Leita í fréttum mbl.is

Veröldin er full af snillingum

á maídögum ef menn hafa tekiđ eftir ţví.

Í dagsins önn dettum viđ sífellt um einstök atriđi sem bara snillingar hafa gert. Mađur heyrir lag í útvarpinu og mađur spyr sig hver gerđi ţetta fallega lag? Og ţennan texta? Ótrúlega fallegt hvorutveggja. En ţađ má helst ekki minnast  a textahöfundinn án afleiđinga. Perlur sem ţjóđin á í pússi sínu um ókomna tíđ.

Mađur heyrir samrćđur fólks um litla hluti. Mađur sér vini fađmast, börn ađ ćrslast, gamlingja staulast eins og Louis Armstrong syngur um. Allt saman núna í  maímánuđi á laugardegi ţegar sól skín í heiđi. Sumariđ er ávallt framundan í maí međ fyrirheit um eitthvađ betra, eitthvađ stórkostlegt. Hvađ sem ţađ nú annars er. Stemningin verđur öđruvísi í júní og júlí.

Mađur heyrir kannski  fyrirlestur hjá manneskju sem mađur hefur aldrei heyrt né séđ fyrr. Og mađur tendrast upp af hrifningu. Mađur fćr nýja sýn á ákveđiđ málefni. Svo heyrir mađur ađra manneskju hrćra sömu pólitísku steypuna frá í vetur sem  mađur er orđinn dauđleiđur á og búinn ađ afgreiđa sem ranga niđurstöđu. Stundum er  mađur heldur engu nćr eftir ađ hlusta á samherja tala um daginn í dag og hvernig framtíđin muni verđa svo miklu betri ţegar búiđ verđur ađ  laga hlutina.  Ţú ert ef til vill efins vegna langrar reynslu af öđru, margra gamalla vonbrigđa og mistaka. Og vegna hćkkandi aldurs er ólíklegt ađ framtíđin verđi eitthvađ skárri en núiđ.

En ţađ er samt maímánuđur. Lítiđ barn kemur ţér á óvart međ sjónarhorn sem ţú hefur ekki hugsađ út í áđur. Ţú sérđ fugl á götunni sýna allt ađ mennska greind í ađ ţekkja umhverfi sitt. Ţú sérđ grösin gróa, tréin laufgast og öll veröldin virđist syngja á ţessum maídögum. Hvađ er ţađ sem í raun og sannleika skiptir máli? Pólitík? Kosningarnar framundan?  Réttlćtiđ sem fćstir ná ţessa heims en sífellt ţrá? Meiri peningar, leiđréttingar, meiri peningar." Penger og penger" söng Bör Börsson á Öldurstad ţegar hann gekk ţjóđveginn og mađur veltist um ađ hlćja undir lestri Helga Hjörvar. Allir vilja meira en ţeir hafa en réttlćta ţađ međ ţví ađ ţađ sé í rauninni bara leiđrétting og viđurkening á gömlu ranglćti.

Veröldin er full af snilld og snillingum. Ţú ert kannski snillingur bara af ţví ađ skynja snilldina í söng fuglanna og ţá ađsra snilld sem er á ferđ allstađar á ţessum fögru maídögum. Kannski er enginn snillingur bara venjuleg manneskja. En er ekki manneskjan sjálf bara snilld í sjálfu sér.

Louis Armstong lofsyngur veröldina eins og hún getur best orđiđ. Vissulega er hún margbreytileg og ekki allir sem eru ađ upplifa daginn í dag á sama hátt. En einhvern tímann finna eđa hafa fundiđ flestir maídag í hjartanu. Kannski ekki í ár, en kannski nćsta ár. Og fyrir suma er hann kannski  liđinn eđa bara kom aldrei?

En samt finnst mér ađ veröldin sé full af snillingum sem ég vildi frekar líkjast en ekki. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţađ er náttúrulega snilld hvernig landiđ vaknar af svefni vetursins, allt verđur grćnt á nokkrum dögum, fuglar syngja í heiđi, birtan ólýsanleg langt fram á nótt.

I see trees of green, red roses, too,

I see them bloom, for me and you

And I think to myself

What a wonderful world.

I see skies of blue, and clouds of white,

The bright blessed day, the dark sacred night

And I think to myself

What a wonderful world.

The colors of the rainbow, so pretty in the sky,

Are also on the faces of people going by.

I see friends shaking hands, sayin', "How do you do?"

They're really sayin', "I love you."

I hear babies cryin'. I watch them grow.

They'll learn much more than I'll ever know

And I think to myself

What a wonderful world

Yes, I think to myself

What a wonderful world

Rafn Haraldur Sigurđsson (IP-tala skráđ) 17.5.2014 kl. 21:53

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir ţetta Rafn Haraldur. ţađ er aldeilis ađ ţú ert ljófimur og gaman ađ fá ţennan fallega texta fram fyrir sig í heild. Mér finnst ţetta eitt ţađ besta sem frá Louie gamla kom og var ţó margt frábćrt.

Halldór Jónsson, 17.5.2014 kl. 22:04

3 Smámynd: Halldór Jónsson

ljóđfimur átti ţađ ađ vera

Halldór Jónsson, 17.5.2014 kl. 22:04

4 identicon

Veröldin var full af snillingum, í dag er hún full af kjánum.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráđ) 17.5.2014 kl. 23:06

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Kristján,

getur ţú upplýst mig um á hvađa skalla kjánar eru mćldir. Er Löggildingarstofan međ í ţví dćmi. Eđa er kjaánaskallinn afstćđur eins og brautarpallurin hjá Einstein sem hreyfđist öfugt viđ hreyfinguna eftir ţví har ţú varst staddur. Ég held ađ ţađ sé meira af snillingum nuna en var ţá vegna upplýsingarinnar í gegnum Google, mesta mannfrelsunarátak allra tíma. Allir hafa ađgang ađ hinni mestu speki og enginn kemst lengur upp međ lygi til lengdar. Snillin er stađreynananleg mótsett ţví sem var á dögum Hitlers. Ţađ er ekki hćgt lengur ađ blekkja alla alltaf.

Halldór Jónsson, 18.5.2014 kl. 01:02

6 Smámynd: Rafn Guđmundsson

hún er líka 'full' af dauđum ómissandi mönnum - svona er ţetta

Rafn Guđmundsson, 18.5.2014 kl. 01:42

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3418239

Annađ

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband