef vilji er fyrir hendi.

Alþingi á hér ekki að vera neinn eftirbátur. Við viljum vita hvað þessi eða hin ferðin til Langtburtistan kostar  skattgreiðendur. Hvaða upphæðum Steingrímur J. ráðstafaði í sínu kjörfæmi þegar hann gat.

Hvað kosta ferðalög Forsetans? Hvað kosta framkvæmdir á Hofsvallagötu og við Borgartún?

Hvað greiðir Kópavogskaupstaður fyrir hönnun einstakra verka til handvaldra verkfræðistofa?  

Nóturnar á netið! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorkell Guðnason

Við fyrsta lestur fyrirsagnarinnar, sveifst þú fyrir hugskotssjónum mínum, sitjandi við flygilinn, með nóturnar á tölvuskjá fyrir framan þig.

Hætt við að fátt kæmi áheyrilegt úr slíkum nótum en hrynjandi dómíneraði.

Þorkell Guðnason, 23.4.2014 kl. 12:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband