Leita í fréttum mbl.is

Jafnrétti trúfélaga?

er haldið fram daglega og vísað í stjórnarskrá um trúfrelsi og ámóta plögg og tilskipanir frá útlenskum kratastofnunum eins og Evrópusambandinu og fleiri samtökum.

Það gleymist alveg í umræðunni, að hvernig sem á það er litið, er í gildi samningur milli þjóðkirkjunnar, sem fer með framkvæmd okkar ríkistrúar, og íslenska ríkisins í hvaða mynd sem það er.  Ríkið er skyldugt að sjá prestum þjóðkirkjunnar fyrir lifibrauði og greiða hennar hag með ýmsu móti, greiða fyrir kirkjubyggingum og svo fram eftir götunum.

Af hverju?

Það hefur akkúrat ekkert með að gera hvort menn vilji vera í þjóðkirkjunni núna eða. ekki. Menn geta staðið fyrir utan hana eins og þeir vilja og borga þá til Háskólans held ég í staðinn. En Þjóðkkirkjan sér um jarðarfarir, skírnir, femingar og  brúðkaup. Yfirgnæfandi meirihluti notar kirkjuna og jafnvel trúlausir eru yfirleitt jarðaðir þaðan.

Þegar Sturlungaöld létti tóku við Staðamál sem Staða-Árni biskup fór fyrir. Þá heimti kkirkjan undir sig kirkjujarðir og hafði til þess lögmæltar kröfur. Á þann hátt runnu gríðarleg auðævi löglega til kirkjunnar sem stofnunar. Hún var líka Tryggingastofnun Ríkisins þeirra tíma og sá um fátækraframfærslu og fleira félagslegt með tíundartekjum. Dæmi voru um að einstaka bændum tókst að halda kirkjum í sinni eign eins og á Eiðum en þeir voru fáir.

SVo kom Lútherskan. Danski kóngurinn sá sér leik á borði, hjó hausinn af Jóni Arasyni og sonum hans  og stal öllum þeirra eigum og eignum kirkjunnar um leið.  Á móti var samkomulagið um stöðu kirkjunnar og Guðskristni gert sem hefur verið sæmilega virt síðan.

Nú reyna allskyns vinstrivitringar að breyta þessu í að eitt skuli yfir allar kirkjur og trúarhópa ganga. Moskur eigi að vera jafnréttháar og þjóðkirkjan og fá ókeypis lóðir. Þetta stenst bara engan veginn sögulega séð. Íslenska ríkið er skuldbundið þjóðkirkjunni  vegna fyrri viðskipta sem hófust í tíð Staða-Árna og ekki hefur verið sagt upp. Jafnvel samviskulaustu bófar Sturlungaaldar eins og sálmaskáldið og fjöldamorðinginn Kolbeinn Tumason, bandíttinn Órækja, Gizur jarl og  allir höfðingjar virtu kirkjur og kirkjugrið. Kirkjan hefur stöðu í þjóðfélaginu sem ómerkilegum krötum og þaðan af ómerkilegri mönnum  líðst ekki að traðka niður.

Aðrir aðskotahlutir eins og Múslimasöfnuðir, Bahaíar, Mormónar, Fríkirkjan, rússneska réttrúnaðarkirkjan og hvað þetta trúarvingl heitir nú allt saman, á bara engan sambærilegan rétt í þessu landi og íslenska þjóðkirkjan sem er algerlega stjórnarskrárvarin.  það er algerlega engin skylda til að gefa lóðir undir byggingar slíkra selskaba. Þjóðkirkjan, hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á henni, hefur algera sérstöðu sem ríkiskirkja á sögulegum grunni. 

Sveinbjörg Framsóknarkona ætti að nota sína lögfræði til að undirbyggja þá skoðun sína að ekki sé rétt að múslímar eigi einhvern rétt á ókeypis byggingalóðum né heldur að rétt sé því að gefa slíkum söfnuðum gjafir. Réttur annarra trúfélaga en þjóðkirkjunnar til opinberrar fyrirgreiðslu er nákvæmlega enginn þó að ýmsir kratar og eftiráspekingar séu að halda þessu fram. 

Vill einhver fara í þjóðaratkvæði um stöðu kirkjunnar til að fá úr þessu skorið?

Hver er þess umkominn að segja úrskurð Þorgeirs Ljósvetningagoða um nauðsyn eins siðar og einna laga vera út í bláinn? Var hægt að komast að annarri niðurstöðu en hann gerði?  Kemur einhver auga á einhvern jafningja Þorgeirs Ljósvetningagoða í framboði einhversstaðar?

Það ríkir ekkert jafnrétti trúfélaga á Íslandi þar sem þjóðkirkjan er ríkiskirkja. Punktur

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Til að undirstrika þessa grein hlustið eða lesið þetta Þetta er helber sannleikur um múslima og Íslamska trú. Það er mikil hræsi hjá Íslenskum stjórnmál geiranum að taka ekki afstöðu gegn Íslam.

http://dotsub.com/media/b5ee5ada-5b37-4b0b-9916-e0896337ec4b/embed/eng

Valdimar Samúelsson, 2.6.2014 kl. 09:22

2 Smámynd: Einar Karl

Það ríkir ekkert jafnrétti trúfélaga á Íslandi þar sem þjóðkirkjan er ríkiskirkja. Punktur

Vel mælt, Halldór.

Þess vegna ætti SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN að leggja til að leggja niður Þjóðkirkjuna sem ríkisstofnun, ef flokkurinn á annað borð styður frelsi einstaklingsins til orðs og æðis.

Þjóðkirkjan er trúfélag sem byggir á trú á æðri máttarvöld og í orði kveðni bókstafstrú á 2000-3000 gömul handrit frá miðausturlöndum.

Fólki á að vera í sjálfsvald sett hvort það styður slíkt félag eða ekki.

Einar Karl, 2.6.2014 kl. 09:53

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þessa addressu Valdimar. Hvað heitir hann þessi kall? Þetta eru athyglisverðar staðreyndir sem hann dregur fram. Líklega vill Einar Karl og aðrir fjölmenningarsinnar eins og þeir kalla sig ekki taka mark á þeim samt.

Einar, okkur er í sjálfsvald sett hvort við styðjum þjóðkirkjuna eða ekki. Ég er ekki fermdur og því ekki tækur frímúrari.Ég sæki víst ekki messur heldur, heyri þær stundum í útvarpinu.

Ég las mikið þjóðsögurnar sem barn og tel þær svona álíka og aðrar þjóðsögur sem menn lesa en trúa hæfilega. ÍSlendingar trúa víst auk þess á álfa upp til hópa og svo annað líf og tala við framliðna á miðilsfundum. Ekki veit ég hvort sharíalög leyfa slíkt.

Sumir trúa á biflíuna svona með sér. En við erum nú ekki farnir að dæma fólk til dauða og grýta fyrir að játa ekki trú á hana. Það er gert í SaudíArabíu og Pakistan svo einhver múslímaríki séu nefnd.

Finnst þér allt í lagi að hér verði hjarðir af lýð sem er ekki betur upplýstur en að vilja grýta konur, umskera stúlkubörn og gifta þau gömlum pervertum? Til hvers gagns væri það í okkar þjóðfélagi? Verðpum við ekki að takmarka innflutning á þessum lýð þó ekki nema til að vernda okkar konur og börn?

Halldór Jónsson, 2.6.2014 kl. 17:31

4 Smámynd: Einar Karl

Halldór minn Jónsson,

á Norðurlöndum eru tugþúsundir múslima. Og það er ekki svo, eins og þú svo smekklega orðar það, að það fólk sé "hjarðir af lýð". (Ertu með þessum hætti að líkja fólki við dýrahjarðir? Skepnur?? Þú fyrirgefur, en mér finnst svona tal minna á boðskap Norðmannsins Anders Breivik.)

Langflestir múslima, eins og langflestir hörundshvítir Norðurlandanbúar, eru bara mesta friðsemdarfólk, þó í báðum hópum leynast skemmd epli.

Einar Karl, 2.6.2014 kl. 18:43

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Eitthvað eru nú misvísandi tíðindi af þessu friðsemdarfólki. Mér er fortalið að það séu heilu hverfin í sænskum borgum sem löggan þorir ekki inní fyrir hvernig þessi lýður er. Hvernig getur þú mælt kvennakúgun bót og hommahatri? Viltu láta berja, grýta og klæða íslenskar konur í svarta poka?

Halldór Jónsson, 2.6.2014 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 3418466

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 73
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband