Leita í fréttum mbl.is

Íslenski fáninn

er kominn á skrifstofu Sigmundar Davíðs. Þetta finnast mér góð tíðindi.

Það vantar að vekja Íslendinga til vitundar um hver forréttindi það eru að tilheyra okkar þjóð. Þjóðernið er auðlind sem okkur ber að fara vel með og af ítrustu ráðdeild og sparsemi þegar kemur að innflutningi annarra þjóða.

Ég vil leggja til að íslenska fánanum verði komið fyrir í öllum skólastofum landsins og nemendum sé þannig kennt að umgangast þjóðartáknið af þeirri virðingu sem því ber.

Um leið eigum við að gera fánann aðgengilegri þjóðinni með því að breyta fánareglunum um að ekki megi hafa fánann uppi eftir sólsetur. Það fælir fólk frá að eiga yfir sér sektir ef það gleymir sér með fánnann við hún. Ég held að Bandaríkjamenn geri þá einu kröfu að fáninn sé upplýstur þegar hann er uppi að næturþeli.

Hefjum íslenska fánann til vegs og virðingar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Og notar svo íslenska landsliðið í fótbolta; fánalitinn í sokkana hjá sér?

Jafngildir það ekki því að stíga ofan á fánann?

Jón Þórhallsson, 4.6.2014 kl. 16:00

2 Smámynd: Kristmann Magnússon

Tek 100% undir með þér Halldór minn.

Fánalög Bandaríkjanna innihalda einnig þá kvöð að fáninn skuli tekinn niður við sólsetur, en þar dettur bara engum manni til hugar að gera það.

Við eigum einnig að fá að nota fánann meira til kynningar á vörum og þjónustu og vonandi verða rýmkaðar heimildir þar um fljótlega, en samt þurfa að vera nokkuð stífar reglur þar um.

Kristmann Magnússon, 4.6.2014 kl. 18:10

3 Smámynd: Elle_

Veit ekki um nein bandarísk fánalög sem segja að fáninn skuli tekinn niður á nóttinni.  Það er hinsvegar vani (custom) og almennt gera fyrirtæki og stofnanir það, þó almenningur taki ekki niður fánann af húsunum á nóttinni.

Elle_, 4.6.2014 kl. 19:48

4 Smámynd: Elle_

Jú, það mætti kalla það fánalög (the flag code).  Það eru samt engin viðurlög af alríkinu og hafa ekki verið síðan 1990.

THE FLAG CODE

This code is the guide for all handling and display of the Stars and Stripes. It does not impose penalties for misuse of the United States Flag. That is left to the states and to the federal government for the District of Columbia. Each state has its own flag law.

Elle_, 4.6.2014 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband